USD 125,3 0,6%
EUR 144,9 0,1%
GBP 167,1 0,4%
DKK 19,4 0,1%
SEK 13,6 0,1%
NOK 13,0 0,5%
CHF 160,2 0,4%
CAD 91,8 0,4%
JPY 0,8 0,4%
Stýrivextir 7,2%
Verðbólga 5,2%
Mannfjöldi 394.530
USD 125,3 0,6%
EUR 144,9 0,1%
GBP 167,1 0,4%
DKK 19,4 0,1%
SEK 13,6 0,1%
NOK 13,0 0,5%
CHF 160,2 0,4%
CAD 91,8 0,4%
JPY 0,8 0,4%
Stýrivextir 7,2%
Verðbólga 5,2%
Mannfjöldi 394.530
Til baka

Þetta sögðu þrjú hund­ruð frum­kvöðl­ar

Um nýsköpunarumhverfið hérlendis

Iceland.A2004028.1355.500m
Mynd: NASA

Nýsköpunarumhverfið á Íslandi hefur tekið stakkaskiptum á síðustu sex árum. Rannsóknir og þróun í atvinnulífinu hafa aukist til muna, fjármögnunarumhverfi áhættusamra nýsköpunarfyrirtækja hefur þroskast og hið opinbera hefur stóraukið fjárhagslegan stuðning við nýsköpun. Nýleg könnun okkar á viðhorfi þátttakenda í nýsköpunarumhverfinu leiðir í ljós að meirihluti íslenskra frumkvöðla er bjartsýnn á framtíð nýsköpunar í landinu. Viðvarandi núningur á ýmsum sviðum hefur þó dempandi áhrif á þessa bjartsýni.

Vorið 2025 hleyptu Northstack og Tækniþróunarsjóður af stokkunum Nýsköpunarlandinu 2.0, eftirfylgni við sambærilega könnun frá 2019 þar sem kannað var viðhorf nýsköpunarsamfélagsins til starfsumhverfisins á Íslandi. Við könnuðum viðhorf tæplega þrjú hundruð stofnenda, forstjóra og yfirmanna rannsóknar- og þróunar hjá fyrirtækjum sem sótt höfðu um styrki úr Tækniþróunarsjóði á síðasta áratug. Markmið okkar var að skilja hvernig skynjun þeirra hefur breyst, hvar hún vék frá hlutlægum mælikvörðum og hvaða málefni verðskuldi athygli stjórnvalda.

Bjartsýni einkenndi svörin í könnun okkar á síðasta ári og náði sú bjartsýni nokkuð jafnt til allra hópa, hvort sem litið var til kyns eða staðsetningar (höfuðborgarsvæðis eða landsbyggðar). Þó voru merkjanlegar kerfislægar áskoranir sem sagðar eru halda aftur af vexti nýsköpunarfyrirtækja. Má þar nefna aðgang að hæfu starfsfólki, ófullnægjandi bankaþjónustu og óvissu tengda gjaldmiðlinum. Þessi vandamál endurspeglast einnig í stöðu Íslands á alþjóðlegum listum yfir nýsköpun þar sem Ísland hefur staðið nokkurn veginn í stað þrátt fyrir aukin útgjöld til rannsókna og þróunar á sama tímabili. Saman benda þessi atriði til þess að hindranir á vegi árangursríkrar nýsköpunar hérlendis snúist um fleira en skort á fjármagni.

Nýsköpunarstefna er meira en styrkjakerfi

Umfjöllun um nýsköpunarstefnu snýst gjarnan um sértæk verkfæri, allt frá endurgreiðslum fyrir fjárfestingu í rannsóknum og þróun til ríkisstyrktra nýsköpunarsjóða. Þessir þættir eru vissulega mjög mikilvægir og könnunin okkar náði til margra þeirra. En niðurstöður okkar sýna einnig glöggt að mun fleiri atriði hafa afgerandi áhrif á vöxt og nýsköpun fyrirtækja.

Meðal þeirra kerfislægu þátta sem setja íslenska nýsköpunarumhverfinu skorður eru mennta- og innflytjendastefna, gæði fjármálaþjónustu og stöðugleiki gjaldmiðilsins. Áhrif kerfislægra þátta endurspeglar víðtækari alþjóðlega umræðu. Má í því samhengi benda á að Nóbelsverðlaunin í hagfræði á þessu ári voru veitt fræðimönnum sem rannsakað hafa hvernig stofnanaumgjörð ræður því hvort tækniframfarir skili sér í viðvarandi hagvexti. Verðlaunahafar ársins 2025, Joel Mokyr, Philippe Aghion og Peter Howitt, sýndu fram á afgerandi áhrif kerfa og stofnana á það hvort nýsköpun skili sér í aukinni velsæld. Beinn fjárhagslegur stuðningur við nýsköpun er í þessu ljósi aðeins ein stoð áhrifaríks nýsköpunarumhverfis. Sjálfbær vöxtur veltur ekki síður á því hvort samfélög horfi jákvæðum augum til breytinga, hvort stofnanir geti yfirstigið mótstöðu rótgróinna hagsmunaafla, og á samræmingu hagnýtrar, tæknilegrar og viðskiptalegrar þekkingar. Framleiðsla, rannsóknir og þróun, fjármálaumhverfið og jafnvel sparnaður heimila eru samtengd, og greining á nýsköpunar- og frumkvöðlaumhverfinu þarf að taka tillit til allra þessara þátta.

Niðurstöður könnunar okkar segja margt um þessa kerfislægu þætti. Rúmlega helmingur svarenda telur aðgang að starfsfólki með réttan bakgrunn góðan á Íslandi. Viðhorf til bankaþjónustu hefur batnað en slík þjónusta er enn talin miðlungsgóð: aðeins einn af hverjum fimm gefur henni góða einkunn. Krónan íþyngir íslenskum fyrirtækjum og svarendur leggja áherslu á áhrif hárra innlendra vaxta. Í svörum kom fram að þar sem raunvextir eru mjög háir stendur áhættusamur rekstur halloka í samkeppni um fjármagn við örugga vexti á bankabók. Þetta hefur letjandi áhrif á fjárfesta: „Raunvextir verulega háir, rekstur keppir í dag illa við örugga vexti á bankabók. Hvatar til fjárfestinga, sérstaklega áhættusamra, í nýsköpun hafa verið teknir úr sambandi,“ skrifaði einn svarenda okkar. Viðbótarstyrkir til rannsókna og þróunar leysa ekki þennan vanda.

Þrálátar hindranir

Aðgangur að starfsfólki á Íslandi með réttan bakgrunn hefur aukist frá árinu 2019. Nú telja 48% hann vera góðan samanborið við 39% fyrir sex árum. Fjöldi útskrifaðra nemenda í tölvunarfræði hefur aukist jafnt og þétt sem er jákvæð þróun. Hins vegar hefur fækkað í hópi þeirra sem ljúka doktorsprófi og hlutfall útskrifaðra í raunvísindum og verkfræði er enn lágt í alþjóðlegum samanburði. Þetta bendir til þess að reynsla starfsfólks á íslenskum vinnumarkaði sé að verða einhæfari á ákveðnum lykilsviðum, jafnvel þótt hún aukist á sviði hugbúnaðargerðar.

Þegar kemur að tækifærum til þess að ráða erlenda sérfræðinga er staðan tvíræð. Ráðningum hefur fjölgað (hlutfall þeirra sem ráðið hafa erlenda sérfræðinga hækkaði úr 40% í tæp 50% meðal þeirra sem svöruðu könnuninni) en upplifunin á því hversu auðvelt sé að nálgast þetta starfsfólk hefur ekki fylgt sömu þróun. Sviptingar í bandaríska vísindageiranum skapa um þessar mundir tækifæri til að laða að vísindafólk þaðan, og þátttakendur í könnuninni telja að fjarlægja ætti stjórnsýslulegar hindranir til að auðvelda slíkt ferli: „Auðvelda má umsóknarferli …

Fáðu áskrift til að lesa

Áskrift að Vísbendingu hæfir þeim sem hafa gaman að óvilhöllum greiningum og gagn af greinargóðum upplýsingum um efnahagsmál, viðskipti og nýsköpun.
Mest lesið
1
Efnahagsmál

Stjórnmálin mega ekki bara fara sínu fram

2
Efnahagsmál

Ósamhverf áhrif gengis­breytinga á verð mat- og drykkjarvöru

3
Alþjóðamál

Frá lögmæti til „banvæns“ valds

4
Efnahagsmál

Um DNA og verðbólgu

5
Menntamál

Að endurheimta fræðasamfélagið: Háskólar þurfa meira en mælingar

6
Loftslagsmál

Um bókina Hitamál eftir Frosta Sigurjónsson

Loftslagsmál . tbl.

Um bók­ina Hita­mál eft­ir Frosta Sig­ur­jóns­son

Ýtarleg úttekt með rýni og staðreyndaprófunum samkvæmt vísindalegum aðferðum.Inngangsgrein að þessari úttekt birtist í 9. tbl. 44. árg. vikuritsins Vísbendingar.
Iceland.A2004028.1355.500m
Nýsköpun 9. tbl.

Þetta sögðu þrjú hund­ruð frum­kvöðl­ar

Um nýsköpunarumhverfið hérlendis
Jöklar dsf8175h
Loftslagsmál 9. tbl.

Gildi vís­inda og vís­inda­legr­ar gagn­rýni

Um hitamál og bábiljur
Umferð, Reykjavík
Aðrir sálmar 9. tbl.

Vís­indi og ný­sköp­un

Þurfa að spila saman og hanga saman

Seðlar, krónur, peningar
Efnahagsmál 8. tbl.

Um DNA og verð­bólgu

Án trúverðugs akkeris fyrir verðbólguvæntingar festist verðbólgan í sessi.
Seðlabanki
Efnahagsmál 8. tbl.

Verð­bólga og vinnu­mark­að­ur

Þrátt fyrir kólnun er verðbólguþrýstingur enn of mikill.
Aðrir sálmar 8. tbl.

Er verð­bólg­an kom­in til að ver­a?

Tvær, tvær og hálf, fjórar eða fimm prósentur
Alþingi
Efnahagsmál 7. tbl.

Nokk­ur orð um gagn­rýni á frum­varp um launa­vísi­tölu

Bak við tæknilegar lagabreytingar leynist grundvallarspurning um réttindi