USD 122,9
EUR 143,6 -0,1%
GBP 165,0 -0,3%
DKK 19,2 -0,1%
SEK 13,2 -1,0%
NOK 12,9 0,1%
CHF 155,4 -0,3%
CAD 88,8 0,2%
JPY 0,8 -0,5%
Stýrivextir 7,5%
Verðbólga 5,4%
Mannfjöldi 394.530
USD 122,9
EUR 143,6 -0,1%
GBP 165,0 -0,3%
DKK 19,2 -0,1%
SEK 13,2 -1,0%
NOK 12,9 0,1%
CHF 155,4 -0,3%
CAD 88,8 0,2%
JPY 0,8 -0,5%
Stýrivextir 7,5%
Verðbólga 5,4%
Mannfjöldi 394.530
Til baka

Vís­indi og ný­sköp­un

Þurfa að spila saman og hanga saman

Umferð, Reykjavík
Mynd: Golli

Mislangar heimildaskrár birtast með greinum hér í Vísbendingu en aukin áhersla hefur verið á vel gerðar tilvísanir með tenglum bæði fyrir vefútgáfur greina og í hefðbundna rafræna útgáfu. Rétt er að benda á að undirstrikuð orð í vikuritinu eru með lifandi tenglum eins og á vefnum. Hugmyndin er að áskrifendur fái tengsl við bakgrunnstexta, heimildir og ítarlesefni með einum smelli. Oft er notað hið alþjóðlega DOI (Document Object Identifier) kerfi fyrir vísanir í vísindagreinar. En DOI er samfélag samfélaga, rekið af stofnun sem tengist fjölþjóðlegu staðlastarfi og er óhagnaðardrifið framtak til þess að gjaldþrot eða samruni hagnaðardrifinna útgáfufélaga brjóti ekki í sundur tengla í eldri útgáfur.

Fyrir þremur vikum birtust tvær greinar í Vísbendingu sem benda má aftur á, sérstaklega í þessu sambandi þar sem alls yfir fjörtíu vísanir í heimildir fylgdu greinunum tveimur um áskoranir í verðbólgu og háskólamálum. Einnig má benda á þrjár aðrar greinar um alþjóðamál frá því fyrr í ár alls með yfir fimmtíu tenglum, beint úr texta greinar bak við undirstrikuð orð eða úr tilvísunum heimilda aftast í grein. Allar gefa greinarnar sjálfar afbragðs yfirlit um flókin mál á skýran og skorinorðan hátt án þess að krefjast lesturs tilvísana eða heimilda.

Heimildavísanir eru ein grunnstoð alls vísindastarfs. Forsíðugrein vikunnar fjallar á viðtækan hátt um vísindi og aðferð hennar og tekur til umfjöllunar skort á virðingu fyrir vönduðu vísindastarfi. Liggur þar til grundvallar bókin Hitamál eftir Frosta Sigurjónsson sem kom út nýverið. En í tengslum við greinina er birt á vef Vísbendingar ítarleg úttekt greinarhöfundarins Halldórs Björnssonar þar sem vísindalega eru bókarskrifin hrakin lið fyrir lið.

Nýsköpun útfrá vísindastarfi er vissulega ein helsta driffjöður framþróunar íslensks atvinnulífs og áhugavert að lesa síðari grein blaðs vikunnar um greiningu á umhverfi greinarinnar sem þjáist af hávaxtastefnunni eins og aðrir hlutar atvinnulífsins, sem ekki sækja sér alþjóðlega fjármögnun.

Næsta grein

Mest lesið
1
Efnahagsmál

Verðbólga og stýrivextir

2
Neytendamál

Eldsneytisverð 20 krónum of hátt … en er eitthvað hægt að gera?

3
Efnahagsmál

Hagvöxtur og aðrir velsældarvísar

4
Efnahagsmál

Um efnahagslegar afleiðingar styrjaldarinnar

5
Aðrir sálmar

Vonir og væntingar

6
Efnahagsmál

Það sem við mælum hefur áhrif á það sem við gerum

Aðrir sálmar 13. tbl.

Vond­ur hag­vöxt­ur og góð­ur

og mismunandi afrakstur hans
mynd1
Efnahagsmál 13. tbl.

Vel­sæld­ar­mæl­ing­ar

verða enn mikilvægari í núverandi óvissuástandi
Mynd 1 WEF
Efnahagsmál 13. tbl.

Það sem við mæl­um hef­ur áhrif á það sem við ger­um

um mælikvarða umfram verga landsframleiðslu
Bensín
Neytendamál 12. tbl.

Elds­neyt­is­verð 20 krón­um of hátt … en er eitt­hvað hægt að ger­a?

Álagning á eldsneyti hækkar og samkeppni er veik

AFP__20260325__A4LN6T3__v2__HighRes__FilesUaeUsIranIsraelWarTransportShipping
Efnahagsmál 12. tbl.

Um efna­hags­leg­ar af­leið­ing­ar styrj­ald­ar­inn­ar

Verðbólga vex áfram og stríðsáhrif ógna efnahagsstöðugleika
Aðrir sálmar . tbl.

Vax­andi vond­ir þætt­ir

sem hafa áhrif á kreppuverðbólgu, atvinnuleysi og verðhækkanir
Seðlabanki
Efnahagsmál 11. tbl.

Verð­bólga og stýri­vext­ir

Um verðbólgulíkön Seðlabankans, takmarkanir þeirra og hlutverk stýrivaxta í hagstjórn Íslands.
olia_basra_irak
Aðrir sálmar 11. tbl.

Von­ir og vænt­ing­ar

Brostnar, styrktar og hverfandi