Það er mikilvægt að hægt sé að treysta tölum, eins og raunar orðum. Því er stundum haldið fram að létt sé að ljúga með tölfræði. En til þess þarf oftast einbeittan vilja. Skilningur talna er mikilvægur og hann getur þurft að bæta, en forsendur þess skilnings er að hægt sé að treysta tölunum sem lagðar eru til grundvallar.
Ýmsum kann að þykja óþægilegar tölur berast úr heimi loftslagsbreytinga. Sumir reyna að hrekja þær, þó nú sé ljóst að tölurnar stefni út úr kortunum, eins og fjallað var um í sálmunum nýverið. Eins fórum við fyrir ári síðan langt út fyrir rými hefðbundinna greina vikuritsins þegar að við birtum hér á vefnum langa grein um rangfærslur í bók sem vildi sópa óþægilegu staðreyndum undir teppi.
Nú stendur yfir COP31 fundurinn í Tyrklandi þar sem reynt er að halda áfram að bregðast við þeim tölum sem halda áfram að yfirstíga markmiðin sem samið var um í París fyrir hartnær tólf árum. Financial Times fjallar um hvernig margfalt framlag til vandans kemur frá ríkari þjóðum og ríkari hluta hverra þjóðar. Um helmingur losunar frá ríkustu tíundinni. Þær tölur líta illa út fyrir heiminn og ekki skipar Ísland sér í neinn árangurs flokk þar að lútandi. Það er táknrænt að fundist hafi í Tyrklandi plast héðan frá Íslandi sem okkur hefur ekki enn tekist að endurvinna. Ekki frekar en fernur, samkvæmt úrræðalausum úrvinnslusjóði í áraraðir.
Óþægilegar tölur birtast einnig um það hve illa okkur gengur að fjalla um loftslagsvandann og umhverfismál. Sláandi úttekt á umfjöllun Kastljóss var gerð í nýju tímariti sem kallast Umskipti og haldið er úti af blaðamanni sem skrifað hefur áður áhugaverðar greinar hér í Vísbendingu. Lestin tók málið til frekari umfjöllunar þar sem hlusta má á hann og annan blaðamann af Vísi sem verðlaunaður er fyrir umfjallanir um efnið.
Forsíðugreinin er tvöföld að stærð og fyllir því rými blaðsins þessa vikuna. Greinin fjallar um virði hagtalna og mikilvæga skýrslu hagtalnanefndar varðandi gæði og samræmi. Tryggja verður grundvallarforsendu þess að tölum megi treysta til þess að við getum bæði greint og tekið ákvarðanir varðandi efnahagsmál. Sameiginleg gæðakerfi hagtalna sem kynnt er í greininni hlýtur að verða allra hagur og verða að gera á vegum Hagstofunnar.






