USD 121,9 0,4%
EUR 136,8
GBP 164,0 0,1%
DKK 18,3
SEK 12,5 -0,1%
NOK 13,1 -0,4%
CHF 149,0 0,1%
CAD 87,3 0,2%
JPY 0,8 0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
USD 121,9 0,4%
EUR 136,8
GBP 164,0 0,1%
DKK 18,3
SEK 12,5 -0,1%
NOK 13,1 -0,4%
CHF 149,0 0,1%
CAD 87,3 0,2%
JPY 0,8 0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
Til baka

Óheppi­leg orð

sem eru upphaf og endir alls

Upphafið að endalokum Trump-tímabilsins var nú í vikunni, samkvæmt leiðara Financial Times, daginn eftir þingkosningar. Endurreisn lýðræðisins í Bandaríkjunum getur hafist, hljóðaði undirtitillinn.

Furðuleg viðhorf Bandaríkjaforseta til stjórnskipunarinnar hafa náð ströndum Íslands og byrjað að skjóta rótum innan íslenskra stjórnmála, en hve mikið það nái til framkvæmda á eftir að koma í ljós. Eitt af einkennum stjórnarhátta forsetans er að láta alls kyns orð falla og skeyta engu um merkingu þeirra, afleiðingar eða sannleiksgildi.

Sjálfbærni er vinsælt orð nú um stundir, þó ekki hafi það mikið átt upp á pallborðið undanfarið í vestrinu. Hugmyndin um sjálfbærni felur í sér að skila af okkur jörðinni, og samfélaginu ef því er að skipta, í betra ástandi til næstu kynslóðar. Muna þarf þá upphaflegu skilgreiningu sjálfbærninnar.

Mótmælin sem dreifast nú um lönd Evrópu eru sprottin frá yngri kynslóðinni, þar sem nemendur og ungt fólk vilja fá betri aðstæður til mennta og lífsviðurværis. Nú hafa í fyrsta sinn orðið þau viðmiðaskipti í veröldinni að ný kynslóð hefur það verra en fyrri kynslóð. Það er ekki góð framtíð að færa börnum okkar og barnabörnum. Við því má því búast að enn meiru verði áfram á móti mælt.

Furðuleg viðhorf fjármálaráðherrans íslenska til stjórnarhátta halda áfram að afhjúpast hægt og bítandi allan síðastliðinn mánuð og nú þarf stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis að fara ofan í gögn málsins. Ráðherrann segist bæði bera fullt traust til forstjóra (sem stýrt hefur Landsvirkjun í sautján ár) og til stjórnar fyrirtækisins (sem hann sjálfur skipaði með aðstoð undirmanna sinna í ráðuneytinu). Þó sú stjórn virðist hafa gert starf forstjórans óbærilegt, en ráðherrann virðist ekkert hafa við það að athuga að litið sé á sig sem æðsta yfirmann Landsvikjunar. Það að kasta svona einu stærsta fjöreggi þjóðarinnar ítrekað á milli aðila í óljósu en tröllvöxnu valdabrölti er hvorki traustvekjandi né sæmandi lýðræðisríki.


Í forsíðugrein vikunnar er fjallað um sjálfbærni launaþróunar og verðbólgu út frá alþjóðlegum kenningum um laun og framleiðni. En þau leiðu mistök urðu í fyrri grein Þorsteins Þorgeirssonar að þá birtst upphaflega ekki rétt fyrsta graf með henni, en leiðrétt útgáfa blaðsins er aðgengileg á vefnum.

Síðari grein vikunnar er stutt og þýdd, eftir erlendan hagfræðing sem veitir innsýn í breskt efnahagsástand og pólitískar afleiðingar þess að ráðast ekki með réttum hætti gegn verðbólgunni. Önnur þýdd grein eftir Isabellu Weber birtist hér í Vísbendingu fyrir nokkrum árum.

Mest lesið
1
Húsnæðismál

Staða háskólamenntaðra á húsnæðismarkaði

2
Efnahagsmál

Hvert er markmið efnahagslífsins?

3
Aðrir sálmar

Nánast núll vöxtur

4
Efnahagsmál

Uppskeruhátíð hagfræðinga

5
Aðrir sálmar

Þjóðarhagsleg rekstrarhagfræði

6
Vinnumarkaður

Endalok pólska tímabilsins?

Framkvæmdir í Reykjavík
Efnahagsmál 36. tbl.

Hvað er sjálf­bær launa­þró­un?

Verðbólga, framleiðni og mörk launasvigrúmsins
Anti-Fascist Economics 2026 Isabella Weber
Efnahagsmál 36. tbl.

Póli­tísk­ar af­leið­ing­ar efna­hags­legr­ar óvissu

Lífskjarakrísan: Stýrivextir eru harkalegt tól í baráttunni gegn hækkandi verði á nauðsynjavörum
IMG_2494
Umhverfi 35. tbl.

Ís­lensk­ir jökl­ar á hverf­anda hveli

Loftslagsbreytingar hafa mikil áhrif á íslenska jökla. Vegna hlýnunar jarðar hafa jöklarnir minnkað mikið á síðustu áratugum. Ef ekkert verður gert til að draga úr hlýnuninni gætu margir þeirra horfið í framtíðinni.