USD 122,5 -0,2%
EUR 137 -0,1%
GBP 161,8 -0,2%
DKK 18,3 -0,1%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,2%
CHF 146,9 -0,3%
CAD 85,9 -0,3%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
USD 122,5 -0,2%
EUR 137 -0,1%
GBP 161,8 -0,2%
DKK 18,3 -0,1%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,2%
CHF 146,9 -0,3%
CAD 85,9 -0,3%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
Til baka

Hvert er mark­mið efna­hags­lífs­ins?

Mikilvægi skilnings á samhengi og hugtökum

Reykjavíkurhöfn
Mynd: Davíð Þór

Vöxtur hefur löngum er talin hagfræðileg forsenda hagsældar. Hagvöxtur hefur þannig lengi verið helsta markmið í allri efnahagsstjórn á Íslandi en iðulega hefur gleymst að greina á milli góðs og verri vaxtar auk þess sem lítill áhugi er að horfa til hringrásarinnar sem vöxturinn byggist á. Sú hringrás getur verið margvísleg, til dæmis varðandi hráefni, mengun, fólk og fjármuni.

Ekki er hægt að ætlast til víðtækrar hagrænnar þekkingar hérlendis á munnum á milli hægvaxandi trjátegundanna eikar og birkis eða hraðvaxandi tegunda svo sem víðis og furu. En þó er vonandi að ekki þurfi að líða margir áratugir þekkingaruppbyggingar þangað til rekstur samfélagsins taki mið að því að laufblöð falli af trjánum á haustin. Sé þeim ekki sópað saman eins og í öðrum löndum þá fjúka þaum um og verða loks að drullu, til dæmis á gangstéttum og göturæsum þannig að valdi stíflu í niðurföll. Líklegra má þó teljast að áður en þetta samhengi hringrásar lífrænna þátta hagkerfisins verði ljóst hefjist frekar upp rifrildi um hvort það sé hlutverk einstaklinga, fyrirtækja, ríkis eða sveitarfélaga að raka lauf eða losa niðurfallsstíflur. Raunar gæti þögnin og aðgerðarleysið verið líklegasta viðbragð við falli haustlaufanna og helst treyst á að vindurinn blási þeim bara á haf út. Enginn þarf þá að reikna út hvort hagkvæmara sé að raka þeim saman áður en drullan stíflar.

Reiknaður vöxtur

Ríkisstjórnarskipti þurfti til þess að hefja þá stærðfræðilegu nýlundu hérlendis að deila hagvextinum niður á mannfjölda. Þó það sé almennt gert á alþjóðavísu. Hér mátti, þar til fyrir tveimur árum, helst ekki minnast á það að hagvöxtur undanfarins áratugar hafi í raun ekki verið svo mikill því hann væri knúinn áfram af aðfluttu vinnuafli, gjarnan samkvæmt samningnum um evrópska efnahagssvæðið. Nú er ljóst að sá hagvöxtur er í raun nánast enginn sér honum deilt niður á landsmenn. Landsframleiðslan árið 2025 var um hálfri prósentu meiri en árið 2018.

Þegar farið er í næstu stærðfræðilegu umbreytingu til að dreifa vextinum niður á vinnustund þá skýrist myndin aðeins meira. Þannig fækkaði meðalfjölda vinnustunda á mann á því átta ára tímabili frá 2018 þar til í fyrra um einn tíunda. Það hve mikið sú framleiðniaukning er til kominn vegna styttingar vinnuvikunnar og hve mikið vegna þess að Hagstofan hóf að draga kaffitíma og hádegishlé frá tölunum einhvern tíman á þessu tímabili til samræmis við evrópskar venjur er óljóst. Fyrir liggur þó að hið aðflutta vinnuafl hefur í litlu mæli notið þessarar styttingar. Mögulega hefur launakostnaður einungis aukist vegna meiri yfirvinnu í þeim starfstéttum sem fengu styttingu vinnutíma, þar sem ekki var hægt að fjölga starfsfólki. Þetta hefði þó átt að vera hægt að reikna út fyrirfram.

Framleiðni sem er reiknuð út frá meðaltölum getur þannig ekki alveg strax orðið réttmæt mæling til að átta sig á því hvort íslenskur verkalýður eða viðskiptaaðall (working class & business class) hefur hækkað meira. Þar við bætist að stétt opinbera starfsmanna hefur almennt litla möguleika á reiknaðri framleiðniaukningu, því auknar vinnustundir kennara eða hjúkrunarfólks sem bæta gæði þjónustunnar í mennta og heilbrigðis kerfunum, draga úr reiknaðir framleiðni á skammtíma mælikvarða. En þær auknu vinnustundir geta þó mjög vel aukið framleiðni í heild til lengri tíma.

Það er iðulega erfitt að hækka skatta, en sú aðferð að beita sjónarhorni aðalhagfræðinga banka og telja mögulegt að hafa bæði engilsaxneskt stig skattheimtu og evrópskt stig velferðarkerfis gengur stærðfræðilega ekki upp. Sú tilraun að reka hagkerfið út frá því að hrekja aðflutt verkafólk úr landi til að draga úr atvinnuleysi óskaplega líkleg til að misheppnast. Alveg eins og sú aðferð að hrekja ellilífeyrisþega út af heimilum sínum með því að hækka leigu um fram tekjur þeirra.

Húsnæðisþáttur hagkerfisins er mjög oft vanmetinn, bæði rekstrarlega og fjárfestingarlega, en hann er stór hluti efnahagsreiknings flestra aðila. Rétt er að minnast þess að nú í vikunni var átján ára afmæli heildar hruns íslenska bankakerfisins. Samningum um opinberar skuldir vegna gjaldþrots Íbúðalánasjóðs var loks lokið á síðasta ári og með þeim var loks lokið fjárhagslega uppgjörinu hérlendis. En muna þarf einnig að upptökin á því alþjóðlega fjármálahruni sem hófst í ágúst árið 2007 voru í verðlagningar á bandarískum undirmálslánum sem veitt höfðu verið til óskynsamlegra húsnæðislána sem að breiddist síðan yfir Norður Atlantshafið.

Mest lesið
1
Atvinna

Er atvinnuleysi innflytjenda næmara fyrir hagsveiflum?

2
Aðrir sálmar

Gylfaginning

3
Loftslagsmál

París, prósentur og prófsteinninn

4
Aðrir sálmar

Af Atómstöðinni

5
Opinber fjármál

Nýtt grunnviðmið fyrir stjórnarhætti opinberra aðila

6
Umhverfi

Ef Ísland væri borg á meginlandi Evrópu

Reykjavíkurhöfn
Efnahagsmál 32. tbl.

Hvert er mark­mið efna­hags­lífs­ins?

Mikilvægi skilnings á samhengi og hugtökum
Reykjavík
Húsnæðismál 32. tbl.

Staða há­skóla­mennt­aðra á hús­næð­is­mark­aði

Ný könnun Félagsvísindastofnunar HÍ bendir til þess að háskólamenntun ein og sér tryggi ekki greiða leið inn á húsnæðismarkað. Flestir eignast að lokum eigið húsnæði, en leiðin þangað virðist orðin lengri og kostnaðarsamari en áður og byggist oft á stuðningi fjölskyldu, skuldsetningu og miklu vinnuframlagi.
Mannlíf í Reykjavík
Aðrir sálmar 32. tbl.

Nán­ast núll vöxt­ur

uppá von og óvon
Stjórnarráðið
Efnahagsmál 31. tbl.

Til hvers eru op­in­ber fjár­mál?

Mikilvægi umræðunnar um tölur og orð

Seðlar, krónur, peningar
Aðrir sálmar 31. tbl.

Fram­leiðni og halla­rekst­ur

Heimila, fyrirtækja og hins opinbera
Peningar
Efnahagsmál 31. tbl.

Und­ir­liggj­andi kostn­að­ar­þrýst­ing­ur

Launa-framleiðnibilið, framlegð og atvinnustig á Íslandi
Mynd SGG - 1
Opinber fjármál 30. tbl.

Nýtt grunn­við­mið fyr­ir stjórn­ar­hætti op­in­berra að­ila

AFP__20240320__economou-notitle240319_npstx__v1__HighRes__EuFlagsInBrussels
Aðrir sálmar 30. tbl.

Evr­ópa og nýi heim­ur­inn

vesturheimur og vesturveldin eru hugtök til að endurskilgreina