USD 121,9 0,4%
EUR 136,8
GBP 164,0 0,1%
DKK 18,3
SEK 12,5 -0,1%
NOK 13,1 -0,4%
CHF 149,0 0,1%
CAD 87,3 0,2%
JPY 0,8 0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
USD 121,9 0,4%
EUR 136,8
GBP 164,0 0,1%
DKK 18,3
SEK 12,5 -0,1%
NOK 13,1 -0,4%
CHF 149,0 0,1%
CAD 87,3 0,2%
JPY 0,8 0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
Til baka

Hvað er sjálf­bær launa­þró­un?

Verðbólga, framleiðni og mörk launasvigrúmsins

Framkvæmdir í Reykjavík
Mynd: Davíð Þór

Verðbólga, framleiðni og mörk launasvigrúmsins

Algengur misskilningur í umræðu um kjarasamninga er að nóg sé að nafnlaun hækki í takt við verðbólgu. Þá haldist kaupmáttur óbreyttur og margir telja björninn unninn. En þar vantar mikilvægan þátt. Framleiðni vinnuafls eykst með tímanum og skapar svigrúm til hækkunar raunlauna. Launafólk á að njóta þessara framfara í bættum lífskjörum. Eðlilegt langtímaviðmið er því að nafnlaun hækki að jafnaði í takt við verðbólgu að viðbættum framleiðnivexti. Verðbólgan ætti jafnframt að vera við 2,5% markmið Seðlabankans. Ef framleiðni eykst um 2% á ári geta nafnlaun þannig hækkað um 4,5% og kaupmáttur launa um 2%, í takt við framleiðni.

Ef verðbólgan er meiri en markmiðið og nafnlaun hækka til samræmis, stuðlar það að því að halda henni hárri. Að kjarasamningum var ekki sagt upp í október 2026 dregur úr þeirri hættu. Samkvæmt kjarasamningi Starfsgreinasambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins (2024) hækka laun um 3,5% um áramót, en að lágmarki um 23.750 krónur á mánuði. Almenna hækkunin er því nálægt því sem samrýmist verðbólgumarkmiði og framleiðnivexti, þótt lægstu taxtar hækki hlutfallslega meira.

Launa-framleiðnibilið

Launakostnaður á framleidda einingu, ULC, ræðst af nafnlaunum á vinnustund, W, og framleiðni vinnuaflsins, A.

ULC = W / A (1)

Launa-framleiðnibilið, B, sem ég fjallaði um í grein minni (2024), ber framleiðni saman við raunlaun, W / P, þar sem P er vísitala neysluverðs.

B = P / ULC = A / (W / P) = (P × A) / W (2)

Þegar B helst stöðugt hækka raunlaun í takt við framleiðni. Ef B hækkar dragast laun aftur úr, en ef B lækkar þá hækka launin hraðar en framleiðni. Á Mynd 1 lækkar B þegar línan liggur yfir súlunum og hækkar þegar hún liggur undir þeim.

Mynd 1

Nafnlaun á vinnustund, verðbólga og framleiðnivöxtur 2000–2025

Árlegar breytingar úr ársmeðaltölum ársfjórðungstalna. Bláu súlurnar sýna alla verðbólguna. Skástrikuðu hlutarnir innan þeirra sýna neikvæðan framleiðnivöxt og lækka samanlagt viðmið niður að dökku strikinu. Tölur ársins 2024 kunna að endurspegla breytingu í mælingu vinnustunda. Launakostnaður á framleidda einingu hækkaði um 8% það ár.

Nafnlaun á vinnustund, verðbólga og framleiðnivöxtur 2000–2025
Heimild: QMM-gagnagrunnur Seðlabankans, 28. september 2026

Mynd 1 sýnir jafnframt að framleiðnivöxtur hefur minnkað, úr 3,1% á ári að meðaltali 2000–2007 í 0,6% 2008–2016 og 0,9% 2017–2025. Svigrúm til raunlaunahækkana hefur þrengst að sama skapi. Nafnlaun á vinnustund hafa engu að síður hækkað hraðar en verðbólga og framleiðni samanlagt á fyrsta og síðasta tímabilinu.

Ef nafnlaun hækka hins vegar aðeins í takt við verðbólgu standa raunlaun í stað þótt framleiðni aukist. Launafólk nýtur þá ekki aukinnar verðmætasköpunar í hærri raunlaunum og bilið milli framleiðni og raunlauna breikkar jafnt og þétt. Ravi Batra (2024) hefur fært rök fyrir því að slík þróun geti skapað ójafnvægi milli heildarframboðs og heildareftirspurnar. Neysluvöxtur heimilanna verður þá háðari skuldsetningu ef aukinn hagnaður skilar sér ekki í nægri fjárfestingu eða annarri eftirspurn. Hitt getur líka gerst. Ef raunlaun hækka hraðar en framleiðni án þess að nægilegt efnahagslegt svigrúm sé fyrir hendi getur afkoma fyrirtækja versnað, verðbólguþrýstingur aukist og atvinnuöryggi veikst.

Mynd 2

Þrjár launastefnur og þróun launa-framleiðnibilsins

Skýringardæmi. Árleg verðbólga 2,5% og framleiðnivöxtur 2%. Upphafsgildi B er 100.

Þrjár launastefnur og þróun launa-framleiðnibilsins

Mynd 2 sýnir hvernig þrjár mismunandi launastefnur hafa áhrif á launa-framleiðnibilið yfir tuttugu ára tímabil. Ef nafnlaun fylgja aðeins verðbólgu hækkar B stöðugt þegar framleiðni eykst. Þróunin í bandarísku efnahagslífi undanfarna áratugi hefur nálgast þetta tilvik og hefur ýtt undir skuldsetningu, samfélagslegan ágreining og sviptingar í stjórnmálum. Ef laun fylgja bæði verðbólgu og framleiðni helst B nánast óbreytt. Hækki laun hins vegar meira en samanlagt verðbólga og framleiðni lækkar B. Það hefur einkennt íslenskan vinnumarkað á nokkrum tímabilum, svo sem á áttunda og níunda áratug síðustu aldar og á síðustu tveimur árum, og þannig aukið verðbólguhneigð hagkerfisins.

Fjórar stoðir sjálfbærrar launaþróunar

Reglan um verðbólgu að viðbættum framleiðnivexti er gagnleg, en hún er ekki ófrávíkjanlegt lögmál. Til að skilja betur hvenær laun geta hækkað meira eða minna þurfum við að skoða tvö atriði til viðbótar. Almennari launajafna er eftirfarandi.

Δln W = π + Δln A + Δln(Pʸ / P) − Δln Bʸ (3)

Hér er π verðbólga mæld sem lógaritmabreyting neysluverðs, Pʸ verðvísitala vergrar landsframleiðslu og Bʸ = Pʸ / ULC launa-framleiðnibilið mælt á verði innlendrar framleiðslu. Táknið Δln merkir lógaritmabreytingu milli tímabila.

Jafnan sýnir fjórar stoðir launaþróunar. Verðbólga ræður því hversu mikið nafnlaun þurfa að hækka til að varðveita kaupmátt. Framleiðnivöxtur skapar svigrúm til að auka kaupmáttinn. Breytingar á verði innlendrar framleiðslu miðað við neysluverð geta aukið eða minnkað svigrúm fyrirtækja. Loks getur lækkun Bʸ fært stærri hluta verðmætasköpunarinnar til launafólks og hækkun minni hluta.

B og Bʸ hafa sama nefnara, launakostnað á framleidda einingu. B ber hann saman við neysluverð, verðið sem launafólk greiðir, en Bʸ við verð innlendrar framleiðslu, verðið sem fyrirtækin fá. Munurinn á þeim er því verðfleygurinn Pʸ / P.

Jafna (3) sýnir þannig að B getur lækkað, það er raunlaun hækkað umfram framleiðni, af tveimur ólíkum ástæðum. Annars vegar getur verð innlendrar framleiðslu hækkað miðað við neysluverð, til dæmis vegna batnandi viðskiptakjara. Þá getur B lækkað án þess að Bʸ breytist og án þess að launakostnaður þrengi að afkomu fyrirtækja í sama mæli. Hins vegar getur launakostnaður á framleidda einingu hækkað hraðar en verðið sem fyrirtækin fá fyrir framleiðsluna, svo að Bʸ lækkar. Þá fær launafólk stærri hlut í …

Fáðu áskrift til að lesa

Áskrift að Vísbendingu hæfir þeim sem hafa gaman að óvilhöllum greiningum og gagn af greinargóðum upplýsingum um efnahagsmál, viðskipti og nýsköpun.

Næsta grein

Mest lesið
1
Húsnæðismál

Staða háskólamenntaðra á húsnæðismarkaði

2
Efnahagsmál

Hvert er markmið efnahagslífsins?

3
Aðrir sálmar

Nánast núll vöxtur

4
Efnahagsmál

Uppskeruhátíð hagfræðinga

5
Aðrir sálmar

Þjóðarhagsleg rekstrarhagfræði

6
Vinnumarkaður

Endalok pólska tímabilsins?

Framkvæmdir í Reykjavík
Efnahagsmál 36. tbl.

Hvað er sjálf­bær launa­þró­un?

Verðbólga, framleiðni og mörk launasvigrúmsins
Anti-Fascist Economics 2026 Isabella Weber
Efnahagsmál 36. tbl.

Póli­tísk­ar af­leið­ing­ar efna­hags­legr­ar óvissu

Lífskjarakrísan: Stýrivextir eru harkalegt tól í baráttunni gegn hækkandi verði á nauðsynjavörum
IMG_2494
Umhverfi 35. tbl.

Ís­lensk­ir jökl­ar á hverf­anda hveli

Loftslagsbreytingar hafa mikil áhrif á íslenska jökla. Vegna hlýnunar jarðar hafa jöklarnir minnkað mikið á síðustu áratugum. Ef ekkert verður gert til að draga úr hlýnuninni gætu margir þeirra horfið í framtíðinni.