Þegar reynt er að skilja úrsögn fyrrum borgarstjóra Besta flokksins og yfirlýstum sósíalista fyrir síðustu kosningar, úr þingflokki Viðreisnar í gær er fátt sem hönd á festir. Þó segist hann ætla að vera áfram í flokknum og styðja ríkisstjórnina, þingmaður utan flokka á þingi. Helst er kurteislega tilgreindur innri ágreiningur um stjórnarhætti eða skort á þeim og það að hafa ekki náð málum sínum fram, sem hann nefnir sérstaklega tengd málefnum barna í viðkvæmri stöðu.
Það virðist einboðið að þingmaðurinn, sem eitt sinn var einn ástsælasti borgarstjóri Reykjavíkur, treysti sér ekki, samvisku sinnar vegna, til þess að sitja aðgerðalaus undir því að fá ekki aukna fjármuni í málaflokka tengdum málefnum barna í viðkvæmri stöðu í fjárlagavinnu þingsins. Þar að baki verður að telja líklegustu skýringuna þá að neitun hafi komið frá hinum handvalda fjármálaráðherra formanns Viðreisnar. Sá situr í ráðherrastóli utanþings, þó hann setjist á ráðherrabekkinn til hliðar við forseta þingsins frammi fyrir þingmönnum.
Unanfarnar tvær vikur hefur ritstjóri fjallað hér í tveimur styttri greinum um markmið opinberra fjármála og tilgang efnahagslífsins sem hægt er að lesa í samhengi við leiðaraskrif í aðra sálma þær sömu vikur, um mikilvægi skilningsins um núllið og vandan við framleiðnina.
Vissulega er stöndugur efnahagur og rekstur ríkissjóðs mikilvægur, eins og hjá sveitarfélögum. En minna verður á að um fjármál hins opinbera í heild gilda þó ólík lög og reikningsskilareglur; varðandi hina þrjá ólíku þætti, ríkissjóðs, sveitarfélaga og opinberra fyrirtækja.
Framsýn leiðsögn stjórnenda efnahagsmála byggð frá rekstrarhagfræðilegum undirstöðum fyrir þjóðhagfræðilegar ákvarðanir hefur fengið aukið vægi í almennri umræðu þessa vikuna, þökk sé verðlaunatilkynningunni frá Stokkhólmi. En gera verður ráð fyrir að stjórnendur þeirra ákvarðana hér í Reykjavík þekki vel til þess mikilvægis og sinni því frekar en lát það sem vind um eyru þjóta. Það verkefni hinsvegar, að hlusta á vindinn, er gott að hafa í umsjá verðlaunaðra ljóðskálda.
--
Forsíðugrein vikunnar fjallar um verðlaun sænska seðlabankans til minningar um Alfreð Nóbel sem tilkynnt var um í vikunni, í bæði sögulegu ljósi og staðbundnu samhengi.
Seinni grein vikunnar fjallar um mikilvægi fjármála sveitarfélaga í sambandi við þjóðhagslega þætti og fjárfestingu.







