USD 124,8 -0,5%
EUR 137 -0,1%
GBP 163,6 -0,2%
DKK 18,3 -0,1%
SEK 12,2 0,2%
NOK 12,8 0,4%
CHF 149,7 -0,9%
CAD 87,7 -0,3%
JPY 0,8 -0,5%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,8%
Mannfjöldi 397.710
USD 124,8 -0,5%
EUR 137 -0,1%
GBP 163,6 -0,2%
DKK 18,3 -0,1%
SEK 12,2 0,2%
NOK 12,8 0,4%
CHF 149,7 -0,9%
CAD 87,7 -0,3%
JPY 0,8 -0,5%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,8%
Mannfjöldi 397.710
Til baka

Menn­ing­ar­eign­ir, Ís­land og Afr­íka

Benin_Bronzes_-_British_Museum_-_Joy_of_Museums_(cropped)

Íslenzk forsaga

Þið þekkið þetta: Frá 1262 laut Ísland fyrst norskum konungum og síðan dönskum. Heimastjórn fékkst 1904, fullveldi í konungssambandi við Danmörku 1918 og fullt sjálfstæði 1944.

Þegar Íslendingar voru loksins farnir að standa á eigin fótum, óskaði Alþingi formlega eftir því 1907 að fornum handritum, að mestu verkum sem samin voru á 12. og 13. öld (líkt og í Timbúktú!), yrði skilað frá Danmörku til Íslands. Danir streittust á móti og töldu handritin danska eign, enda hefðu einkasafnarar flutt þau til Danmerkur löngu fyrr. Íslendingar sögðu á móti að verkin væru samin af Íslendingum og óaðskiljanlegur hluti íslenzkrar menningararfleifðar. Samningaviðræður ríkisstjórnanna leiddu að lokum til þess að verulegum hluta handritanna var skilað frá Kaupmannahöfn til Reykjavíkur 1971-1986. Þar eru þau varðveitt af kostgæfni enn í dag.

Lykillinn að þessari farsælu lausn var snjallræði danska réttarheimspekingsins Alf Ross sem brá fyrir sig hugtakinu menningareign (d. kultureje). Rætur hugtaksins liggja í frönsku byltingunni og þeirri hugsun að mikilvæg listaverk og sögulegir gripir skuli varðveittir í almannaþágu en ekki einungis teljast eign konunga, aðals eða kirkju. Þó gerðu byltingarmenn og síðar herir Napóleons upptæk listaverk víða um Evrópu og utan hennar, oft með þeim rökum að Frakkland væri bezt til þess fallið að varðveita þau. Hvað sem því líður gerði hugtakið menningareign Ross kleift að greina skýrt á milli lagalegs eignarréttar, umráðaréttar og menningarlegra tilkalla. Þar lá kjarni málsins.

Ísland er einstakt meðal þjóða að því leyti að til eru ritaðar heimildir um landnám þess, þótt þær hafi að vísu ekki verið skráðar samtímis atburðunum og síðar hafi komið í ljós að þar sé fremur um skáldskap að ræða en sagnfræði. Þær eru þó að miklu leyti stórbrotinn bókmenntaarfur og þegar alls er gætt óaðskiljanlegur hluti íslenzkrar menningararfleifðar. Ross taldi því rétt að telja þær til íslenzkra menningareigna, eins og staðfest var með dönskum lögum 1965. Árnasafn, sem hafði varðveitt handritin í Kaupmannahafnarháskóla um aldir, hélt því fram fyrir dönskum dómstólum að afhending þeirra til Íslands jafngilti eignarnámi sem bæri að bæta. Hæstiréttur Danmerkur staðfesti hins vegar lögin og úrskurðaði endanlega 1971 að engar bætur skyldu greiddar fyrir handritin. Þar með var réttur Íslands til þessara menningareigna viðurkenndur.

Frá Íslandi til Afríku

Samkomulagið um skil mikilvægustu menningareigna Íslands heim frá Danmörku var merkur sögulegur atburður svo sem Sigrún Davíðsdóttir rekur í bók sinni Handritamálið í pólitísku samhengi (Kind, Reykjavík, 2026). Handritamálið á erindi við Afríku. Þar hafa kröfur um skil listaverka og menningargripa sem fluttir voru á brott á nýlendutímanum orðið að bitbeini í menningarsamskiptum milli ríkja. Að málinu koma ríkisstjórnir, konungsættir, hefðbundnir valdhafar, þjóðminjasöfn, háskólar, einkasafnarar og trúarstofnanir. Munurinn á eignarrétti og menningarétti er lykilatriði í deilum nútímans um afrísk listaverk í evrópskum og bandarískum söfnum.

Haagsamningurinn frá 1954 um vernd menningarverðmæta í vopnuðum átökum var gerður í kjölfar gífurlegrar eyðileggingar og ráns menningarverðmæta í síðari heimsstyrjöldinni. Í 1. grein samningsins er hugtakið menningarverðmæti skilgreint rúmt, óháð uppruna og eignarhaldi, og nær meðal annars til minnisvarða, fornleifastaða, listaverka, handrita, bóka og mikilvægra vísindasafna. Á eftir fylgdi samningur UNESCO frá 1970 um ráðstafanir til að banna og girða fyrir ólöglegan innflutning, útflutning og eigendaskipti á menningarverðmætum og síðan UNIDROIT-samningurinn frá 1995, sem styrkti lagaleg úrræði til að tryggja endurheimt og skil slíkra verðmæta. Þessir samningar eru meðal höfuðstoða nútímaréttar á þessu sviði.

Haagsamningurinn frá 1954 verndar menningarverðmæti óháð því hver á þau. Samningur UNESCO frá 1970 felur ríkjum hins vegar mikilvægt hlutverk við að skilgreina þau menningarverðmæti sem njóta verndar og hafa eftirlit með ólöglegum flutningi þeirra milli landa. Hvorugur samningurinn leggur þó almenna skyldu á ríki til að skila öllum gripum sem teknir voru á nýlendutímanum. Enn skipta miklu máli spurningar um upphaflegan eignarrétt, nauðung, lögmæti öflunar á sínum tíma og þá meginreglu að samningar hafi ekki afturvirk réttaráhrif. UNESCO viðurkennir raunar að kröfur nýfrjálsra ríkja um endurheimt gripa í vörzlu fyrrum nýlenduvelda hafi verið ein af ástæðunum fyrir samningnum frá 1970.

Deilurnar nú snúast því ekki aðeins um eignarrétt heldur einnig um breyttan skilning á nýlendusögunni og skyldur safna samtímans.

Þrennt þarf sérstaklega að greina í sundur.

  1. Skil til úrbóta og heimflutningur. Skil til úrbóta (e. restitution) fela jafnan í sér bætur fyrir fyrri óréttmæta töku, en heimflutningur (e. repatriation) merkir að gripum sé skilað til upprunalands eða upprunasamfélags án þess að þar með sé endilega skorið úr öllum álitamálum um lagalega ábyrgð.
  2. Eignarréttur og varzla. Evrópskt safn getur samþykkt að framselja eignarrétt en haft grip áfram í láni. Eins getur gripur verið fluttur aftur til Afríku án þess að deilan um eignarréttinn sé endanlega leyst.
  3. Uppkláruð skilamál og samningaviðræður enn í gangi. Sum þekkt mál eru að verulegu leyti til lykta leidd, til dæmis afhending Frakka á 26 konungsgripum til Benín 2021. Önnur snúast enn um kröfur, umdeild söfn eða óútkljáð fyrirkomulag um afhendingu fleiri gripa.

Dæmi um kröfur um skil menningareigna

Átta mál sýna hversu margþættar deilurnar eru. Í þeim öllum er skilum á gripum annaðhvort enn ólokið eða samningar og viðræður um frekari skil standa yfir. Upptalningin er engan veginn tæmandi.

1. Nígería – bronsgripirnir frá Benín

Nígería og Óba, hefðbundinn konungur í Benín, krefjast skila á þúsundum gripa sem brezkir hermenn rændu 1897. Söfn í Þýzkalandi, Hollandi, Sviss og Bandaríkjunum hafa afhent gripi eða eignarrétt að þeim, en mikill hluti þeirra er enn í Bretlandi. Brezka þjóðminjasafnið vísar til laga frá 1963 og býður lán fremur en eignarafsal. Deilt er einnig um hvort gripirnir skuli tilheyra ríkinu, konunginum eða opinberum söfnum.

2. Benín – …

Fáðu áskrift til að lesa

Áskrift að Vísbendingu hæfir þeim sem hafa gaman að óvilhöllum greiningum og gagn af greinargóðum upplýsingum um efnahagsmál, viðskipti og nýsköpun.
Mest lesið
1
Efnahagsmál

Um virði hagtalna

2
Umhverfi

Íslenskir jöklar á hverfanda hveli

3
Aðrir sálmar

Þrjár gráður

4
Efnahagsmál

Hvað er sjálfbær launaþróun?

5
Aðrir sálmar

Óheppileg orð

6
Efnahagsmál

Pólitískar afleiðingar efnahagslegrar óvissu


Vetur
Efnahagsmál 37. tbl.

Um virði hagtalna

Traust á opinberum hagtölum skiptir sköpum fyrir hagstjórn og ákvarðanatöku.