
Bæði forsætis- og fjármálaráðherra hafa lagt áherslu á hallalaus fjárlög á síðustu vikum. Markmiðið er að stöðva skuldasöfnun ríkissjóðs en ekki síður að stemma stigu við verðbólgu og gera Seðlabankanum kleift að lækka vexti. Þann 11. september sagði, t.d., fjármálaráðherra á Alþingi að aðhald ríkisfjármála væri framlag ríkisstjórnarinnar til að skapa skilyrði fyrir lægri verðbólgu og lægri vöxtum. Í kjölfar þess að Seðlabankinn spáði því að hallinn yrði 17 milljarðar á næsta ári hefur ríkisstjórnin síðan heitið því að skera útgjöld enn meira niður til þess að ríkissjóður verði rekinn hallalaus á næsta ári.
Seðlabankinn rekur einnig aðhaldssama stefnu um þessar mundir. Peningastefnunefnd Seðlabankans ákvað að halda meginvöxtum óbreyttum í 8,0% nú í nóvember þótt hagvaxtarhorfur hafi versnað og búist sé við auknum slaka í hagkerfinu. Peningastefnunefnd réttlætti óbreytta vexti með því að verðbólga og verðbólguvæntingar væru enn yfir markmiði bankans, að hækkun eldsneytisverðs á heimsmarkaði gæti aukið verðbólgu frekar í gegnum víxlverkun launa og verðlags, og að minni hagvöxtur á næsta ári og slaki í þjóðarbúinu sé lykillinn að lækkandi verðbólgu og verðbólguvæntingum á næsta ári.
Um fjármálastefnu
Hallalaus fjárlög geta falið í sér hvort sem er aukna eða minni eftirspurn í hagkerfinu, allt eftir því hvort hagkerfið er í uppsveiflu eða niðursveiflu. Í uppsveiflu fara skatttekjur vaxandi og afkoma ríkissjóðs batnandi óháð ákvörðunum ríkisstjórnar. Hið gagnstæða á við í niðursveiflu. Þannig getur verið halli á rekstri ríkissjóðs vegna þess að slaki er í hagkerfinu, atvinnuleysi fer þá vaxandi. Þess vegna er mikilvægt að huga að því hver afkoma ríkissjóðs væri við fulla nýtingu framleiðsluþátta, þegar hvorki er uppsveifla né niðursveifla. Þá er talað um sveifluleiðrétta afkomu ríkissjóðs.
Einnig verður að huga að því hversu stór hluti ríkisútgjalda fer í vaxtagreiðslur. Eðli máls samkvæmt auka vaxtagreiðslur ekki innlenda eftirspurn með sama móti og samneysla eða opinberar fjárfestingar. Gefum okkur sem dæmi að lífeyrissjóður eigi ríkisskuldabréf og fái þá vaxtatekjur af þeirri eign sem verða þá eingöngu til þess að auka arðsemi eigna sjóðsins og framtíðarlífeyri félagsmanna hans en ekki til þess að auka einkaneyslu eða fjárfestingu. Frumjöfnuður er afkoma ríkissjóðs fyrir vaxtatekjur og vaxtagjöld og það er frumjöfnuðurinn sem gefur almennt skýrari vísbendingu um bein eftirspurnaráhrif ríkisfjármála en heildarjöfnuðurinn.
Við getum tekið þetta saman á þann hátt að ríkisstjórn sem vill draga úr innlendri eftirspurn þarf að bæta sveifluleiðréttan frumjöfnuð og auka þannig aðhald ríkisfjármála. Samkvæmt fjárlagafrumvarpi frá því í september er áætlað að frumafgangur árið 2027 verði tæplega 100 milljarðar króna. Spá Seðlabankans um 17 milljarða viðbótarhalla felur því ekki endilega í sér að ríkissjóður sé að auka eftirspurn. Hallinn kann að endurspegla minni skatttekjur vegna aukins slaka í hagkerfinu, fremur en ákvarðanir ríkisstjórnar um aukin útgjöld. Seðlabankinn gerir ráð fyrir að boðaðar aðgerðir í fjárlagafrumvarpinu feli í sér aukið aðhald ríkisfjármála sem nemur 1% af landsframleiðslu (Sjá Peningamál 2026/4).
Af þeim grundvallaratriðum sem hér hafa komið fram má draga tvær ályktanir. Í fyrsta lagi er æskilegt að ríkissjóður sé að jafnaði rekinn þannig að skuldir hans vaxi ekki hraðar en landsframleiðslan og skuldahlutfallið fari því ekki hækkandi. Í öðru lagi geta hallalaus fjárlög í samdrætti falið í sér verulegt aðhald vegna þess að þá eru útgjöld lækkuð eða skattar hækkaðir til þess að mæta minnkandi skattstofnum.
Það er því ekki æskilegt að reka ríkissjóð hallalausan á hverju ári án tillits til árferðis. Þess í stað er æskilegt að leyfa sjálfvirkum sveiflujöfnurum að virka þannig að halli myndist í samdrætti og afgangur í uppsveiflu. Slík stefna er í samræmi við nýsetta stöðugleikareglu um ríkisfjármál.
En víkjum nú aftur að orðum forsætisráðherra og fjármálaráðherra sem hafa tilkynnt að fjárlög verði hallalaus á næsta ári þrátt fyrir veikari hagvaxtarspá Seðlabankans. Þau eru í raun að segja að sveifluleiðréttur frumafgangur af rekstri ríkissjóðs verði meiri og aðhald ríkisfjármála aukist þannig að áhrif sjálfvirkra sveiflujafnara á eftirspurn verði vegin upp með niðurskurði útgjalda. Ef samdrátturinn stafaði af ytri aðstæðum eða innlendri hagsveiflu væri slíkt ekki skynsamlegt. En minni hagvöxtur á næsta ári virðist að verulegu leyti stafa af peningastefnunni, háum vöxtum, sem er ætlað að draga úr eftirspurn og framkalla slaka í hagkerfinu til þess að laun og verðlag hækki minna og verðbólguvæntingar lækki. Aukinn frumafgangur ríkisins verður þá til þess að minnka eftirspurn og gera Seðlabankanum kleift að halda vöxtum lægri en ella og mögulega lækka þá á fyrri hluta næsta árs.
Aðhaldssöm fjármálastjórn sem ekki felst í skattahækkunum hefur hins vegar þann ókost að fresta þarf framkvæmdum eða minnka opinbera þjónustu, svo sem heilsugæslu.
Um peningastefnu
Hugum nú að peningastefnu. Með því að halda meginvöxtum óbreyttum í 8% hefur peningastefnunefnd ákveðið að lækka ekki nafnvexti þrátt fyrir versnandi hagvaxtarhorfur. Þar sem verðbólguvæntingar hafa jafnframt lækkað hefur raunvaxtastigið hækkað og aðhald peningastefnunnar því að þessu leyti aukist. Aðhaldssöm stefna bankans á þátt í minni eftirspurn og vaxandi slaka í hagkerfinu sem mun að öðru óbreyttu draga úr verðbólgu þegar fram líða stundir.
Unnt er að reikna raunvexti sem mismun nafnvaxta og mældrar verðbólgu, annars vegar, og sem vænta raunvexti sem eru jafnir mismun nafnvaxta og væntrar verðbólgu, hins vegar. Vænt verðbólga er mæld með því að kanna væntingar markaðsaðila og einnig með verðbólguálagi á skuldabréfamarkaði. Hér á eftir koma raunvaxtatölur.





