Hagfræði snýst í grunninn um velferð: hvernig takmörkuðum gæðum, sem oftast eru mæld í peningum, er ráðstafað til þess að samfélagið í heild hafi það sem best. Til þess þurfum við að vita hvernig sambandið milli tekna og velferðar lítur út. Þetta samband er grunnurinn að svo mörgu í hagfræði en er samt sem áður fremur illa skilgreint.
Oft er sagt að peningar kaupi ekki hamingju. Peningar eru samt sem áður forsenda flestra þeirra hluta sem skipta okkur máli: húsnæðis, matar, menntunar, öryggis og tíma með þeim sem okkur þykir vænt um. Spurningin er því ekki hvort peningar skipti máli fyrir velferð heldur hvernig, fyrir hverja og við hvaða aðstæður.
Í doktorsritgerð minni í hagfræði við Háskóla Íslands, Tekjur og velferð (2025), lagði ég upp með að finna skýr svör við þessari spurningu. Eftir því sem rannsókninni vatt fram kom í ljós að hún leiddi af sér aðrar og flóknari spurningar, ekki síst um þær forsendur sem liggja að baki því þegar við berum saman tekjur fólks. Niðurstaðan er í stuttu máli tvíþætt. Ekkert eitt samband er til milli tekna og velferðar. Og sú mynd sem hagtölur draga upp af lífskjörum okkar ræðst að verulegu leyti af ákvörðunum sem fáir gefa gaum.
Gömul spurning
Í inngangsnámskeiðum í eindahagfræði er gengið út frá því að meira af gæðum, sem keypt eru fyrir peninga, auki nytjar. Það er sanngjörn forsenda, en hún segir lítið um það hvernig sambandið lítur út. Kaupir hver króna sömu velferð fyrir alla? Skilar hver viðbótarkróna jafnmiklu og sú sem kom á undan? Skiptir bara máli hvað ég á mikið eða skiptir samanburðurinn líka máli?
Þessar spurningar eru ekki nýjar af nálinni. Adam Smith lýsti í The Theory of Moral Sentiments frá 1759 syni fátæka mannsins sem eyðir ævinni í að eltast við auð í von um hamingju. Sóknin snerist þó fremur um stöðu og álit annarra en raunverulega vellíðan. Jeremy Bentham gerði hámörkun hamingju að mælikvarða á rétta breytni og tengdi þannig efnahagslega hegðun við velferð. John Stuart Mill fjallaði síðan um minnkandi jaðarnyt tekna: hver viðbótarkróna bætir minna við velferð en sú sem kom á undan.
Árið 1974 setti Richard Easterlin fram þversögn sem enn er deilt um. Innan hvers lands eru tekjuhærri einstaklingar að jafnaði hamingjusamari en þeir tekjulægri. Þegar landsframleiðsla á mann vex yfir lengri tíma verður þjóðin hins vegar ekki endilega hamingjusamari. Ein skýringin er sú að hlutfallslegar tekjur skipti máli: velferð okkar ræðst ekki aðeins af því hve mikið við höfum heldur líka af því hvernig við stöndum miðað við aðra.
Ekkert eitt samband
Það er gagnlegt að hugsa um samband tekna og velferðar í þremur skrefum: fyrst um einstaklinginn, síðan heimilið og að lokum samfélagið.
Skoðum fyrst einstaklinginn. Fólk metur tekjuþarfir sínar (þ.e.a.s. hversu miklar tekjur það telur sig þurfa til að ná ákveðnu velferðarstigi) á ólíkan hátt, en það mat er ekki tilviljanakennt. Til dæmis sjáum við að þeir tekjuhærri telja sig þurfa hærri tekjur en tekjulægri hópar, og sömuleiðis þeir sem áður höfðu háar tekjur (Svavarsdóttir o.fl., 2024). Fólk aðlagast því að hafa vissar tekjur en hefur einnig væntingar um tekjur í framtíðinni, t.d. ef það hefur fjárfest í menntun. Á sama hátt er misjafnt hve næmt fólk er fyrir breytingum á tekjum, þ.e. hve mikið velferð þess eykst við hverja viðbótarkrónu. Þessi velferðarnæmni virðist þó síður ráðast af einkennum einstaklingsins sjálfs en af umhverfinu sem hann býr í, eins og vikið er að hér á eftir.
Samanburður við aðra skiptir einnig miklu. Rannsókn okkar á íslenskum gögnum sýnir að það hvernig fólk metur eigin stöðu í samanburði við aðra segir meira um hamingju þess en raunverulegar tekjur (Svavarsdóttir og Ásgeirsdóttir, 2023). Að telja sig verr settan en aðra dregur auk þess meira úr hamingju en það eykur hana að telja sig betur settan.
Næst er það heimilið. Stór hluti fólks býr með öðrum og deilir með þeim húsnæði, mat, rafmagni o.s.fr. Tveir fullorðnir þurfa því ekki tvöfalt hærri tekjur en einn til að búa við sömu lífskjör. Hve …






