USD 121,7 0,1%
EUR 136,2
GBP 162,7
DKK 18,2
SEK 12,2 -0,2%
NOK 13,0 0,2%
CHF 147,6 -0,2%
CAD 87,0 0,4%
JPY 0,8 0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
USD 121,7 0,1%
EUR 136,2
GBP 162,7
DKK 18,2
SEK 12,2 -0,2%
NOK 13,0 0,2%
CHF 147,6 -0,2%
CAD 87,0 0,4%
JPY 0,8 0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
Til baka

Stjórn­un og traust

sem hverfur í dulúðlegum ágreiningi stjórnarhátta

Framkvæmdir, húsnæði, bygging
Mynd: Davíð Þór

Þegar að forstjórar segja óvænt upp störfum, án þess að hafa orðið á í starfi, gerist það iðulega vegna tiltekinna ákvarðana stjórna. Þá verður stjórnunin í ákveðnu uppnámi, sem að stjórn ber ábyrgð á. Helsta hlutverk stjórna er almennt að hafa eftirlit með rekstri og stjórnarháttum en sérstaklega, ef þarf, að ráða (eða reka) forstjóra.

Það ástand sem skyndilega hefur skapast undanfarnar vikur í stjórnun tveggja kerfislega mikilvægra stofnana hérlendis er mun alvarlegra en af er látið á yfirborðinu. Þegar að forstjóri og framkvæmdastjóri lækninga á sérhæfðu sjúkrahúsi hætta störfum vegna ágreinings við stjórn, samtaka áhugafólks, þá er ekkert annað sjúkrahús sem getur tekið við sjúklingum.

Eins er það grafalvarlegt þegar að forstjóri Landsvirkjunar segir upp störfum skyndilega, að því er virðist vegna óútskýrðs ágreinings við stjórn um óútskýrða stjórnarhætti og stuttu síðar einnig fjármálastjóri. Báðar þessar stjórnirnar hafa nýverið tekið við völdum og forstjórarnir setið lengi og árangursríkt við stjórnveli.

Viðtal við forstjóra Landsvirkjunar í Kastljósi Ríkisútvarpsins í gær skýrir ágætlega hans hlið, þar sem fram kom að traust milli hans og stjórnar hafði rofnað. Það er eðlilegt að fjármálaráðherra sem fer með eignarhlut ríkisins og stjórnarformaðurinn sem hann hefur valið fyrirtækinu greini frá því hvaða breytingar þau vildu ná fram og forstjóri tapaði trausti út á.

Eins og málum er nú háttað er það óútskýrða atriði falið á bak við hugtakið stjórnarhætti, sem er mjög óeðlilegt að skýra ekki nánar. Þar að auki hefur á yfirborðslegan máta verið búið til nýyrðið fagstjórn sem forstjórinn fráfarandi tók ágætlega heim til föðurhúsanna í fyrrnefndu viðtali. Sú nýja stjórn hefði ekkert verið faglegri en fyrri stjórnir og að eðli málsins samkvæmt væru stjórnir Landsvirkjunar, sem skipaðar eru af ráðherra, ávallt pólitískar. Það að ekki sé upplýst hvað þeim, ráðherra og stjórnarformanni, gengur til gengur einfaldlega ekki.

--

Forsíðugrein vikunnar er eftir Gylfa Magnússon og fjallar um Pólland, sem líklega er mikilvægasta Evrópulandið fyrir íslenskan vinnumarkað.

Síðari grein vikunnar er eftir Ásgeir Daníelsson sem fjallar um mikilvægi skilnings á uppbyggingu vísitalna og hvernig þær eru settar saman, sem skiptir miklu fyrir íslenskan vinnumarkað.

Næsta grein

Mest lesið
1
Húsnæðismál

Staða háskólamenntaðra á húsnæðismarkaði

2
Opinber fjármál

Nýtt grunnviðmið fyrir stjórnarhætti opinberra aðila

3
Umhverfi

Ef Ísland væri borg á meginlandi Evrópu

4
Efnahagsmál

Til hvers eru opinber fjármál?

5
Aðrir sálmar

Evrópa og nýi heimurinn

6
Aðrir sálmar

Framleiðni og hallarekstur

Main_building_of_the_Royal_Swedish_Academy_of_Sciences_(Kungliga_Vetenskapsakademien),_Frescati,_Norra_Djurgården,_Stockholm
Efnahagsmál 33. tbl.

Upp­skeru­há­tíð hag­fræð­inga

Stóðumst við prófið, Wassily?

Þjóð­ar­hags­leg rekstr­ar­hag­fræði

Stöndugur efnahagur og burðugur rekstur hins opinbera
Reykjavíkurhöfn
Efnahagsmál 32. tbl.

Hvert er mark­mið efna­hags­lífs­ins?

Mikilvægi skilnings á samhengi og hugtökum
Reykjavík

Staða há­skóla­mennt­aðra á hús­næð­is­mark­aði

Ný könnun Félagsvísindastofnunar HÍ bendir til þess að háskólamenntun ein og sér tryggi ekki greiða leið inn á húsnæðismarkað. Flestir eignast að lokum eigið húsnæði, en leiðin þangað virðist orðin lengri og kostnaðarsamari en áður og byggist oft á stuðningi fjölskyldu, skuldsetningu og miklu vinnuframlagi.