USD 124,8 -0,5%
EUR 137 -0,1%
GBP 163,6 -0,2%
DKK 18,3 -0,1%
SEK 12,2 0,2%
NOK 12,8 0,4%
CHF 149,7 -0,9%
CAD 87,7 -0,3%
JPY 0,8 -0,5%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,8%
Mannfjöldi 397.710
USD 124,8 -0,5%
EUR 137 -0,1%
GBP 163,6 -0,2%
DKK 18,3 -0,1%
SEK 12,2 0,2%
NOK 12,8 0,4%
CHF 149,7 -0,9%
CAD 87,7 -0,3%
JPY 0,8 -0,5%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,8%
Mannfjöldi 397.710
Til baka

Sveifl­ur og leið­rétt­ing­ar

hagstjórnar og fjárlagastýringar

Hagsveifluleiðréttur frumjöfnuður var mikilvægt hugtak í mörgum fyrstu álitsgerðum fjármálaráðs sem hófu að berast fjárlaganefnd Alþingis fyrir áratug, eftir setningu nýrra laga um opinber fjármál. Álit ráðsins fjalla annars vegar um fjármálastefnur nýrra ríkisstjórna og hins vegar árlega fimm ára fjármálaáætlun hvers vors. Þær áætlanir eru þingsályktanir og eiga að marka ramma fjárlaga haustsins.

Nú er beðið eftir breytingum fjármálaráðuneytisins á frumvarpi til fjárlaga fyrir fyrri afgreiðslu þess úr fjárlaganefnd inn í aðra umræðu þingsins í næstu viku. Talsverðum vafa er undirorpið hvort það sé rétt meðferð þingræðis að framselja svo mikil áhrif til framkvæmdavaldsins.

Eftir fjármálahrunið, í einni mestu niðursveiflu efnahagslífsins, voru hin nýju lög um opinber fjármál samin með aðstoð frá Alþjóða gjaldeyrissjóðnum. Eftir það fjármálahrun voru valdir tveir utanþings ráðherrar í ríkisstjórn tiltektarinnar, en í þeim krappa dansi, var talið óumflýjanlegt að fjármálaráðherra væri lýðræðislega kjörinn. Meðan að efnahagsráðherra kom utanþings frá, að láni úr Háskólanum.

Í Evrópu er nú verið að semja um sjö ára fjármálaáætlun sambandsríkjanna og eins og Financial Times segir frá þá er að sjálfsögðu mikilvægt að ráðherrarnir sem semja geti réttlætt sínar gjörðir gagnvart kjósendum. Ef hægt er að semja um sameiginleg fjárlög tuttugu og sjö ríkja til sjö ára ætti það að vera góð áminning um lýðræðið fyrir fjármálaráðuneytið íslenska.

Á fullveldisdaginn væri gott tilefni að lesa aðeins um stjórnskipunina og átta sig á valdmörkum. Þingræðið er hvorki bundið stjórnarháttareglum Viðskiptaráðs né til skrauts. Fullvalda land getur ekki falið fjármálaráðuneytinu svo mikil völd að það segi fjárlaganefnd þingsins fyrir verkum, eins og einhver yfirstjórn. Sé sú raunin, verður að leiðrétta það – alveg óháð hagsveiflunni.


Í tilefni fullveldisdagsins í næstu viku birtum við áhugaverða grein Þorvaldar Gylfasonar um hugtakið menningareign í samhengi við Afríku. Greinin vísar til merkrar bókar Sigrúnar Davíðsdóttur um Handritamálið í pólitísku samhengi sem kom út hérlendis í haust.

Í tilefni efnahagsástandsins setur Gylfi Zoega fram mjög skýra og upplýsandi þanka um hagstjórn; fjármálastefnu og peningastefnu og blöndun þeirra. Þar er mikill lærdómur sem rétt er að minna lærða hagfræðinga á að rifja upp, svo sveifluleiðrétting frumjöfnuðar gleymist ekki í hagstjórn.

Mest lesið
1
Efnahagsmál

Um virði hagtalna

2
Umhverfi

Íslenskir jöklar á hverfanda hveli

3
Aðrir sálmar

Þrjár gráður

4
Efnahagsmál

Hvað er sjálfbær launaþróun?

5
Aðrir sálmar

Óheppileg orð

6
Efnahagsmál

Pólitískar afleiðingar efnahagslegrar óvissu


Vetur
Efnahagsmál 37. tbl.

Um virði hagtalna

Traust á opinberum hagtölum skiptir sköpum fyrir hagstjórn og ákvarðanatöku.