Traust á opinberum hagtölum skiptir sköpum fyrir hagstjórn og ákvarðanatöku.
Rýrni traust á íslenskum hagtölum gæti það kostað þjóðarbúið margfalt það sem kostar að framleiða þær. Sameiginlegt gæðakerfi fyrir alla opinbera tölfræði er hagkvæmasta leiðin til að verja þetta virði.
Því hefur verið haldið fram að dreifð útgáfa opinberrar tölfræði feli í sér óhagkvæma ráðstöfun á takmörkuðum aðföngum ríkisins. Í skýrslu hagtalnanefndar um áskoranir og tækifæri í umgjörð hagtölugerðar á Íslandi
Nefndin bendir einnig á að fjölbreytt miðlun opinberrar tölfræði sé óhjákvæmilegur þáttur í nútímasamfélagi. Gott aðgengi að opinberum tölum er nauðsynlegt fyrir stefnumótun, ákvarðanatöku og mat á áhrifum ákvarðana. Margar þeirra stofnana sem gefa út tölfræði gera það vegna þess að lög þeirra kveða á um það
Það er því eðlilegt að spyrja í hverju nákvæmlega hið ætlaða óhagræði felst. Í skýrslu hagtalnanefndar er ekki að finna neina fjárhagslega greiningu sem styður þá tillögu að gagnamál ríkisins og aðgengi að gögnum þess væru betri ef færri stofnanir birtu tölfræði, né heldur mat á ávinningi þess að færa útgáfuna alla á hendur einnar stofnunar, til dæmis Hagstofu Íslands. Þá veit höfundur þessarar greinar heldur ekki til þess að aðrir hafi birt slíka greiningu fyrir Ísland. Þessi pistill er tilraun til þess að styrkja þau sjónarmið sem gætu legið til grundvallar þeirri tillögu að samhæfð útgáfa opinberrar tölfræði sé ekki bara skynsamleg nýting á fjármunum ríkisins, heldur að hún skili samfélaginu beinum fjárhagslegum ábata með því að búa til og viðhalda trausti á upplýsingum sem notaðar eru til ákvarðanatöku við hagstjórn, og á frjálsum mörkuðum.
Hvað kostar glatað traust?
Í apríl 2026 kom út vinnuritgerðin The Value of Reliable Statistics í National Bureau of Economic Research (NBER) eftir hagfræðingana Nicholas Bloom, Erica Groshen, Duncan Hobbs og Michael Strain
Rétt er að benda á tvennt varðandi þessa niðurstöðu. Í fyrsta lagi er hún mat á virði í húfi ef traust rýrnar, sett fram sem hlutfall af fjárveitingu framleiðandans. Hún er ekki mat á ávöxtun af hverjum viðbótardollara (eða krónu) í útgjöldum og ætti ekki að vera sett fram sem slík. Í öðru lagi byggist hún á einum atburði í einu landi. Það sem gerir greininguna aftur á móti gagnlega er ekki hin tölulega niðurstaða, heldur orsakakeðjan sem hún lýsir. Hana má hæglega yfirfæra á aðstæður annarra ríkja enda er hlutverk opinberrar tölfræði svipað hvar sem er í heiminum.
Orsakakeðjan er þessi. Í greiningunni er gengið út frá því að meginhlutverk opinberrar tölfræði sé að minnka óvissu, eða – eins og höfundarnir orða það: að milda neikvæð áhrif óvissu við hagstjórn og ákvarðanatöku á mörkuðum. Nú eru það kannski ekki nýjar fréttir að það sé hlutverk opinberrar tölfræði að leggja til áreiðanlegar upplýsingar fyrir ákvarðanir hagstjórnaraðila og annarra stefnumótandi aðila
Þegar traust á opinberri tölfræði minnkar felur það í sér að óvissa um tölurnar verður að óvissu um hvort ákvarðanir séu réttar sem aftur leiðir það af sér að fjárfestingarákvörðunum er frestað eða þeim aflýst. Hér er rétt að leggja áherslu á að þetta á ekki aðeins við um fjárfestingar á fjármálamörkuðum heldur einnig ráðningar, þjálfun og aðrar ákvarðanir sem tengjast rekstri fyrirtækja og stofnana. Sú framleiðsla sem tapast vegna seinkaðra, varfærinna eða aflýstra ákvarðana er það sem skilar tölu sem nemur margfaldri fjárveitingunni til opinberrar tölfræði.
Afleiðingar fyrir framleiðslu opinberrar tölfræði
Sé fallist á að meginhlutverk opinberrar tölfræði sé að milda skaðleg áhrif óvissu á efnahags- og markaðsákvarðanir má gefa sér tvennt í kjölfarið:
Mikilvægasta hlutverk framleiðanda opinberrar tölfræði er að minnka þá óvissu sem er eðlislæg öllum mælingum á hagfélagslegum fyrirbærum. Sérhver gagnagrunduð ákvörðun hvílir á forsendu, oft óyrtri, um eitthvert orsakasamhengi. Framleiðendur verða því að geta útilokað galla í gögnum og kerfisbundnar skekkjur sem skýringar á niðurstöðu, svo að stjórnvöld og fjárfestar geti dregið ályktanir um orsakir.
Sömu kröfu verður að gera til allrar opinberrar tölfræði. Tölfræði sem ekki er unnin samkvæmt viðmiðum sem miða að því að draga úr óvissu og miðla því hvernig það hefur verið gert, bætir ekki við neinum haldbærum upplýsingum heldur einungis óvissu með því að birta ólíkar og oft mótsagnakenndar tölur um sömu málefni.
Áskoranir opinberrar tölfræði á Íslandi
Áskoranirnar sem opinber tölfræði stendur frammi fyrir í Bandaríkjunum eru ekki þær sömu og á Íslandi. Það þýðir þó ekki að Ísland hafi ekki sín eigin dæmi um opinberar tölur sem valda óvissu, og um kostnaðinn sem af henni hlýst.
Í október 2024 sýndi vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands til dæmis að árstíðarleiðrétt atvinnuleysi hefði um það bil tvöfaldast milli ágúst og september. Sama dag brást Vinnumálastofnun við með því að benda á að skrá hennar yfir bótaþega sýndi enga slíka aukningu og rakti muninn til ólíkrar aðferðafræði
Annað, og ef til vill alvarlegra, dæmi er óvissan sem skapaðist um mynstur endurskoðana á þjóðhagsreikningum á árunum 2021-2024. Seðlabanki Íslands gagnrýndi þá umfang endurskoðana Hagstofu Íslands á undirliðum þjóðhagsreikninga á þessu tímabili sem „…getur torveldað mat á efnahagsaðstæðum og spár um framvindu efnahagsmála auk þess að gera alla hagstjórn erfiðari“
Þetta er ágætt dæmi um þá orsakakeðju sem lýst er í vinnuritgerð Bloom o.fl. Þar sem bankinn ákveður stýrivexti á grundvelli þessara talna berst óvissa í tölfræðinni beint inn í peningastefnu bankans vegna þess að stærðargráða endurskoðana er svo stór að bankinn getur ekki lesið raunþróun efnahagsmála úr mælingunni. Þetta dæmi má skilja sem brest í fyrsta hlekk orsakakeðjunnar sem lýst er hér að ofan.
Hér er ekki verið að halda því fram að óvissa vegna pólitískra afskipta af gerð opinberrar tölfræði sé jafngild tölfræðilegri óvissu. Pólitísk inngrip eru mun alvarlegri, enda koma áhrif þeirra strax fram og gætir lengi
Á bandaríska dæmið við um Ísland?
Við skulum þó ekki láta sem þessi mál hafi haft í för með sér kostnað sem er sambærilegur við þann sem Bloom o.fl. meta fyrir Bandaríkin, og líklega væri ógerlegt að meta …







