
Árið 1994, þegar samningurinn um evrópska efnahagssvæðið, EES, gekk í gildi og íslensku landamærin voru opnuð fyrir íbúum ESB voru erlendir ríkisborgarar 1,8% íbúa Íslands en í ár er hlutfallið komið upp í 17,9%. Erlendum ríkisborgurum á Íslandi hefur fjölgað um 66 þúsund á þessu tímabili en íslenskum ríkisborgurum fjölgað örlítið minna eða um 63 þúsund. Margir innflytjendur verða fyrr eða síðar íslenskir ríkisborgarar og því er líka gagnlegt að skoða íbúatölur eftir fæðingarlandi. Frá 1998 hefur þeim íbúum landsins sem fæddir eru utan þess fjölgað um 77 þúsund en þeim sem búa hér og eru fæddir hér fjölgað um 45 þúsund.
Þetta er spegilmyndin af eldri fólksflutningum, frá Íslandi. Á ríflega hálfri öld, frá 1872 til 1924, fluttu 21,8% landsmanna úr landi, umfram þá sem fluttu til landsins. Flestir þeirra voru vesturfararnir, þ.e. fóru til Kanada eða Bandaríkjanna. Aðstreymið frá miðjum tíunda áratugnum, líka í vesturátt en nú til Íslands, hefur verið nokkurn veginn jafnmikið, í hlutfalli við fólksfjölda í landinu.
Breytt samfélag
Þessir fólksflutningar hafa vitaskuld haft mikil áhrif á íslenskan vinnumarkað, efnahagslíf, lýðfræði og raunar samfélagið allt sem ekki verður reynt að rekja hér. Mjög erfitt hefur reynst að spá fyrir um flutningana sem hefur gert flestar ef ekki allar fólksfjöldaspár mjög hratt kolrangar. Það hefur svo aftur búið til ýmsa flöskuhálsa þegar eftirspurn eftir t.d. húsnæði eða menntun fyrir nemendur með annað móðurmál en íslensku hefur aukist mjög hratt.
Þótt ekkert hafi gengið að spá fyrir um fólksflutningana til þessa er þó augljóst hver helsti drifkrafturinn er, þ.e. góð atvinnutækifæri og hærri kaupmáttur hér en í ýmsum öðrum löndum innan EES. Langstærsti hópur innflytjenda hefur komið frá Póllandi og nú eru 5,9% íbúa Íslands með pólskt ríkisfang (sama hlutfall eru fæddir þar). Einnig hafa stórir hópar komið frá Litháen (1,2%), Úkraínu (1,2%), Rúmeníu (1%) og Lettlandi (0,6%). Öll þessi lönd, nema Úkraína, eru í ESB og þar með EES og íbúarnir hafa því getað flutt hingað á grundvelli EES samningsins frá því að löndin gengu í ESB. Allt eru þetta lönd sem hafa verið með töluvert lakari efnahagsleg skilyrði en Ísland, hvort heldur mælt er með kaupmætti eða landsframleiðslu á mann.
ESB aðildin breytti miklu um fólksflutning frá þessum löndum til Íslands. Þannig gekk t.d. Pólland í ESB og þar með EES árið 2004. Þá voru um 1.856 íbúar Íslands með pólskt ríkisfang en næstu þrjú ár fluttu 8.348 fleiri Pólverjar til Íslands en frá því. Við hrunið fækkaði aðeins Pólverjum á Íslandi en frá og með 2012 tók þeim að fjölga aftur og árin 2016 til 2018 fluttu 6.529 fleiri frá Póllandi til Íslands en fóru í hina áttina. Svipað mynstur sést í fólksflutningum til Íslands frá Litháen og Lettlandi, þótt tölurnar séu lægri enda miklu fámennari lönd en Pólland. Í hlutfalli við fólksfjölda í þessum Eystrasaltsríkjum eru þessir flutningar þó mun meiri en frá Póllandi. Fólksflutningar til Íslands frá Rúmeníu hófust ekki að ráði fyrr en nokkru síðar en landið gekk ekki í ESB fyrr en 2007.
Mannfjöldi eftir fæðingarlandi, kyni og aldri 1. janúar 1998–2026
Danmörk freistar enn
Aðdráttarafl lífskjaranna sést líka ágætlega á því að meðan flutningsjöfnuðurinn hefur verið jákvæður milli Íslands og Póllands, Eystrasaltsríkjanna, Rúmeníu o.fl. láglaunalanda innan ESB hefur hann …







