USD 124,8 -0,1%
EUR 137,2 0,1%
GBP 164,2 -0,2%
DKK 18,4 0,1%
SEK 12,3 0,1%
NOK 12,9 -0,3%
CHF 148,1 -0,1%
CAD 87,3
JPY 0,8 -0,4%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 397.710
USD 124,8 -0,1%
EUR 137,2 0,1%
GBP 164,2 -0,2%
DKK 18,4 0,1%
SEK 12,3 0,1%
NOK 12,9 -0,3%
CHF 148,1 -0,1%
CAD 87,3
JPY 0,8 -0,4%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 397.710
Til baka

Ó hve glöð er vor ...

... æska var eitt sinn sungið

Peningastefnunefnd! Hún telur okkur vera á toppnum. Seðlabankastjóri sagði nýútkomin Peningamál á miðvikudag vera einhver þau bestu sem sést hefðu, þegar vöxtunum var haldið óbreyttum í 8% með um 6% verðbólgu og atvinnuleysi meira en meðaltal OECD landanna. Á Peningamálafundi Viðskiptaráðs daginn eftir gengu þau orð milli manna eftir framsögu hans að hún hefði verið einskonar skemmtiatriði eða gamanmál.

Bankastjóri Landsbankans varaði síðan við því í pallborðsumræðum þar að vextir yrðu lækkaðir of fljótt. Lesendur eru minntir á það að stýrivextir eru einmitt þeir vextir sem viðskiptabönkunum eru skaffaðir á innlánin hjá Seðlabanka, án þess að bankinn sá þurfi mikið á þeim lánum að halda. Hvort þeim háu vöxtum er beint að því að hemja lítinn hagvöxt, eða auka atvinnuleysi enn frekar er óljóst. En sé markmiðið nú vaxandi hagvöxtur á mann má vissulega ná honum upp í frosnu hagkerfi með því að hrekja fólk úr landi.

Þar dugar þó varla ný löggjöf um að leggja himinhá skólagjöld á erlenda nema, utan evrópska efnahagssvæðisins. En með öðru frumvarpi um hækkuð framfærsluviðmið fyrir útlendinga sem hingað vilja flytjast verður líklega aðeins úr að moða milljónamæringum sem myndu geta komið hingað til lands að leggja stund á forníslensk fræði eða jarðvísindi.

Þá hefur samhliða verið kynnt til sögunnar merk ný kenning seðlabankastjórans í þá veru að atvinnuleysi sé í raun pólitískt fyrirbæri, samkvæmt orðum hans í vikunni. Sé of auðvelt að komast á atvinnuleysisbætur þá leiti vinnandi fólk í þær. Þessi orð stangast þó á við kenningar varaseðlabankastjórans sem hélt fram þeirri staðhæfingu hróðugur að seðlabankanum hefði tekist að búa til nægilegt atvinnuleysi til að hræða verkalýðshreyfinguna frá uppsögn kjarasamninga. Lesendum er látið eftir að meta hvort þarna sé innra rof á milli manna í peningastefnunefndinni, eða hvort rofið sé mögulega á milli nefndarinnar og raunhagkerfisins um rót atvinnuleysis.


Forsíðugrein vikunnar fjallar um þá lykilspurningu hagfræðinnar hvort að peningar kaupi velferð – sem byggir á doktorsritgerð frá hagfræðideild Háskóla Íslands síðan í fyrra. Þar kemur Adam Smith við sögu og fyrri bók hans um grandvarar skoðanir sem er mikilvæg forsenda auðlegðar þjóða.

Síðari grein vikunnar fjallar um mun áhættu og óvissu í gamals anda Frank Knight út frá ástandi gervigreindarinnar í heiminum nú um stundir en Adam Smith kemur einnig við sögu og hulda höndin hans.

Mest lesið
1
Vinnumarkaður

Endalok pólska tímabilsins?

2
Aðrir sálmar

Stjórnun og traust

3
Vinnumarkaður

Ofmetur launavísitalan þróun launa?

4
Efnahagsmál

Um virði hagtalna

5
Umhverfi

Íslenskir jöklar á hverfanda hveli

6
Aðrir sálmar

Þrjár gráður


Vetur
Efnahagsmál 37. tbl.

Um virði hagtalna

Traust á opinberum hagtölum skiptir sköpum fyrir hagstjórn og ákvarðanatöku.
Framkvæmdir í Reykjavík
Efnahagsmál 36. tbl.

Hvað er sjálf­bær launa­þró­un?

Verðbólga, framleiðni og mörk launasvigrúmsins
Anti-Fascist Economics 2026 Isabella Weber
Efnahagsmál 36. tbl.

Póli­tísk­ar af­leið­ing­ar efna­hags­legr­ar óvissu

Lífskjarakrísan: Stýrivextir eru harkalegt tól í baráttunni gegn hækkandi verði á nauðsynjavörum