
Íslendingar gætu lifað í framtíðinni á eina kalda blettinum á heimskringlunni ef að AMOC veltihringrásin bregst. En það er ekki góð stefna til að forða jöklunum okkar frá bráðnun að vonast til þess að hafstraumarnir riðlist. Ekki er heldur góð leið að reyna að ná markmið okkar innan Parísarsamkomulagsins með því að senda falskar tölur úr landi.
Í báðum tilfellum, kólnunar og hlýnunar, eru það aðgerðir mannskepnunnar sem að valda hörmungunum. Johan Rockström, einn fremsti vísindamaður heims á sviði sjálfbærni og þolmarka jarðarinnar, hélt erindi fyrir fullum sal í Háskólabíó fyrr í mánuðinum sem vert er að hvetja lesendur til að horfa á. Þar klappaði allur salurinn þegar hann taldi eitt mikilvægt framlag háskóla til að takast á við loftslagsvána að hætta að útskrifa hagfræðinga og stjórnendur fyrir viðskiptalífið sem að ekki skildu áhrif gjörða mannsins á plánetuna (e. anthropocentric).
Samdráttur í losun aðildarríkja Parísarsamkomulagsins hefur aðeins verið um tíund af því sem nauðsynleg er, eða um 6% en ekki þau 60% sem þarf til að markmið um 1,5 gráðu hlýnun náist. Raunar jókst losun hérlendis, og er þar ekki hægt að kenna um misskilningi stjórnvalda á alþjóðlegum hugtökum.
Evrópusambandið hefur því hafið gerð reglna til þess að lönd sambandsins undirbúi þriggja gráðu hækkun meðalhitastigs fram til ársins 2100 til þess að vera viðbúin hinu versta þó vinna verði samhliða hörðum höndum að því að komast sem lengst frá þeirri hlýnun sem nú stefnir í 2,8 gráður og í markmiðið um helming hennar.
Hlýnunin er orðin að svo alvarlegu heilbrigðisvandamáli að vísindamenn hafa kallað eftir því að lýst verði yfir neyðarástandi í framhaldi af nýlega uppfærðri skýrslu á vegum vísindaritsins Lancet sem birt var í vikunni. Alþjóða heilbrigðismálastofnunin WHO tekur undir áhyggjurnar.
En í Evrópu voru um 50.000 ótímabær dauðsföll síðastliðið sumar rakin til hlýnunarinnar, sem að sló fyrra met í hitabylgjum frá árinu 2022 þar sem fórnarlömbin voru 29.000. Á heimsvísu eru tölur fyrir árið 2023 á þann veg að rekja megi yfir hálfa milljón dauðsfalla til hlýnunarinnar. En þá eru ekki tekið með í reikninginn dauðsföll vegna mengunar eða annarrar umhverfisvár. Auk hins líffræðilega fjölbreytileika vistkerfa heimsins sem deyr út á ógnarhraða.
--
Ítarleg forsíðugrein vikunnar eftir Helga Björnsson jöklafræðing fjallar um rýrnun jöklanna okkar vegna hnattrænna loftslagsbreytinga í sögulegu ljósi og allt fram á næstu öld.
Þar er birt kort sem sýnir Vatnajökul og helstu skriðjökla með nýrri útlínu sem að dregur upp gróflega skissu að mögulegum jaðri hans eftir eina öld ef ekki dregur úr hlýnun jarðar.
Rétt er einnig að benda á nýlega grein hér í Vísbendingu eftir Andra Snæ Magnason sem hélt inngangserindi að ofannefndum fyrirlestri Johan Rockström og hina nýju heimildarmynd National Geographic um tímann og vatnið.







