USD 121,4 0,4%
EUR 138
GBP 160,5
DKK 18,5
SEK 12,3 0,1%
NOK 12,8 0,1%
CHF 146,7 -0,2%
CAD 86 0,2%
JPY 0,8 -0,2%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,6%
Mannfjöldi 396.500
USD 121,4 0,4%
EUR 138
GBP 160,5
DKK 18,5
SEK 12,3 0,1%
NOK 12,8 0,1%
CHF 146,7 -0,2%
CAD 86 0,2%
JPY 0,8 -0,2%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,6%
Mannfjöldi 396.500
Til baka

Ef Ís­land væri borg á meg­in­landi Evr­ópu

Að fenginni Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti

77a0620
Mynd: Víkingur

Að fenginni Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti

Ef Ísland væri 400.000 manna borg í Evrópu, einhversstaðar við strandlengjuna á milli Tromsö og Palermo þá væri Ísland í c.a. 140. sæti yfir stærð borga miðað við mannfjölda en væri hins vegar óvenju öflug borg á ýmsa aðra mælikvarða. Ísland væri ein mesta fiskveiðiborgin ekki aðeins í Evrópu heldur heiminum öllum, þar sem landað væri um 1% af öllum fiski sem mannkynið veiðir. Hún væri ein mesta málmiðnaðarborgin með milljón tonna árlega framleiðslu af áli og eitthvað af kísiljárni (þótt ekkert af þessu væri í eigu borgarbúa). Hún væri ein vinsælasta ferðamannaborgin miðað við höfðatölu með rúmlega fimm ferðamenn á hvern íbúa og við erum ofarlega í heiminum hvað varðar fjölda ferðamanna á haus. Ísland væri öflug flugrekstrarborg með óvenju marga tengda áfangastaði og borgin væri umkringd landbúnaðarhéraði sem fullnægir þörfum íbúa fyrir mjólk og kjöt. Hún væri líka ein mesta orkuborgin, með heildarraforkuframleiðslu á við milljónaborgir og þá væri jarðvarminn og orkan sem býr í heitu vatni ekki meðtalin. Þá væri hún líklega í efsta sæti hvað orkuframleiðslu varðar. Svo væru hér um 500.000 tonn af hreinu vatni á hvert mannsbarn. Þessi borg væri þar að auki nokkuð sýnileg á sviðum bókmennta og lista með sitt eigið tungumál svo fátt eitt sé nefnt.

Ef við værum borg í Evrópu væri mannfjöldinn nærri Talllinn, Flórens, Bologna, Bochum og Lyon. Evrópa á margar blómlegar borgir en fæstar þeirra gætu nefnt einn af þessum þáttum, hvað þá alla fimm. Fisk, orku, ferðamenn, málm og menningu.

Forgjöf náttúrunnar

Flest af því sem að ofan er talið er forgjöf sem náttúran færir okkur, og í því felst talsverð ábyrgð, að umgangast náttúruna á ábyrgan hátt. Það gerir líka kröfur til okkar sem íbúa í lýðræðisríki – að þekkja landið og auðlindirnar.

Það er svo sérkennilegt að eftir að við erum orðin stærst í einhverju, þegar við tökum mest á mann, þá er eins og það veiti okkur ekki tækifæri til að vera rausnarleg þegar kemur að verndun eða friðun, þá er eins og menn setji sér í staðinn markmið um að tvöfalda það sem þegar er orðið margfalt á við það sem nágrannaþjóðir nýta. Þegar aðrar þjóðir ná sambærilegum lífsgæðum með 20% af orkuframleiðslu okkar – þá látum við eins og frekari nýting sé forsenda lífsgæða og framfara og málefnið jafnvel svo brýnt að lögum og reglum er breytt til að þjóna offorsinu.

Sorgin í þekkingunni

Sigríði í Brattholti varð það á að þekkja fossinn sinn og þurfti þar með að eiga margar andvökunætur, vegna þess að hún þurfti að berjast fyrir verndun hans. Þeir sem hafa fengið verðlaunin á undan mér hafa margir hverjir átt svipaðar andvökunætur, vegna þess að oftar en ekki hafa augljós verðmæti og stórkostleg fegurð verið í hættu hér á landi og þeim sem hafa talað fyrir náttúrunni hefur verið mætt með óvild og jafnvel alefli. Einhverju sinni var ég á fundi svipuðum þessum og maður nærri mér dæsti kaldhæðislega og sagði: ,,Ég ætla ekki kenna börnum mínum að þekkja neina staði, ég ætla ekki að kenna þeim nein gildi, ekkert um umgengni við landið, hvað þá nöfn á fuglum, það er bara ávísun á vonbrigði. Ísland er einn stór biðflokkur, náttúran er bara hér þangað til einhverjum dettur í hug að ræsa jarðýtuna."

Við tökum því sem gefnu að sá sem elst upp á Íslandi sé tengdur við landið sitt. Við höfum séð tölur úr Pisa könnuninni um árangur í náttúruvísindum – við höfum tekið umræðuna um læsi, en við erum með fleiri skynfæri og fleiri leiðir til að skilja náttúruna og það má spyrja hvernig við stöndum okkur á því sviði. Miðað við þær gjafir sem náttúran gefur okkur, hvort við stöndum undir ábyrgðinni.

Lokaðar bækur

Kona hafði samband við mig um daginn – hún fer með 6000 bresk ungmenni árlega í jöklagöngur á Íslandi. Um leið og hún fagnaði því að geta kynnt undur jöklanna fyrir svo stórum hópi ungmenna – þá sagði hún að það væri algert frávik ef hún fengi íslenskan hóp og spurði sig hvernig stæði á því. Að við sem búum við fótskör jöklanna nýttum þá ekki til að kenna unga fólkinu.

Það er eitt að standa okkur illa á bóklega sviðinu, en sem manneskjur, með augu, eyru, fingur og nef – þá eru jöklar Íslands lokuð bók fyrir meirihluta íslenskra ungmenna. Jöklar þekja næstum 10% landsins, ef jöklarnir væru smurðir yfir landið eins og rjómi á marenstertu, þá værum við öll undir 30 metrum af ís, en við leyfum þessum undrum að fara alveg framhjá heilu kynslóðunum, jafnvel síðustu kynslóðunum sem gæti upplifað jökla og finnst einhvernveginn sjálfgefið að ef lögheimilið sé ,,ís-land" þá fylgi því meðfæddur skilningur.

Ísland er 88% haf

Ísland er land en ef við tökum 758.000 km2 efnahagslögsöguna með þá er Ísland að mestu leyti haf. Fáar þjóðir eiga jafn mikið hlutfallslegt haf, Ísland er líklega meira en 88% haf ef við horfum á alla lögsöguna. Og ef við skoðum það sem býr í djúpinu þá er það svo margfalt fjölbreyttara en lífið á landi. En ef við skoðum efniviðinn, furðufiska, seli, hvali, kóralla og sjófugla - þá ætti íslenskt 12 ára gamalt barn að vera með æði fyrir fiskum, rétt eins og amerískur krakki elskar risaeðlur. Barnið ætti að þrá að verða sjávarlíffræðingur og eiga að minnsta kosti 10 uppáhalds hvalategundir.

En maður veltir fyrir sér hvort staðan sé þannig. Hversu margir íslenskir krakkar hafa séð hval? Og hversu fáir sem hafa náð unglingsaldri hafa gengið skrefinu lengra og kannski snorklað í vík eins og í Gróttu? Getur verið að mjög fáir íslenskir skólakrakkar fari í hvalaskoðun á meðan tugþúsundir erlendra barna eru úti á sundunum á hverju ári? Getur verið að það sé ekki sjálfgefið að tengjast hafinu þótt maður fæðist á Íslandi og fari gegnum fulla skólagöngu?

Að drepa eins og minkur

Og þá veltir maður fyrir sér nú þegar næstum 90 langreyðar hafa verið skotnar, án þess að markaður sé fyrir kjötið, semsagt – án þess að fjárhagslegur grundvöllur sé fyrir drápinu, án þess að nokkur manneskja ætli sér að borða þetta allt saman. Þá veltir maður auðvitað fyrir sér ekki aðeins náttúrulæsi, heldur fjármálalæsi og síðan læsi á tíðarandann í heiminum. Hvað á að gera við fimm milljón kíló af hvalaafurðum? Næstum 50 kíló á hverja fjölskyldu á Íslandi? Er það vegna þess að við erum svo tengd hafinu og upprunanum. Eða er það vegna þess að við erum ótengd, höfum engann áhuga á því að hér í kringum okkur eru næststærstu dýr sem jörðin hefur séð, frá upphafi. Enginn markaður? Drepa til að drepa? Ég veit ekki um neina dýrategund sem hagar sér svona nema kannski minkurinn. Það þarf mikið ríkidæmi til að drepa 100 langreyðar án þess að markaður sé fyrir kjötið. Eflaust getur eigandinn bókfært eitthvað af tapinu á móti hagnaði af öðrum fjárfestingum. Ég er nokkuð viss um að hægt hefði verið að bjóða nokkrum árgöngum grunnskólabarna upp á hvalaskoðun og nokkuð ítarlega fræðslu um hvali og lífríki hafsins með sama tilkostnaði.

Og þá er það hálendið, sem þjóð sem hefur virkjað 10 sinnum meira en hún þarf – hún gæti svo auðveldlega verndað það sem eftir er af hálendinu öllum til heilla og nýtt það til að auðga andann og fegurðarskyn núverandi og komandi kynslóða. Einhverra hluta vegna höfum við ekki lufsast til að vernda mörg fegurstu svæðin eða hugsað um landið í heild eða hugsa til framtíðar, hversu mikils virði það væri að hafa verið stórhuga – já eins og Sigríður í Brattholti sem við njótum góðs af.

Eins og Guðmundur Páll Ólafsson hafði eftir Baba Dioum, senegölskum skógfræðingi:

Þú verndar aðeins það sem þú elskar

elskar aðeins það sem þú þekkir

þú þekkir aðeins það sem þér er kennt


Endurbirt erindi höfundar við móttöku náttúruverndarviðurkenningar Sigríðar í Brattholti á degi íslenskrar náttúru þann 16. september 2026.

Mest lesið
1
Alþjóðamál

Aðild að myntbandalagi Evrópusambandsins?

2
Alþjóðamál

Ísland í pilsfaldi Noregs

3
Aðrir sálmar

Einangrað fullveldi

4
Alþjóðamál

Sætið við borðið er síðasta orðið

5
Alþjóðamál

Viðskiptastríðin: Kína, Trump og valdabrölt

6
Efnahagsmál

Kaldur vetur en engin hörmung á fasteignamarkaði

AFP__20240320__economou-notitle240319_npstx__v1__HighRes__EuFlagsInBrussels
Aðrir sálmar 30. tbl.

Evr­ópa og nýi heim­ur­inn

vesturheimur og vesturveldin eru hugtök til að endurskilgreina
77a0620
Umhverfi 30. tbl.

Ef Ís­land væri borg á meg­in­landi Evr­ópu

Að fenginni Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti
Mynd SGG - 1
Opinber fjármál 30. tbl.

Nýtt grunn­við­mið fyr­ir stjórn­ar­hætti op­in­berra að­ila

Daði Már Kristófersson Fjármálaráðherra
Efnahagsmál 29. tbl.

Reikn­að­ur og raun­veru­leg­ur halli á rík­is­sjóði


Peningar
Aðrir sálmar 29. tbl.

Gylfag­inn­ing

og velgengnisrannsókn Ganglera
Mannlíf, miðborg Reykjavíkur
Aðrir sálmar 28. tbl.

Af Atóm­stöð­inni

þar sem tvöfeldni ræður ríkjum og fjárlagafrumvarp er kynnt með verðbættri tekjuöflun
gsf6810
Atvinna 28. tbl.

Er at­vinnu­leysi inn­flytj­enda næmara fyr­ir hag­sveifl­u­m?

Atvinnuleysi innflytjenda á Íslandi er bæði hærra að jafnaði og sveiflast meira með hagkerfinu en atvinnuleysi fólks með íslenskan bakgrunn. Munurinn er skýrastur meðal karla og eldri einstaklinga á vinnumarkaði.