
Með veitingu Nóbelsverðlauna í hagfræði 2026 hafa verðlaunin til þessa hlotnazt 101 manni frá því er þau voru veitt í fyrsta sinn 1969. Hópinn skipa 68 Bandaríkjamenn, tíu Bretar, fimm Frakkar, þrír Hollendingar, þrír Norðmenn, tveir Indverjar, tveir Kanadamenn og tveir Svíar. Finnar, Ísraelar, Rússar, Tyrkir og Þjóðverjar eiga einn verðlaunaþega hvert land. Enginn Kínverji er í hópnum, hvað sem síðar verður, enginn frá Asíu nema Indverjarnir tveir, enginn úr Arabaheiminum, enginn frá Suður–Ameríku eða Afríku. Það hlýtur að breytast þegar fram líða stundir.
Yfirburðir Bandaríkjanna í heimi hagfræðinnar frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar 1945 birtast meðal annars í því að tveir þriðju hlutar Nóbelsverðlaunahafanna eru Bandaríkjamenn. Raunar hafa ýmsir hinna unnið til verðlauna sinna nær eingöngu eða öðrum þræði með störfum sínum í Bandaríkjunum.
Samt hefur enginn doktor í hagfræði verið kjörinn Bandaríkjaforseti enn sem komið er. Fjórir forsetar landsins, allir repúblikanar, luku þó B.A. eða B.S. prófi í hagfræði: Gerald Ford (B.A. í hagfræði, Michigan-háskóli, 1935); Ronald Reagan (B.A. í félagsvísindum og hagfræði, Eureka College, Illinois, 1932); George H. W. Bush (B.A. í hagfræði, Yale-háskóli, 1948) og Donald J. Trump (B.S. í hagfræði, Pennsylvania-háskóli, Wharton School, 1968). Reagan beitti sér fyrir lækkun skatta og fullyrti að lækkunin myndi örva efnahagslífið nóg til þess að skila sér í auknum skatttekjum. Sú skoðun rímar þó hvorki við rök né reynslu eins og lýst er í kennslubókum í þjóðhagfræði. Trump leggur tolla á innflutning eins og hann eigi lífið að leysa þótt aðrir hagfræðingar viti að tollheimta er næstum alltaf og alls staðar skaðræði og önnur úrræði reynist ævinlega betur. Mark Carney, forsætisráðherra Kanada síðan 2005, lauk doktorsprófi í hagfræði í Oxford–háskóla 1995. Pedro Sánchez, forsætisráðherra Spánar síðan 2018, lauk doktorsprófi í hagfræði og viðskiptafræði í Camilo José Cela háskólanum í Madríd 2012. Mario Draghi, forsætisráðherra Ítalíu 2021–2022, lauk doktorsprófi í hagfræði 1977 í MIT 1977. Skínandi menn allir þrír. En þetta var útúrdúr.
Verðlaunin í ár
Að þessu sinni hljóta hagfræðiverðlaunin tveir Bandaríkjamenn, Robert E. Hall í Stanford-háskóla í Kaliforníu og Michael Woodford í Columbia–háskóla í New York. Hall er fæddur 1943 og Woodford 1955. Báðir luku doktorsprófi frá MIT, Hall 1967 og Woodford 1983. Höfundur hagvaxtarfræðinnar, Robert M. Solow, sem hlaut verðlaunin 1987, var doktorsleiðbeinandi Halls á MIT og sat síðar í doktorsnefnd Woodfords sem aukaleiðbeinandi. Hall er fimmti doktorsnemandi Solows sem vinnur til Nóbelsverðlauna. Það hlýtur að vera heimsmet. Hinir fjórir doktorsnemarnir eru George Akerlof (2001), Peter Diamond (2010), William Nordhaus (2018) og Joseph Stiglitz (2001). Solow lézt 2023, 99 ára að aldri.
Ef Solow ber gullið fyrir sína fimm Nóbelsnemendur, þá á Wassily Leontief silfrið. Hann var upphafsmaður aðfanga- og afurðagreiningar (e. input–output analysis), hlaut Nóbelsverðlaunin 1973 og hafði verið doktorsleiðbeinandi Solows og fjögurra annarra verðandi Nóbelsverðlaunahafa. Þeir eru Paul Samuelson (1970), Vernon Smith (2002) og Thomas Schelling (2005). Við lok doktorsvarnar Samuelsons í Harvard–háskóla 1941 hallaði Joseph Schumpeter, einn þriggja í doktorsnefndinni, sér að formanni nefndarinnar og spurði hálfum hljóðum: Stóðumst við prófið, Wassily?
Robert Hall hefur starfað í Standford allar götur frá 1978, en að loknu námi kenndi hann fyrst á MIT og síðan í Berkeley. Michael Woodford hóf feril sinn í Columbia–háskóla 1984–1986 og sneri þangað aftur 2004 og hefur starfað þar síðan þá, en í millitíðinni kenndi hann í Chicago og Princeton. Í Princeton var hann auk annars doktorsleiðbeinandi Gauta B. Eggertssonar, nú prófessors í Brown-háskóla, og síðar samverkamaður Gauta og meðhöfundur.
Þjóðhagfræði á styrkum stoðum
Hall og Woodford hljóta verðlaunin nú fyrir rannsóknir sínar í þjóðhagfræði, nánar tiltekið fyrir að renna styrkari stoðum undir þann hluta þjóðhagfræðinnar sem stjórn peningamála og ríkisfjármála hvílir á. Þeir hafa meðal annars lagt áherzlu á að heimili og fyrirtæki lifa ekki bara fyrir líðandi stund heldur horfa þau einnig fram í tímann þegar þau taka ákvarðanir. Þetta var að vísu vitað fyrir, nema hvað, en vitneskjan um þetta auðveldar stjórnvöldum samtalið við almenning sem þarf að fara fram til að stefnumörkun stjórnvalda geti skilað tilætluðum árangri. Þetta hljómar að vísu hversdagslega, en er samt það atriði sem Nóbelsverðlaunanefndin heldur hæst á loft í umsögn sinni um verðlaunahafana.
Skoðum forsöguna. Hagfræði sem sjálfstæð fræðigrein spratt af Auðlegð þjóðanna eftir skozka heimspekinginn Adam Smith 1776. Það var í Glasgow. Hagfræðin greindist síðar í tvennt: Rekstrarhagfræði sem fjallar um atferli fólks og fyrirtækja og þjóðhagfræði sem fjallar um þjóðarbúskapinn í heild og heimsbúskapinn eins og hann leggur sig. Helzti höfundur rekstrarhagfræðinnar sem sérgreinar í hagfræði var Alfred Marshall í Cambridge. Höfundur þjóðhagfræðinnar var nemandi hans, John Maynard Keynes, einnig í Cambridge. Keynes neyddist til að gera uppreisn gegn kennara sínum og öðrum þar eð rekstrarhagfræði fólks og fyrirtækja dugði ekki til að skilja og skýra heimskreppuna 1929–1939 og þá ekki heldur til að leggja til nothæf ráð gegn henni. Þau ráð fann Keynes og gerði grein …







