
Fyrr á þessu ári spratt upp hávær umræða um ætlað ofmat launavísitölu Hagstofunnar á þróun launa. Rökin voru oft óljós og ekki alltaf augljóst að þeir sem þetta fullyrtu vissu að launavísitalan mælir þróun launa og gefur reyndar bestu mælingarnar samkvæmt Hagstofunni. Í þessari grein er farið yfir mögulegar ástæður fyrir ofmati/vanmati (þ.e. hneigð, e. bias) í launavísitölunni. Einnig er fjallað um launavísitöluna sem viðmið fyrir breytingar á bótum og hugað að samræmi mælinga á þróun launa, raunlauna og framleiðni.
Hreinar verðvísitölur
Við útreikning á launavísitölunni er leitast við að búa til hreina verðvísitölu líkt og þegar vísitala neysluverðs er reiknuð. Markmiðið er að útiloka áhrif breytinga í gæðum og samsetningu vinnuaflsins, sem eigi að flokkast sem breytingar í magni vinnuaflsins. Til að minnka áhrif breytinga í gæðum vinnuaflsins notar Hagstofan parað úrtak við útreikning á launabreytingum í grunnhópum, þ.e. eingöngu eru notuð gögn um starfsfólk sem er í sama starfi, í sömu atvinnugrein og hjá sama atvinnurekenda tvo mánuði í röð. Þetta útilokar ekki allar gæðabreytingar, starfsfólkið hefur t.d. meiri starfsreynslu seinni mánuðinn en þann fyrri. Aðferðafræði paraða úrtaksins veldur því að launahækkanir sem starfsfólk fær þegar það flytur sig á milli fyrirtækja og launahækkanir sem tengjast nýjum starfstitlum án breytinga á starfi teljast ekki með. Líklega veldur þetta einhverju vanmati á launabreytingum.
Til að útiloka breytingar í samsetningu vinnuaflsins notar Hagstofan sömu vogir við útreikning á meðalverði tvo mánuði í röð. Til að vogirnar endurspegli samsetningu vinnumarkaðarins eru þær uppfærðar reglulega. Þannig hafa breytingar launa einstakra grunnhópa réttust áhrif á breytingu heildarlauna, en breytingar á vogunum engin áhrif.
Eins og í tilfelli vísitölu neysluverðs er ástæða til að ætla að eitthvert ofmat sé í launavísitölunni vegna þess að hún byggir á vogum sem endurspegla stöðu mála í fortíð og tekur ekki tillit til þess að fólk og fyrirtæki færa innkaup frá vörum sem hækka í verði yfir í vörur sem lækka. Þetta ofmat er lítið ef vogirnar eru uppfærðar oft.
Fyrir tæpum áratug gagnrýndu aðilar vinnumarkaðarins launavísitölu Hagstofunnar og fullyrt var að dæmi væru um 38% ofmat á árunum 2005-2016. Í kjölfarið var farið rækilega yfir aðferðafræðina. Í Hagtíðindum 16. ágúst 2018 er aðferðafræðin skoðuð og sagt að hún standist kröfur varðandi rek (e. chaining drift) og líftíma mælieininga (e. life‐cycle errors). Erlendur sérfræðingur, dr. Kim Zieschang, skilaði skýrslu þar sem niðurstaðan er að launavísitala Hagstofunnar gefi réttari mynd af þróun verðþáttar launanna en mælingar sem byggja á útreikningi meðallauna þar sem beytingar á gæðum og samsetningu vinnuaflsins hafa áhrif. Í skýrslu nefndar sem kom út í janúar 2019, Launatölfræði á Íslandi, er niðurstaðan „að launavísitala Hagstofunnar sé traust afurð sem byggð er á aðferðafræðilega sterkum grunni“ og í Hagtíðindum 10. desember 2019 er brugðist við ábendingum nefndarinnar og dr. Zieschangs um að skoða áhrif meiri starfsreynslu og menntunar á laun. Niðurstaðan er að þótt mæld áhrif á breytingar launa milli mánaða væru oft mikil og ekki bara jákvæð heldur líka neikvæð, væri meðaltalið 0,024% og tölfræðilega ómarktækt. Allar mældar breytingar í launum á vinnustund eru því taldar verðbreytingar.
Munurinn á mælingunum er mjög stór
Mynd 1 sýnir þróun hlutfalla launavísitölu á móti nokkrum vísitölum meðallauna. Hlutfall hækkar þegar launavísitalan hækkar meir en vísitalan sem deilt er með og lækkar þegar launvísitalan hækkar minna. Þrenns konar meðallaun eru skoðuð: 1) regluleg laun fullvinnandi fólks á vinnustund frá árinu 1998 til ársins 2025; 2) regluleg heildarlaun fullvinnandi fólks á vinnustund yfir sama tímabil og 3) laun á vinnustund frá 1995 til 2025, sem fást með því að draga laun og launatengd gjöld frá launakostnaði í framleiðsluuppgjöri þjóðhagsreikninga og deila með fjölda vinnustunda skv. Hagstofu.
Mikill munur er á hlutföllunum, en þau eiga það sameiginlegt að lækka mikið frá árinu 1995/1998 til ársins 2007 en hækka eftir það. Á árunum 2007-2025 hækkaði launavísitalan um 1,1 prósent á ári umfram hækkun launa á vinnustund skv. framleiðsluuppgjöri þjóðhagsreikninga. Ef miðað er við árin 2008-2025 er munurinn 0,6 prósent.
Hlutföll launavísitölu á móti annarri vísitölu launa
Tvær skýringar eru oftast taldar skýra þennan mismun í mælingum á þróun launa á vinnustund: samsetning vinnuaflsins og áhrif af paraða úrtakinu í útreikningi á launavísitölunni. Ef vægi fólks með tiltölulega há laun (t.d. vegna meiri menntunar) eykst, hækka óvegin meðallaun meir en vegin meðallaun með föstum vogum. Í dag virðast margir sannfærðir um að vægi fólks með tiltölulega …







