USD 122,5 -0,2%
EUR 137 -0,1%
GBP 161,8 -0,2%
DKK 18,3 -0,1%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,2%
CHF 146,9 -0,3%
CAD 85,9 -0,3%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
USD 122,5 -0,2%
EUR 137 -0,1%
GBP 161,8 -0,2%
DKK 18,3 -0,1%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,2%
CHF 146,9 -0,3%
CAD 85,9 -0,3%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
Til baka

Nán­ast núll vöxt­ur

uppá von og óvon

Mannlíf í Reykjavík
Mynd: Davíð Þór

Hagvöxtur og ofhitnun hagkerfisins var undanfarin ár talin ástæða fyrir nauðsyn hárra stýrivaxta hérlendis. Fyrr í ár var jafnvel talið að aukning ferðamanna og verðhækkun gistingar vegna sólmyrkvans í sumar gætu valdið hagvaxtarskoti. Nýlega er komið í ljós samkvæmt tölum Hagstofunnar að landsframleiðslan í fyrra var nánast álíka mikil og árið 2018, á mann – hafði vaxið um hálfa prósentu á þeim sjö árum. Til samanburðar var landsframleiðsla á mann í ríkjum Evrópusambandsins var rúmlega tífalt meiri á sama tíma.

Raunstýrivextir hjá Seðlabanka Íslands eru samt rúmum þremur prósentum hærri en hjá Seðlabanka Evrópu sem vissulega tekur bara til evruríkjanna 21 af þeim 27 sem eru í Evrópusambandinu. Þar eru raunstýrivextirnir neikvæðir um eina prósentu á meðan þeir eru jákvæðir um rúmar tvær hér, og hafa yfirlýst verið kringum þrjár heilar prósentur undanfarið.

Það er eitthvað óskýrt við flöktandi röksemdafærslurnar sem haldið er á lofti varðandi ólíkar ástæður fyrir nauðsyn hinna háu vaxta hér. Stundum var nefnd stöðnun í Evrópu á meðan blússandi hagvöxtur væri hér. Vöxtur sem þó var bara drifin áfram með aðfluttu fólki þaðan og í raun enginn á mann hér. Stundum er launahækkunum hér kennt um verðbólguna, en þegar þær samningsbundnu eru ekki yfir verðbólgunni þá eru kjarabæturnar nálægt núlli. Stundum er nefnt að ekki megi létta um of á taumhaldi á lánamarkaðnum því þá muni fasteignaverð rjúka upp. En hávaxtastigið lætur ungar barnafjölskyldur sitja fastar í kjararýrnun verðtryggða skulda en fælir barnlaust ungt fólk frá því að flytja að heiman og stofna fjölskyldu. Það er heldur langdregin leið til að draga úr fólksfjölda og auka hagvöxt á mann.

Nýlega var fjallað um stöðuna á húsnæðismarkaði hér í Vísbendingu sem hefur mjög kólnað, ekki er hann alveg frosin en stefnir hugsanlega nálægt núlli. Ómögulegt er þó að það geti haldið ríkisrekstrinum við núllið þegar hagvöxturinn er einnig nánast enginn

Forsíðugrein vikunnar fjallar um alvarlega stöðu á húsnæðismarkaðinum út frá sjónarhóli menntunar, samkvæmt greiningu BHM á nýlegri könnun.

Seinni grein vikunnar fjallar um mikilvægi þess að skilja samhengi og markmið efnahagslífsins í framhaldi fyrri hluta þessara sálma um vöxtinn. Hún er einnig skrifuð í framhaldi af seinni grein síðustu viku um opinber fjármál og þeirrar viku sálmum.

Mest lesið
1
Atvinna

Er atvinnuleysi innflytjenda næmara fyrir hagsveiflum?

2
Aðrir sálmar

Gylfaginning

3
Loftslagsmál

París, prósentur og prófsteinninn

4
Aðrir sálmar

Af Atómstöðinni

5
Opinber fjármál

Nýtt grunnviðmið fyrir stjórnarhætti opinberra aðila

6
Umhverfi

Ef Ísland væri borg á meginlandi Evrópu

Reykjavíkurhöfn
Efnahagsmál 32. tbl.

Hvert er mark­mið efna­hags­lífs­ins?

Mikilvægi skilnings á samhengi og hugtökum
Reykjavík
Húsnæðismál 32. tbl.

Staða há­skóla­mennt­aðra á hús­næð­is­mark­aði

Ný könnun Félagsvísindastofnunar HÍ bendir til þess að háskólamenntun ein og sér tryggi ekki greiða leið inn á húsnæðismarkað. Flestir eignast að lokum eigið húsnæði, en leiðin þangað virðist orðin lengri og kostnaðarsamari en áður og byggist oft á stuðningi fjölskyldu, skuldsetningu og miklu vinnuframlagi.
Mannlíf í Reykjavík
Aðrir sálmar 32. tbl.

Nán­ast núll vöxt­ur

uppá von og óvon
Stjórnarráðið
Efnahagsmál 31. tbl.

Til hvers eru op­in­ber fjár­mál?

Mikilvægi umræðunnar um tölur og orð

Seðlar, krónur, peningar
Aðrir sálmar 31. tbl.

Fram­leiðni og halla­rekst­ur

Heimila, fyrirtækja og hins opinbera
Peningar
Efnahagsmál 31. tbl.

Und­ir­liggj­andi kostn­að­ar­þrýst­ing­ur

Launa-framleiðnibilið, framlegð og atvinnustig á Íslandi
Mynd SGG - 1
Opinber fjármál 30. tbl.

Nýtt grunn­við­mið fyr­ir stjórn­ar­hætti op­in­berra að­ila

AFP__20240320__economou-notitle240319_npstx__v1__HighRes__EuFlagsInBrussels
Aðrir sálmar 30. tbl.

Evr­ópa og nýi heim­ur­inn

vesturheimur og vesturveldin eru hugtök til að endurskilgreina