USD 120,7 0,1%
EUR 137 0,1%
GBP 160,3 0,4%
DKK 18,3 0,1%
SEK 12,1 0,1%
NOK 12,6 -0,1%
CHF 144,6
CAD 85,1 0,1%
JPY 0,8 0,2%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
USD 120,7 0,1%
EUR 137 0,1%
GBP 160,3 0,4%
DKK 18,3 0,1%
SEK 12,1 0,1%
NOK 12,6 -0,1%
CHF 144,6
CAD 85,1 0,1%
JPY 0,8 0,2%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
Til baka

Til hvers eru op­in­ber fjár­mál?

Mikilvægi umræðunnar um tölur og orð

Stjórnarráðið
Mynd: Bára Hulda Beck

Ýmsir gamlir garmar löngu úrhrakinnar hugmyndafræði halda því stundum enn fram að verðmætin í efnahagslífinu skapist bara í atvinnulífinu og skatttekjurnar þaðan þurfi til að fjármagna opinberan rekstur. Annars muni allt fara á hausinn. Svipaðar raddir halda því fram að lífeyrisskuldbindingar geti sett ríkissjóði í þrot. Skatttekjurnar má þó aldrei auka því þá stöðvist atvinnulífið verðmæta.

Það að telja rekstur hins opinbera vera afætu og atvinnulífið vera hinn eina sanna framleiðanda verðmæta minnir svolítið á kjánalegan ríg sem var viðvarandi í heildsölunni sem ritstjóri starfaði í seint á síðustu öld. Þar töldu sölumenn sig mikilvægustu gaurana því að þeir sköpuðu tekjurnar. Lagerstrákarnir væru bara kostnaðarlegur baggi og þannig séð afætur. En hefðu engar vörur verið teknar saman úr hillunum og sendar af lagernum til viðskiptamanna þá hefðu engir sölureikningar verið greiddir. Alveg eins og ef ekki væru á efri hæðinni innkaupastúlkur og tollskýrslugerðardömur þá hefðu hillurnar fljótt orðið tómar. Hvort sölumennsku-gaurarnir skildu þetta samhengi hlutanna varð ég aldrei viss um.

Þessari minningu skýtur stundum upp í kollinum þegar hlustað er á íslenska efnahagsumræðu um það hvar verðmætin séu sköpuð. Ef að síðan skattleggja á einhver þessi öflugu sölumennskuhjól atvinnulífsins er eins og stungið hafi verið gat á dekkjaslönguna og vælið um að fækka þurfi lager-drengjum og tollheimtu-stúlkum ætlar allt að æra.

Mikilvægt er að fjalla um opinber fjármál af örlítið meira viti en hinn sameiginlega skilning á rekstri kaffistofu heildsölunnar úr æsku minni. Til þess eru stjórnmálin einnig gerð, og skylda fjölmiðlanna mikil í því sambandi. Því er rétt að benda hér á tvö viðtöl um fjármál hins opinbera þar sem bæði sitjandi fjármálaráðherra og fyrrum formaður fjármálaráðs til tíu síðustu ára hafa verið gestir á Sprengisandi Páls Magnússonar undanfarnar rúmar tvær vikur. Fjármálaráðherra hefur síðan einnig látið merk orð falla í öðru viðtali á Vísisvefnum stuttu á eftir Sprengisandsspjallinu.

Þeim orðum fjármálaráðherra um að heimilin skuli þola að taka á sig frekari hækkanir hefur ekki verið sérlega vel tekið af aðilum launþegahliðar vinnumarkaðarins, þar sem kjarasamningum getur verið sagt upp í næstu viku. Virðist forsætisráðherra þó hafa blandað sér í leikinn og ætli að draga til baka framlagðar hækkanir opinberra gjalda, sem valda miklum hluta verðbólgunnar nú um stundir. En óljóst er af fréttum gærdagsins hvort selja eigi fjölskyldusilfur samfélagsins sem felst í Landsvirkjun, eða veðsetja það, til þess að skila rekstrinum á ríkissjóði í núlli á næsta ári.

Stjórnmál og fjármál

Skilningur á pólitískri hagfræði fjárlagagerðar var til umfjöllunar í fréttabréfi Financial Times fyrr í vikunni. Þar sem dregin er samanburður á vandanum milli Evrópusambandsríkjanna og Bretlands en sem á einnig við víðar. Fjárlög franska ríkisins koma einnig fyrir í leiðaraskrifum blaðsins. Skuldabréfamarkaðir ríkisskuldabréfa ganga í gegnum mikla óróapúlsa samhliða því sem verðbólga er vaxandi víðast hvar um heiminn allan samhliða stríðsátökum og orkuverðskrísum.

En fjárlög virðast hafa tapað kraftinum til þess að stjórna rekstri ríkisins. Þetta endurómaði í orðum fjármálaráðherra okkar í áðunefndu viðtali á Sprengisandi. Það er ískyggilegt þegar viðhorf sitjandi fjármálaráðherra til eigin getuleysis afhjúpast með jafn skýrum hætti og í þeim orðum viðtalsins. Þannig hugleiðingar eða pælingar eru alveg skiljanlegar í greiningum Financial Times og hjá starfandi hagfræðingum eða jafnvel fjármálaráðsformönnum sem hætt hafa störfum. En það er ekki víst að hið afhjúpandi orðfæri beint úr fjármámálaráðherrastóli séu þess megnug að auka við trúverðugleika stefnu opinberra fjármála.

Þvert á móti. Og þegar að kollegi hans, einnig í tímabundnu leyfi frá kennslu- og fræðastörfum, hefur samhliða virst hafa megnað að tapa trúverðugleika peningastefnu landsins, þá er hætt við að virkilega illt sé í efni. Á tvöfaldan máta, beggja hliða efnahagsstjórnunarinnar. Þriðja stoðin, á vinnumarkaðinum, er síðan í upplausn – vegna tapaðs trúverðugleika hinna tveggja. Það er því óhætt að segja að spennandi tímar séu framundan á hinu efnahagslega sviði. Ekki má gleyma því að sú sögn er bölbæn uppá kínverskan máta.

Mest lesið
1
Alþjóðamál

Ísland í pilsfaldi Noregs

2
Atvinna

Er atvinnuleysi innflytjenda næmara fyrir hagsveiflum?

3
Efnahagsmál

Kaldur vetur en engin hörmung á fasteignamarkaði

4
Loftslagsmál

París, prósentur og prófsteinninn

5
Aðrir sálmar

Sjálfstætt fólk

6
Aðrir sálmar

Gylfaginning

Peningar
Efnahagsmál 31. tbl.

Und­ir­liggj­andi kostn­að­ar­þrýst­ing­ur

Launa-framleiðnibilið, framlegð og atvinnustig á Íslandi
Stjórnarráðið
Efnahagsmál 31. tbl.

Til hvers eru op­in­ber fjár­mál?

Mikilvægi umræðunnar um tölur og orð
Seðlar, krónur, peningar
Aðrir sálmar 31. tbl.

Fram­leiðni og halla­rekst­ur

Heimila, fyrirtækja og hins opinbera
AFP__20240320__economou-notitle240319_npstx__v1__HighRes__EuFlagsInBrussels
Aðrir sálmar 30. tbl.

Evr­ópa og nýi heim­ur­inn

vesturheimur og vesturveldin eru hugtök til að endurskilgreina

77a0620
Umhverfi 30. tbl.

Ef Ís­land væri borg á meg­in­landi Evr­ópu

Að fenginni Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti
Mynd SGG - 1
Opinber fjármál 30. tbl.

Nýtt grunn­við­mið fyr­ir stjórn­ar­hætti op­in­berra að­ila

Peningar
Aðrir sálmar 29. tbl.

Gylfag­inn­ing

og velgengnisrannsókn Ganglera
Daði Már Kristófersson Fjármálaráðherra
Efnahagsmál 29. tbl.

Reikn­að­ur og raun­veru­leg­ur halli á rík­is­sjóði