Ný könnun Félagsvísindastofnunar HÍ bendir til þess að háskólamenntun ein og sér tryggi ekki greiða leið inn á húsnæðismarkað. Flestir eignast að lokum eigið húsnæði, en leiðin þangað virðist orðin lengri og kostnaðarsamari en áður og byggist oft á stuðningi fjölskyldu, skuldsetningu og miklu vinnuframlagi.
Háskólamenntun hefur lengi verið talin ein mikilvægasta fjárfesting einstaklinga. Henni fylgja að jafnaði hærri tekjur, meiri atvinnuþátttaka og sterkari staða á vinnumarkaði. Háskólanám hefur því ekki aðeins verið leið að sérhæfðum störfum heldur einnig að fjárhagslegu sjálfstæði og eignamyndun. Spurningin er hvort sú leið sé jafn greið og áður.
Könnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands
Niðurstöðurnar þarf jafnframt að skoða í samhengi við núverandi efnahagsaðstæður. Stýrivextir Seðlabankans standa í 8,0% og verðbólga mælist 5,6%. Greiðslubyrði húsnæðislána er því þung fyrir mörg heimili.
Eigið húsnæði er viðmiðið en segir ekki alla söguna
Við fyrstu sýn virðist staða háskólamenntaðra sterk. Um þrír af hverjum fjórum búa í eigin húsnæði með húsnæðisláni og aðeins lítill hluti er á leigumarkaði. Miðað við hefðbundna mælikvarða býr megnið af hópnum í eigin húsnæði.
En það segir ekki alla söguna. Þegar leiðrétt hefur verið fyrir kyni, aldri, menntun og búsetu sýnir aðhvarfsgreining rannsóknarinnar að áætlað hlutfall þeirra sem búa í eigin húsnæði er 94% meðal þeirra sem útskrifuðust á síðustu tíu árum og 96% meðal þeirra sem útskrifuðust fyrr. Munurinn milli hópanna birtist fyrst og fremst í skuldastöðunni. Af þeim sem útskrifuðust á síðustu tíu árum búa 81% í eigin húsnæði með láni og 13% í skuldlausu húsnæði. Hjá þeim sem útskrifuðust fyrr búa 76% í eigin húsnæði með láni og 20% í skuldlausu húsnæði. Eignamyndun tekur tíma og yngri hópurinn er einfaldlega skemmra á veg kominn.
Leigumarkaðurinn veitir takmarkað svigrúm
Helstu skýringar á því hversu fáir eru á leigumarkaði eru að líkindum takmarkað framboð, hátt leiguverð og stuttur gildistími margra leigusamninga. Leigumarkaðurinn hefur verið undir þrýstingi þrátt fyrir kólnandi fasteignamarkað. Samkvæmt nýjustu mánaðarskýrslu HMS hefur leiguverð á höfuðborgarsvæðinu hækkað um 4,2% á síðustu tólf mánuðum en íbúðaverð um 2,3%. Samningar eru auk þess yfirleitt til skamms tíma: um 62% nýrra tímabundinna leigusamninga eru bundnir við 11 til 14 mánuði og aðeins um 4% gerðir til lengri tíma en tveggja ára. Fyrir marga virðist leigumarkaðurinn því ekki vera raunhæf langtímalausn heldur tímabundið ástand á leiðinni í eigið húsnæði.
Yngri svarendur hafa að jafnaði verið skemur á leigumarkaði. Meðal yngri svarenda 19–39 ára sem einhvern tíma höfðu leigt er áætlað að 18% hafi verið lengur en fimm ár á leigumarkaði, samanborið við 37% á meðal 40 ára og eldri, sem skýrist meðal annars af samfélagsbreytingum frá einni kynslóð til annarrar.
Athyglisvert er að hluti yngsta hópsins fer aðra leið. Um 9% þeirra sem útskrifuðust fyrir fjórum árum eða skemur búa endurgjaldslaust, oftast hjá foreldrum. Það getur bent til þess að hluti ungs fólks fresti sjálfstæðri búsetu fremur en að sætta sig við hátt leiguverð og takmarkað langtímaöryggi á leigumarkaði.
Svipuð þróun á húsnæðismarkaði hefur komið fram víða á Vesturlöndum. OECD hefur bent á að hækkandi húsnæðisverð hafi gert yngri kynslóðum erfiðara fyrir að komast inn á markaðinn og að slíkt geti aukið eignaójöfnuð til lengri tíma. Þegar húsnæðiskostnaður tekur stærri hluta ráðstöfunartekna verður jafnframt erfiðara að safna eigin fé upp í útborgun.
Fjölskyldubakgrunnur skiptir meira máli
Skýrasta vísbending rannsóknarinnar um breyttar aðstæður kemur fram þegar skoðuð er fjárhagsleg aðstoð við húsnæðiskaup.
Um 60% svarenda 44 ára og yngri hafa fengið aðstoð frá öðrum en lánastofnunum til að komast inn á húsnæðismarkað, samanborið við 38% svarenda 45–54 ára og 20% þeirra sem eru 55 ára og eldri. Í langflestum tilvikum kemur sú aðstoð frá fjölskyldu. Í mánaðarlegri könnun HMS og Félags fasteignasala nefna að jafnaði 79% fasteignasala að fyrstu kaupendur hafi notið aðstoðar foreldra eða annarra ættingja við íbúðakaup, sem styður þá mynd sem könnunin dregur upp.
Ef háskólamenntað fólk í stöðugri atvinnu þarf í auknum mæli að …









