
Skuldir og hallarekstur tengjast bókhaldslega í gegnum eigið fé hjá fyrirtækjum. Hagnað af rekstri er bætt við eigið fé, sem rétt er að minna á að er á skuldahlið efnahagsreikningsins. Þannig tengist niðurstaða rekstrarreiknings inn í stöðu efnahags. Halli af opinberum rekstri eykur beint skuldirnar.
Heimilin í landinu geta ekki auðveldlega safnað upp eða gengið á sitt eigið fé. Ef heimili á afgang sem nýta má í sparnað þá er oft arðbærast að beina honum í lækkun skulda. Erfitt er því að ganga á uppsafnaðan afgang þegar illa árar og verðhækkun húsnæðis heimilsins nýtist illa þar sem ekki hefur fundist góð leið til að selja hluta af íbúð.
Ríkið og sjóður þess er ekki eins og hver annar rekstur, hvorki fyrirtækja né heimila. Hagnaður er ekki markmiðið ríkja. Jafnvel fyrrum fasteignaviðskipta-jöfrar sem stjórna fyrrum stærsta efnahagsveldi heims vita það og halda uppi hallanum. Hæfilegur halli hefur stundum verið talinn innan við þrjár prósentur (sbr. Maastricht skilyrði Evrópusambandsins). Hérlendis er hann talsvert langt innan þeirra marka eins og fjallað var um nýverið hér í Vísbendingu. En þegar hallinn er löngum hafður meiri, jafnvel kringum sex prósent eins og núna í Bandaríkjunum, þá er voðinn vís. Það sést vel á skuldabréfamörkuðum og sá órói breiðist út um heiminn. Ekki má gleyma því að skuldir eins eru ávallt eign annars, og það er lánveitandi sem ákvarðað verðið ekki lántaki.
Aukin framleiðni getur dregið úr hallarekstri. Framleiðni fyrirtækja eykst oftast með fjárfestingu, í tæknibreytingum og með snjallari mannauð. Inni á heimilum er framleiðnina flóknara að mæla, en heimsendir kassar með uppskriftum og matvælum fyrir kvöldverð er eitt dæmi og ryksugu-róbótar annað. Framleiðni hins opinbera er miklu meiri en af er látið, svo sem inni á spítölum og í skólum, þó að hún birtist ekki beinlínis í hagtölum. Sú framleiðni dregur heldur ekki endilega úr hallanum í ársuppgjörinu.
--
Í seinni grein vikuritsins fjallar ritstjóri nánar í framhaldi sálmanna um mikilvægi opinberra fjármála og skortinn á skilningi þess að ríkissjóður er ekki eins og heimilisbókhald.
Forsíðugrein vikunnar setur svo efnhagslega þróun á Ísland í alþjóðlegt samhengi kenninga um skiptingu milli framleiðsluþátta og afleiðingar í verðbólgu og atvinnuleysi.







