
Vesturheimur hafði aðra merkingu áður fyrr. Stærsta hóp afkomenda Íslendinga á alþjóðavísu er að finna í Kanada. Í landnemabyggðum, þeirra sem héðan flúðu fátækt og hungur fyrir ekki svo löngu síðan, búa eitt hundrað þúsund Kanadamenn af íslenskum uppruna.
Á tveimur litlum eyjum í skerjagarði rétt utan við strendur Nýfundnalands búa sex þúsund franskir ríkisborgarar og nota þar evrur. Saint-Pierre og Miquelon-Langlade eru eyjar á frönsku yfirráðasvæði 25 kílómetra frá strönd Kanada, sem eru síðustu hlutar hinna frönsku nýlendna þar – sem voru viðamiklar fram til ársins 1763. Þannig mætti segja að Evrópusambandið nái örlítið inn í kanadíska lögsögu.
Fimm sinnum fleiri eyjaskeggjar búa á Álandseyjum, í skerjagarðinum milli Svíþjóðar og Finnlands, sem njóta sjálfstjórnar án þess að tilheyra fyllilega nágrannaríkjunum. Tala sænsku, reka öfluga ferjuútgerð og banka sem keypti sænska þrotabú Kaupþings af seðlabankanum, en nota evrur og finnska utanríkisþjónustu. Þar gildir sérstök skattaundanþága Evrópusambandsins í lögsögunni mitt á milli tveggja Evrópusambandsríkja.
Umburðarlyndi nágranna er iðulega virðingarvert. Hérlendis hefur þó tekið tvo áratugi að innleiða rétt tilskipanir um framþróun reikningsskila, sem eru forsenda samhæfðra viðskipta á hinu evrópska efnahagssvæði. Fjallað er reikningsskil opinberra fjármála í blaði vikunnar en fyrr í ár hafa stjórnarhættirnir verið til umfjöllunar og nánar það sem snýr að skilum fyrirtækjanna í fyrra auk fleiri greina undanfarin ár.
Í samhenginu er ágætt að bera stærð íslenska hagkerfisins við evrópskar borgir eins og Andri Snær Magnason rithöfundur og baráttumaður umhverfisverndar gerir í forsíðugrein vikuritsins.
Nú í vikunni hafa danskir og grænlenskir stjórnmálaleiðtogar náð samningi við leiðtoga landsins sem áður var talið í forsvari hins frjálsa og vestræna heims. Núorðið virðist það land þó fremst í flokki andlýðræðislegrar heimsvaldastefnu spillingar samkvæmt úttektum í tímaritunum New Yorker og Atlantic. Berskjölduð staða okkar Íslendinga undir pilsfaldi Bandaríkjaforseta er æpandi í því samhengi, svo sem lesa má nánar um nýjustu grein minni í Heimildinni.








