USD 120,7 0,1%
EUR 137 0,1%
GBP 160,3 0,4%
DKK 18,3 0,1%
SEK 12,1 0,1%
NOK 12,6 -0,1%
CHF 144,6
CAD 85,1 0,1%
JPY 0,8 0,2%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
USD 120,7 0,1%
EUR 137 0,1%
GBP 160,3 0,4%
DKK 18,3 0,1%
SEK 12,1 0,1%
NOK 12,6 -0,1%
CHF 144,6
CAD 85,1 0,1%
JPY 0,8 0,2%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
Til baka

Und­ir­liggj­andi kostn­að­ar­þrýst­ing­ur

Launa-framleiðnibilið, framlegð og atvinnustig á Íslandi

Peningar
Mynd: Golli

Launa-framleiðnibilið, framlegð og atvinnustig á Íslandi

Raunlaun á Íslandi jukust hraðar en framleiðni frá 2010 til 2018 og launa-framleiðnibilið lækkaði mikið. Síðan þá hefur bilið haldist lágt þótt það hafi sveiflast nokkuð. Við fyrri aðstæður hefði slík þróun líklega kallað á meiri verðbólgu og gengislækkun sem lækkaði raunlaun og bætti kostnaðarstöðu atvinnulífsins. Sú leiðrétting hefur ekki orðið í sama mæli á þessu tímabili. Á fyrri tímabilum hjálpuðu neikvæðir raunvextir og gengisfellingar til við að verja framlegð og atvinnu. Frá 2014 hefur verðfleygurinn milli verðvísitölu vergrar landsframleiðslu og neysluverðs gegnt stærra hlutverki í að verja greiðslugetu fyrirtækja. Verðvísitala vergrar landsframleiðslu hefur hækkað meira en neysluverð og þannig styrkt tekjuhlið fyrirtækja gagnvart launakostnaði. Hagstæð viðskiptakjör og vöxtur útfluttrar þjónustu hafa einnig hjálpað til. Frá 2021 hefur verðbólga haldist þrálát og vextir háir, en atvinnustigið hefur haldist tiltölulega sterkt. Kostnaðarþrýstingurinn hefur því ekki horfið. Hvernig hann kemur fram ræðst af svigrúmi fyrirtækja til að verja framlegð, framleiðslu og atvinnu. Meðan það svigrúm er fyrir hendi getur þrýstingurinn fremur birst í verðbólgu. Þegar það svigrúm þrengist færist aðlögunin í auknum mæli yfir í minni fjárfestingu, samdrátt í framleiðslu og/eða aukið atvinnuleysi.

Verðið sem heimilin borga og verðið sem framleiðslan fær

Tvær verðvísitölur eru lykillinn að rannsókninni sem liggur til grundvallar þessarar greinar. Annars vegar neysluverðsvísitalan (Pcpi) sem mælir verðþróun þess sem heimilin kaupa. Hins vegar verðvísitala vergrar landsframleiðslu (Py) sem mælir verðþróun innlendrar framleiðslu og endurspeglar þannig afurðaverð fyrirtækja og atvinnugreina. Innfluttar vörur vega í neysluverði (Pcpi) en ekki í landsframleiðslu Py. Á móti geta verð á fiski, áli, ferðaþjónustu og öðrum útflutningi hækkað Py án samsvarandi hækkunar neysluverðs. Fram til ársins 2014 fylgdust vísitölurnar nokkuð vel að. Eftir það hefur verðvísitala vergrar landsframleiðslu hækkað meira en neysluverð og verðfleygurinn milli þeirra opnast (mynd 1). Hlutfallið Py/Pcpi sýnir þá þróun (mynd 3).

Tvö sjónarhorn á launa-framleiðnibilið

Lífskjarahlið launa-framleiðnibilsins fæst með því að bera launakostnað á framleidda einingu saman við neysluverð. Hér er A framleiðni vinnuafls, W nafnlaun og ULC launakostnaður á framleidda einingu, það er nafnlaun deilt með framleiðni, ULC = W / A. Allar breytur eru tímabreytilegar nema annað sé tekið fram. Tímavísinum t er sleppt þar sem það léttir framsetningu.

Bcpi = Pcpi / ULC = A / (W / Pcpi)

Þegar þessi mælikvarði lækkar þá hækka raunlaun hraðar en framleiðni. Það bætir kaupmátt, en þrengir að kostnaðarstöðu atvinnulífsins ef verð framleiðslunnar eða framleiðni halda ekki í við.

Greiðslugetuhliðin fæst með því að nota verðvísitölu vergrar landsframleiðslu.

By = Py / ULC = A / (W / Py)

Í einfaldri þjóðhagsframsetningu er þessi mælikvarði á lífskjarahlið launa-framleiðnibilsins jafnframt andhverfa launahlutfallsins. Hann hefur lækkað minna en mælikvarðinn sem byggist á neysluverði. Munurinn endurspeglar verðfleyginn á milli vísitalnanna tveggja.

By / Bcpi = Py / Pcpi

Launa-framleiðnibilið, framlegð og aðlögun

Í eldri grein minni (2024) var sett fram einfalt líkan þar sem lækkandi launa-framleiðnibil þrengir að arðsemi og fjárfestingu og eykur verðbólguhneigð. Hér er fjárhagsstöðu fyrirtækjanna og svigrúmi þeirra til að verja framleiðslu og atvinnu bætt við.

Greiðslugetuhlið launa-framleiðnibilsins er

By = Py / ULC

og skilgreina má frávik frá sjálfbæru stigi sem

G​ = ln(B̄y​) − ln(By​)

þar sem B̄y táknar sjálfbært langtímastig. Jákvætt G merkir að launakostnaður er hár miðað við verð framleiðslunnar og þrýstingur myndast á framlegð. Hækkun Py minnkar þennan þrýsting. Fyrirtæki geta mætt því sem eftir stendur með verðhækkunum, lægri framlegð eða með samdrætti í fjárfestingu, framleiðslu og ráðningum. Sterk eftirspurn auðveldar fyrirtækjum að hækka verð, en traustir efnahagsreikningar auka svigrúm þeirra til að taka hluta hans tímabundið á framlegð eða efnahag (með því að ganga á eigið fé og lausafé eða auka skuldir).

Líkanið skiptir þannig þeim kostnaðarþrýstingi sem eftir stendur í þrjá aðlögunarfarvegi. Þeir eru i) verðhækkanir, ii) tímabundin aðlögun í framlegð og efnahag, og iii) magn- og atvinnuaðlögun. Vægi síðasta farvegarins eykst þegar svigrúm til verðhækkana og framlegðaraðlögunar þrengist.

Einfalda verðbólgujöfnu má því skrifa

π = πe + κx + λG þar sem πe eru verðbólguvæntingar, x er framleiðslubil, κ er stuðullinn sem segir hversu næm verðbólga er fyrir framleiðslubilinu x og λ sá hluti kostnaðarþrýstingsins sem kemur fram í verðhækkunum. Sé s sá hluti sem fyrirtækin geta tímabundið tekið á framlegð eða efnahag, kemur afgangurinn, 1 – λ − s, fram í magn- og atvinnuaðlögun. Verðbólguþrýstingurinn getur því haldist mikill svo lengi sem svigrúm er til verðhækkana og fyrirtæki hafa svigrúm til að verja framleiðslu og atvinnu.

Atvinnuaðlöguninni má þá lýsa einfaldlega sem

Δu = ϕ(1−λ ​– s)G

Þegar svigrúm til verðhækkana og tímabundinnar aðlögunar á framlegð eða efnahag þrengist færist stærri hluti kostnaðarþrýstingsins yfir í framleiðslu og atvinnu. Atvinnuleysi getur þá aukist í átt að því sem Malinvaud (1977) kallaði klassískt atvinnuleysi, þar sem kostnaðarstaða og arðsemi takmarka vinnuaflseftirspurn. Aðlögunin færist þannig frá verðlagi yfir í magn og atvinnu og verðbólguþrýstingurinn hjaðnar.

Viðskiptakjör og ferðaþjónusta

Viðskiptakjör eru mikilvægur hluti skýringarinnar á því hvers vegna verðvísitala vergrar landsframleiðslu hefur haldið betur í við launakostnað en neysluverð. Þau kjör mæla útflutningsverð miðað við innflutningsverð:

TOT = Px / Pm

Batnandi viðskiptakjör hækka raunverulegar þjóðartekjur. Hærra útflutningsverð hækkar verðvísitölu vergrar landsframleiðslu, en lægra innflutningsverð dregur úr neysluverði. Báðir farvegir auka því verðfleyginn. Varanleg viðskiptakjarabót skapar raunverulegt svigrúm til hærri raunlauna, en tímabundin bót gerir það ekki til lengdar.

Ferðaþjónustan hefur einnig breytt samsetningu hagkerfisins. Verð á gistingu, veitingum, flutningum og afþreyingu sem erlendir ferðamenn kaupa kemur inn í verðvísitölu vergrar landsframleiðslu en hefur ekki sama vægi í neyslukörfu íslenskra heimila. Ferðaþjónustan getur því styrkt verðfleyginn. Mikill aðflutningur vinnuafls hefur jafnframt auðveldað vöxt vinnuaflsfrekra greina án enn meiri launaþrýstings.

Afkoma, lífskjör og mörk launasvigrúms

Góð afkoma fyrirtækja er ekki sjálfkrafa sönnun um frekara svigrúm til launahækkana. Rekstrarafgangur hefur haldist tiltölulega sterkur, meðal annars vegna þess að Py hefur hækkað meira en neysluverð. Rekstrarafgangur og By eru þó ekki óháð sönnunargögn, þar sem báðir mælikvarðar tengjast skiptingu virðisaukans milli launa og rekstrarafgangs. Myndin sýnir því fyrst og fremst að kostnaðarþrýstingurinn hefur ekki enn étið upp afkomuna. Í síðustu grein minni (2026) hef ég rakið hvernig aðlögun að lækkandi launa-framleiðnibili getur komið fram í minni framlegð, …

Fáðu áskrift til að lesa

Áskrift að Vísbendingu hæfir þeim sem hafa gaman að óvilhöllum greiningum og gagn af greinargóðum upplýsingum um efnahagsmál, viðskipti og nýsköpun.
Mest lesið
1
Alþjóðamál

Ísland í pilsfaldi Noregs

2
Atvinna

Er atvinnuleysi innflytjenda næmara fyrir hagsveiflum?

3
Efnahagsmál

Kaldur vetur en engin hörmung á fasteignamarkaði

4
Loftslagsmál

París, prósentur og prófsteinninn

5
Aðrir sálmar

Sjálfstætt fólk

6
Aðrir sálmar

Gylfaginning

Peningar
Efnahagsmál 31. tbl.

Und­ir­liggj­andi kostn­að­ar­þrýst­ing­ur

Launa-framleiðnibilið, framlegð og atvinnustig á Íslandi
Stjórnarráðið
Efnahagsmál 31. tbl.

Til hvers eru op­in­ber fjár­mál?

Mikilvægi umræðunnar um tölur og orð
Seðlar, krónur, peningar
Aðrir sálmar 31. tbl.

Fram­leiðni og halla­rekst­ur

Heimila, fyrirtækja og hins opinbera
AFP__20240320__economou-notitle240319_npstx__v1__HighRes__EuFlagsInBrussels
Aðrir sálmar 30. tbl.

Evr­ópa og nýi heim­ur­inn

vesturheimur og vesturveldin eru hugtök til að endurskilgreina

77a0620
Umhverfi 30. tbl.

Ef Ís­land væri borg á meg­in­landi Evr­ópu

Að fenginni Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti
Mynd SGG - 1
Opinber fjármál 30. tbl.

Nýtt grunn­við­mið fyr­ir stjórn­ar­hætti op­in­berra að­ila

Peningar
Aðrir sálmar 29. tbl.

Gylfag­inn­ing

og velgengnisrannsókn Ganglera
Daði Már Kristófersson Fjármálaráðherra
Efnahagsmál 29. tbl.

Reikn­að­ur og raun­veru­leg­ur halli á rík­is­sjóði