USD 125,4 0,5%
EUR 137,2
GBP 164,0 0,1%
DKK 18,4
SEK 12,2 -0,2%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 149,4 0,4%
CAD 87,3 0,1%
JPY 0,8 0,2%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 397.710
USD 125,4 0,5%
EUR 137,2
GBP 164,0 0,1%
DKK 18,4
SEK 12,2 -0,2%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 149,4 0,4%
CAD 87,3 0,1%
JPY 0,8 0,2%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 397.710
Til baka

Við­skipti í köldu norðri?

Veltihringrásin AMOC veldur vanda ef hún stöðvast

Stefan Ramstorf
Fyrirlestur Stefan Ramstorf á Hringborði norðurslóða í Hörpu 2025.

Ísland er á mörkum byggilegs umhverfis, líkt og komið hefur í ljós í gegn um aldirnar. Á tímabili „litlu ísaldarinnar” frá 1300-1850 var lífið á Íslandi erfitt því ekki var hægt að rækta korn hér. Þegar hlýna fór í lok síðustu aldar var farið að rækta meira af korni, einkum byggi og eitthvað af hveiti og höfrum. En hvað verður um fæðuöryggi Íslands ef það kólnar verulega? Verður þá byggilegt á Íslandi? Hvernig mun gengd fisks verða? Verður einhver sjávarútvegs- eða landbúnaðarframleiðsla til eigin neyslu og útflutnings? Hvernig mun viðskiptalíkan íslensks útflutnings verða ef það kólnar hér að meðaltali um 5oC eða meira? Nú lítur út fyrir að slík kólnun gæti verið í kortunum ef losun gróðurhúslofttegunda verður ekki dregin kröftuglega saman.

Hringborð Norðurslóða 2024

Á síðastliðnu ári sendi hópur loftslagsvísindamanna opið bréf til Norðurlandaráðs frá Hringborði norðurslóða. Prófessor Stefan Ramstorf haf- og loftslagsfræðingur frá PIC (Potsdam Institute for Climate Impact Research) í Þýskalandi flutti fyrirlestur í Háskóla Íslands og á Hringborði norðurslóða. Stefan afhenti þáverandi umhverfis-, loftslags- og orkumálaráðherra Guðlaugi Þór Þórðarsyni bréfið. Nú hefur nýr ráðherra Jóhann Páll Jóhannsson tekið við ráðuneytinu og málefnið hefur ratað inn á borð Þjóðaröryggisráðs Íslands. Stjórnmálaflokkurinn Viðreisn hélt sérstakan félagafund um málefnið 13. nóvember sl. en enginn þingmaður mætti á fundinn. Annars heyrir þjóðin lítið um alvarleika málsins hvort sem það er frá stjórnmálamönnum eða fjölmiðlum.

Í bréfinu frá vísindamönnunum var lögð áhersla á auknar vísbendingar um áhættu á hnignun veltihringrásar Atlandshafsins (e. Atlantic Meridional Overturning Circulation - AMOC) – sem við köllum í daglegu máli Golfstrauminn – vegna hlýnunar jarðar af völdum útblásturs gróðurhúslofttegunda. Þess vegna teldu þeir brýnt að áhætta vegna viðkvæmra vendipunkta á norðurslóðum, einkum áhættan á hnignun veltihringrásarinnar, sé tekin alvarlega af stjórnvöldum við stefnumótun. Þeir tóku fram að jafnvel þótt líkurnar á að þetta gerist séu miðlungs, þá myndu afleiðingarnar verða hörmulegar og hafa áhrif á allan heiminn um aldir fram í tímann. Vísindamennirnir töldu því nauðsynlegt að grípa til frekari aðgerða til að lágmarka þessa áhættu.

Þá er í bréfinu einnig tekið fram að áhrifin á Norðurlöndin yrðu líklega verulegar hamfarir, þar á meðal mikil kólnun í svæðinu á sama tíma og nærlæg svæði hlýna. Þetta myndi auka og dýpka þann svokallaða „kalda blett“ sem þegar hefur myndast í Atlantshafinu sunnan Íslands – sjá myndir 1 og 2 – og líklega leiða til fordæmalauss öfgaveðurs. Þó að áhrifin á veðurmynstur, vistkerfi og mannlegar athafnir krefjist frekari rannsókna, bentu þeir á að þetta gæti hugsanlega stofnað í hættu búsetu og framleiðni landbúnaðar í norðvestur Evrópu.

Loks bentu vísindamennirnir á að mörg önnur áhrif verða líkleg á heimsvísu, þar á meðal hliðrun í hitabeltisúrkomu, minnkun upptöku koldíoxíðs í höfum (og þar með hraðari aukning í lofthjúpi), auk verulegrar hækkunar sjávarborðs, sérstaklega við Atlantshafsstrendur Bandaríkjanna og stórfeld truflun gæti orðið á sjávarvistkerfum og þar með fiskveiðum. Vísindamennirnir bentu á að þar sem aðlögun að svo alvarlegri loftslagsvá er ekki raunhæfur kostur, hvöttu þeir ráðherranefnd Norðurlandaráðs til að: bæði hefja mat á þessari verulegu áhættu fyrir Norðurlöndin og grípa til aðgerða til að lágmarka áhættuna sem mest. Þetta gæti falið í sér að nýta sterka alþjóðlegu stöðu Norðurlandanna til að auka þrýsting á hert viðbrögð og forgang í alþjóðlegu átaki um að draga úr losun gróðurhúslofttegunda sem hraðast, til að standa sem næst markmiði Parísarsamkomulagsins um 1,5°C hækkun meðalhita að hámarki.

Hringborð Norðurslóða 2025

Nú í ár kom Stefan Ramstorf aftur til Íslands til að kynna nýjar rannsóknir á AMOC á Hringborði norðurslóða. Rannsóknir benda til enn hærri líkinda en sagt var frá fyrir ári á hnignun langtíma stöðugleika veltihringrásarinnar í loftslagslíkanaspám sem ná út fyrir árið 2100 (til 2300–2500) undir mismunandi losunarspám gróðurhúsalofttegunda.[1] Aðalmarkmið rannsóknarinnar var að meta hvort breytingar í átt að afar veiku eða nánast stöðvun flæðis AMOC komi fram í þessum langtímalíkanaspám (CMIP6)[2], og ef svo er, að greina eðli, tímasetningu og afleiðingar slíkrar þróunar.

Rannsóknin greinir hluta CMIP6-líkana sem ná út fyrir 2100, undir háum, milðlungs og lágum losunarsviðsmyndum. Helstu greiningarmælikvarðar eru hámarkshafflæði (í Sverdrup (Sv) einingu – milljón km3 á sek), dýpt flæðis, blöndunarlagsdýpt á svæðum djúpblöndunar og norðurflutningur hita við 26° norðlægrar breiddargráðu ásamt varmaútstreymi til andrúmslofts norðan 45° breiddargráðu.

stefan1
Mynd 2Úr grein í Oceanography 37:3 árið 2024 eftir Stefan Ramstorf, upphaflega úr skýrslu IPCC.

Breytingar AMOC í átt að veiku flæði

Í öllum há-losunar líkanarspám þróast AMOC eftir árið 2100 í afar veikt flæði (< 6 Sv) undir yfirborðsblöndunarlagi („grunn flæðisástand“). Fyrir sviðsmyndir með meðal- og lága losun breytist hluti flæðis í svipað veikt flæði fyrir lok tímabilsins (á árunum 2300–2500). Þessi afar veiku flæði einkennast af: (a) minnkuðu magni flæðis (<6 Sv), (b) stöðvuðun djúpflæðis (djúphafsniðurdæling nánast hætt), og (c) grunnri hámarksflæðisdýpt, <200 m (í stað u.þ.b. 2 km). Í slíku ástandi minnkar norðurflutningur hita við 26° N niður í ~20–40% af núverandi gildi, og varmaútstreymi til andrúmslofts norðan 45° breiddargráðu fer niður í <20%, jafnvel næstum ekkert, sem bendir til verulegrar kólnunar í Atlantshafi sunnan Íslands og norðvestur af Evrópu. Núverandi mælingar og öll líkönin sem fjallað er um í greininni sýna þennan „kalda blett“ (sjá myndir 1 og 2) í nágrenni Íslands.

Hrun djúpblöndunar og hraði breytinga

Helstu niðurstöður líkanareikninga sýna að þegar yfirborðsflæði AMOC til norðurs veikist, leiðir það til hruns djúpblöndunar í Norður-Atlantshafi á miðri 21. öld (á árabilinu 2040–2080). Drifkraftur Atlandshafsveltihringrásarinnar er að saltur sjór frá Karíbahafinu sekkur í Norður-Atlantshafi vegna þess að hann hefur hærri eðlisþyngd en sjór með lága seltu. Hrun niðurflæðis og djúpsjávarmyndunar minnkar saltflutning til norðurs, sem gerir sjóinn ferskari. Eftir að djúpblöndun hrynur hverfur niðursökk yfirborðssjávar til djúpsjávar nær algjörlega, og hafstraumakerfið endurstillist í grunnflæði og veikt ástand veltihringrásarinnar næstu áratugina.

Þó að fall djúpblöndunar komi fram í líkanareikningunum á miðri 21. öld, þróast full breyting í veikt ástand yfir 50–100 ára tímabil. Þessi hægfara þróun getur gert það erfitt að greina skyndilega umbreytingu eða vendipunkt. Höfundar greinarinnar vara við því að líkönin geti vanmetið raunhæfa áhættu og hraða breytinga, þar sem margar líkanaspár innihalda ekki áhrif Grænlandsjökuls (t.d. bráðnun íss og aukið ferskvatn í norðri) eða önnur aflstyrkandi ferli veltihringrásarinnar.

Niðurstöður líkanareikninganna benda til þess að nær fullkomin stöðvun Atlantshafsveltiflæðis sé ekki fáránleg tilgáta, heldur raunhæf sviðsmynd, sérstaklega fyrir há losunarviðmið. Afleiðingar eru meðal annars mikil minnkun norðurflutnings sjávarhita sem dregur úr varmaflutningi til andrúmsloftsins á háum breiddargráðum og bendir til mikillar kólnunar í Atlantshafi sunnan Íslands og við norðvestur Evrópu. Breytingar hitaflutnings sjávar geta haft áhrif á loftstrauma, stormleiðir og úrkomumynstur. Djúphafið flytur þá ekki lengur varma og kolefni á áhrifaríkan hátt, sem getur haft víðtæk áhrif á koltvísýring, lagskiptingu, næringarefni og lífkerfi sjávar. Þessar niðurstöður benda til þess að mikil veltihringrásarbreyting sé líklegri en áður hefur verið talið, sem gerir hana afar mikilvæga í langtíma loftslagsáætlunum. Íslenska þjóðin, sem byggir sína afkomu til mikils á sjávarútvegi og ferðamennsku, ætti því að vera leiðandi í að draga úr útblæstri og hvetja aðrar þjóðir til hins sama – því það er eina leiðin til að minnka líkur á hnignun eða stöðvun veltihringrásarinnar.

Niðurstaða

Vísindamennirnir sýna að AMOC getur þróast í afar veikt flæði eftir árið 2100, sérstaklega undir háum losunarspám þar sem koltvísýringur í andrúmslofti eykst eða minnkar lítið og því hitnar lofthjúpur jarðar. Breytingin fer fram eftir hrun djúpblöndunar á miðri 21. öld og þróast smám saman á næstu áratugum. Þetta leiðir til verulegrar minnkunar á norðurflutningi hita og áhrifum á svæðisbundið loftslag. Þó óvissa sé til staðar, sýnir rannsóknin að möguleiki á AMOC-hnignun er raunhæf og mikilvægt er að fylgjast með þróun og aðgerðum til að draga úr losun. Í viðtali við Halldór Björnsson veðurfræðing í Speglinum í Ríkisútvarpinu þann 6. nóvember sl. kom fram að þó hann vildi ekki meta líkurnar á hnignun AMOC, þá væri hugmyndin um möguleika hnignunar og afleiðingar hennar svo stórvægilegar að mikilvægt væri að draga verulega úr losun, sem fyrst enda væri það raunhæfasta leiðin til að minnka hnignunarmöguleikana veltihringrásarinnar. Á COP30 loftslagsráðstefnunni í Belen í Brasilíu nú í vikunni lagði Jóhann Páll áherslu á það sama – að nauðsynlegt sé að draga verulega úr losun til að tryggja stöðugleika loftslagskerfa – þar á meðal Amazon í Suður Ameríku og AMOC í Norður Atlandshafi.

Ef könnuð er árleg losun gróðurhúsalofttegunda á heimsvísu, þá kemur í ljós að hún hefur aukist stöðugt frá ári til árs fram til þessa árs, jafnvel síðan Parísarsamkomulagið var samþykkt árið 2015. Stefan Ramstorf gerði það að umfjöllunarefni á Hringborði norðurslóða að í sviðsmynd með hárri losun séu líkurnar á stöðvun AMOC fyrir lok aldarinnar 70%; ef útblástur er miðlungshár eru líkurnar 50% en ef dregið er verulega úr útblæstri eru líkurnar 25%. Kólnun á Íslandi gæti orðið að meðaltali meira en fimm gráðum lægri en nú ef AMOC stöðvast. Slíkt hitastig er nú að finna á miðaustur Grænlandi og norðaustur Svalvarða. Meðalhiti var einni til tveimur gráðum lægri en nú á litlu ísöldinni. Kólnunin vegna AMOC stöðvunar er því meira en tvisar sinnum meiri og möguleiki er að vetrarkuldi á Íslandi og borgum Norður Evrópu gæti farið niður í -50oC.

Eins og kemur fram hér að ofan er bráðnun Grænlandsjökuls ekki tekin með í þessum líkanareikninum, sem kemur að öllum óbreyttu til að minnka seltu yfirborðssjávar verulega og flýta fyrir hnignun niðurflæðis og þar með AMOC straumsins. Einnig er bráðnun sífrera ekki með í reikningunum, en það kom fram í erindi dr. Susan Natali frá Woodwell Climate Research Centre í Bandaríkjunum á Hringborði norðurslóða að slík bráðnun muni á næstu 75 árum bæta við 387 Gt CO2e[3] (lítil losun) til 625 Gt (mikil losun) fyrir árið 2100. Þetta er sem næst 10-15 ára árlegum útblæstri á heimsvísu miðað við nær 40 Gt CO2e núverandi árlegs útbláturs – sem kemur til með að auka hlýnun lofthjúpsins og auka þar með líkurnar enn frekar á hnignun AMOC.

Hver myndi fara upp í flugvél ef líkurnar á að hún myndi hrapa væri 5% spurði Stefan Ramstorf á Hringborði norðurslóða? Og líkurnar á hnignun AMOC eru allavega 25%. Líklega hærri ef ekki verður dregið rækilega úr útblæstri, og bráðnun Grænlandsjökuls og sífrera á noðurslóðum tekin með í reikninginn.

Hvað eru öryggisráð þjóða að hugsa? Þann 4. nóvember sl. var tilkynnt um vægari markmið Evrópusambandsins hvað útblástur varðar. Aðgerðaráætlun íslensku ríkistjórnarinnar í loftslagsmálum hefur verið í uppnámi vegna áralangrar mistúlkunar á losunarmarkmiðum Íslands skv. ESB samningum og auk þess hefur vantað tölulegar og tímasettar loftslagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar. Þó nú séu blikur á lofti þá er viss vonarglæta um að núverandi ríkisstjórn ætli sér að draga verulega úr útblæstri. Í nýuppfærðu landsframlagi skuldbindur Ísland sig til að ná 50-55% samdrætti í samfélaglosun fyrir árið 2035 (miðað við 2005). Á landi ætlar Ísland að ná árlegum samdrætti í losun um 400-500 þúsund tonn CO2 árið 2035. Einnig er stefnt að samdrætti í losun frá iðnaði sem fellur undir ETS-kerfi ESB með því að styðja við tæknilausnir.

Þetta eru metnaðarfull markmið því staðreyndin er að heildarlosun Íslands jókst um 6,6% frá 2005-2024 samkvæmt tölum Umhverfis-og orkustofnunar og er meginorsökin nær tvöföldun losunar frá stóriðju á tímabilinu. Vanræksla fráfarandi ríkisstjórna og stóriðju á því að taka ábyrgð gagnvart loftslagsvánni er því gífurleg. Ég kalla hér eftir því að núverandi ríkisstjórn, Samtök iðnaðarins, Samtök atvinnulífsins og Viðskiptaráð hætti að kalla eftir losunarívilnunum eins og gert hefur verið undanfarna áratugi en sýni þess í stað ábyrgð og metnað við að minnka losun á gróðurhúsalofttegundum. Fyrr hefði mátt vera!

Tilvísanir

  1. Drijfhout, S., Angevaare, J. R., Mecking, J., van Westen, R. M., & Rahmstorf, S. (2025). Shutdown of northern Atlantic overturning after 2100 following deep mixing collapse in CMIP6 projections. Environmental Research Letters, 20(9), 094062. https://doi.org/10.1088/1748 9326/adfa3b

    ↩
  2. CMIP6 – nýjustu loftslagsgögn sem nýtt eru fyrir líkön loftslagsvísindamanna, m.a. í 6. mati IPCC (milliríkjanefnd um loftlagsbreytingar)

    ↩
  3. CO2e stendur fyrir koltvísýringsígildi (e. carbon dioxide equivalents) þar sem virkni allra góðurhúslofttegundar er reiknuð yfir í ígildi áhrifa CO2 á hlýnun lofthjúpsins.

    ↩

Næsta grein

Mest lesið
1
Efnahagsmál

Um virði hagtalna

2
Umhverfi

Íslenskir jöklar á hverfanda hveli

3
Aðrir sálmar

Þrjár gráður

4
Efnahagsmál

Hvað er sjálfbær launaþróun?

5
Aðrir sálmar

Óheppileg orð

6
Efnahagsmál

Pólitískar afleiðingar efnahagslegrar óvissu


Vetur
Efnahagsmál 37. tbl.

Um virði hagtalna

Traust á opinberum hagtölum skiptir sköpum fyrir hagstjórn og ákvarðanatöku.
Framkvæmdir í Reykjavík
Efnahagsmál 36. tbl.

Hvað er sjálf­bær launa­þró­un?

Verðbólga, framleiðni og mörk launasvigrúmsins
Anti-Fascist Economics 2026 Isabella Weber
Efnahagsmál 36. tbl.

Póli­tísk­ar af­leið­ing­ar efna­hags­legr­ar óvissu

Lífskjarakrísan: Stýrivextir eru harkalegt tól í baráttunni gegn hækkandi verði á nauðsynjavörum