FX error None
Stýrivextir 7,2%
Verðbólga 5,2%
Mannfjöldi 394.530
FX error None
Stýrivextir 7,2%
Verðbólga 5,2%
Mannfjöldi 394.530
Til baka

Við­horf og við­bragð

Víðsjárverðir tímar í vályndum heimi

Grænland
Mynd: AFP

Afl hinna ríku og sterku ræðu nú miklu um ástandið í okkar heimshluta, líka hérlendis. Svo segir loftslagsfræðingur Umhverfis- og orkustofnunar í viðtali við Ríkisútvarpið fyrir áramótin að minna þurfi þá á sem eru veikir fyrir í lungunum og með öndunarfærasjúkdóma að mikilvægt sé að þeir taki lyfin sín og loki gluggum, væntanlega til þess að hinir hraustu og sterku geti sprengt kökur á gamlárskvöld. Lognið hefur áður verið sagt ástæða mengunar af sérfræðingum stofnunarinnar, ekki hinir raunverulegu mengunarvaldar. Á svipaðan hátt er reglulega minnt á að hjólreiðamenn og gangandi vegfarendur noti ljósan klæðnað og endurskinsmerki til þess að bílarnir keyri ekki á þau. Sjaldnar er hvatt til að bílstjórar fari varlega og taki tillit, eða minnt á að þeir sem stjórna bifreiðum hafi ekki vald yfir hinum sem forðast ökutæki með sprengihreyfla.

Mikill menningarmunur er nú magnaður upp á hinu alþjóðlega sviði. Sá sem á stærsta og öflugasta herinn virðist fá að ráða yfir þeim landsvæðinu sem hann langar í. Hann fær líka að taka bát sem er innan íslensku lögsögunnar með hernaðaraðgerð frá öðru nágrannalandi. Rætt er af alvöru um að hann muni taka Grænland nú þegar að hann hefur eignað sér Venesúela, en þar skaut hann niður báta í lögsögunni á síðast ári og hertók forsetann í forsetahöllinni um síðustu helgi. Fjalla ég nánar um áhrifin á horfur í efnahag heimsins í grein í Heimildinni sem kom út í dag.

Meðvirkni með hinum freku og sterku getur verið stórhættuleg, alveg eins og sú hegðun að bjóða þeim byrginn. Gegn þeim hættum mætti ganga í bandalag. Það hvort að Íslendingar geti fjallað um aðild að Evrópusambandinu gæti orðið afgerandi fyrir afdrif okkar varnarlausu smáþjóðar í stöðugt harðnandi heimi. Báðar greinar fyrsta vikurits ársins fjalla um þau mikilvægu mál.

Næsta grein

Mest lesið
1
Efnahagsmál

Stjórnmálin mega ekki bara fara sínu fram

2
Efnahagsmál

Ósamhverf áhrif gengis­breytinga á verð mat- og drykkjarvöru

3
Alþjóðamál

Frá lögmæti til „banvæns“ valds

4
Menntamál

Að endurheimta fræðasamfélagið: Háskólar þurfa meira en mælingar

5
Húsnæðismál

Grænt gímald – nýtt hugtak í skipulagsmálum?

6
Efnahagsmál

Áhrif mismunandi skattlagningar lífeyrissjóða

Alþingi
Efnahagsmál 7. tbl.

Nokk­ur orð um gagn­rýni á frum­varp um launa­vísi­tölu

Bak við tæknilegar lagabreytingar leynist grundvallarspurning um réttindi
4dNJz7wPB4Ww_900x600_G97J2gYQ
Aðrir sálmar 7. tbl.

Mik­il­vægi mæl­inga

og gagnrýninnar umfjöllunar um þær
IMG_3749
Efnahagsmál 7. tbl.

Er rétt að leggja spá­deild Hag­stofu Ís­lands nið­ur?

Hagspár snúast ekki eingöngu um tölur heldur traust, aðferðir og túlkun.
Skóli, menntun
Menntamál 6. tbl.

Að end­ur­heimta fræða­sam­fé­lag­ið: Há­skól­ar þurfa meira en mæl­ing­ar


Verslun, Matvörur
Efnahagsmál 6. tbl.

Ósam­hverf áhrif geng­is­breyt­inga á verð mat- og drykkj­ar­vöru

Gengishækkun hefur síður áhrif til lækkunar verðlags á meðan gengislækkun leiðir frekar til verðhækkunar. Ástæðan getur verið skortur á samkeppni eða merki um að neytendur séu ekki nægilega vakandi fyrir verðbreytingum.
Mannlíf í Reykjavík
Aðrir sálmar 6. tbl.

Meira en og minna en

> & <
Alþingi
Efnahagsmál 5. tbl.

Stjórn­mál­in mega ekki bara fara sínu fram

Mistök við hagstjórn getur verið erfitt að leiðrétta
afp-20260118-934r9ke-v1-highres-greenlandgermanydenmarkusdemonstration
Alþjóðamál 5. tbl.

Frá lög­mæti til „ban­væns“ valds

Um vald, öryggi og veikleika hernaðarlegra yfirburða