Frumkvöðlakraftur til þess að þróa róbóta sem skipta um rúmföt ætti að vera til staðar hérlendis nú þegar ferðaþjónustan er okkar stærsta útflutningsgrein líkt og fyrir fiskvinnsluvélar fyrir áratugum þegar fiskur var það. Hærri laun ræstingafólks auka hvatana til þeirrar nýsköpunar en lág laun þess hluta vinnuaflsins draga úr þeim hvata.
Fjármálavæðing og alþjóðavæðing haldast í hendur. Alþjóðavæðing felur í sér margar áskoranir. Ábyrgðarskylda fjármálastofnana er að veita fjármagni til góðra verkefna en ekki slæmra.
Í vikunni kom út skýrsla frá Efnahags- og framfarastofnuninni (e. OECD) um efnahag Íslands. Til viðbótar við almennt yfirlit á stöðu hagkerfisins var að þessu sinni sérstök umfjöllun um efnahagslegar áskoranir sem blasa við Íslandi í dag.