USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
Til baka

Áfram einn mesti vaxta­kostn­að­ur í Evr­ópu

Seðlabanki Íslands Seðlabankinn
Mynd: Seðlabankinn

Fátt kom á óvart í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2024. Flest allt hafði komið fram, með einhverjum hætti, í fjármálaáætlun fyrir næstu fimm ár eða á blaðamannafundum sem haldnir hafa verið reglulega til að greina frá því að afkoma ríkisins sé betri en áætlanir gerðu ráð fyrir.

Þrátt fyrir allar nýju virðisaukaskattstekjurnar sem tvær milljónir ferðamanna koma með inn í landið, og þrátt fyrir alla nýju tekjuskattsgreiðendurna sem flutt hafa til Íslands til að þjónusta þá ferðamenn, er enn halli á rekstri ríkissjóðs. Í ár verður hann 41 milljarður króna á næsta ári er stefnt að því að hann verði 46 milljarðar króna.

Frumvarpið inniheldur nokkrar nýjar leiðir til að innheimta tekjur, meðal annars af bifreiðareigendum, auk þess sem fiskeldisiðnaðurinn þarf að borga lítillega hærri sértæka skatta og gistináttaskattur verður loks endurvakinn, nú þannig að hann nái líka til skemmtiferðaskipa. Lítið er um aðhald í ríkisrekstrinum og einu skrefin sem stíga á til að greiða niður skuldir sala á hlut ríkisins í Íslandsbanka.

Skuldirnar hafa aukist hratt á síðustu árum. Fyrst vegna þess að ríkið brást við efnahagslegum afleiðingum kórónuveirunnar og svo vegna þess að það er erfitt fyrir ríkisstjórn þvert yfir hið pólitíska litróf að hætta eyðslu sem er hafin. Þegar verðbólgan fór á flug, og reyndist þrálát, varð ljóst að þessi aukna skuldasöfnun myndi reynast dýrt spaug.

Á næsta ári er áætlað að 111 milljarðar króna verði greiddir í vaxtagjöld á árinu 2024, um 14 milljörðum krónum meira en reiknað var með þegar fimm ára fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar var kynnt í fyrravor. Í fjárlagafrumvarpinu segir að breytinguna megi „að stærstum hluta rekja til hærra vaxtastigs en ávöxtunarkrafa ríkisbréfa hefur hækkað skarpt á undanförnum mánuðum.“

Þessi staða kemur ofan á það að Ísland var fyrir eitt þeirra landa sem greiddu hæstu vaxtagjöldin, þegar þau eru reiknuð sem hlutfall af landsframleiðslu. …

Fáðu áskrift til að lesa

Áskrift að Vísbendingu hæfir þeim sem hafa gaman að óvilhöllum greiningum og gagn af greinargóðum upplýsingum um efnahagsmál, viðskipti og nýsköpun.

Næsta grein

Mest lesið
1
Atvinna

Er atvinnuleysi innflytjenda næmara fyrir hagsveiflum?

2
Aðrir sálmar

Gylfaginning

3
Loftslagsmál

París, prósentur og prófsteinninn

4
Aðrir sálmar

Af Atómstöðinni

5
Opinber fjármál

Nýtt grunnviðmið fyrir stjórnarhætti opinberra aðila

6
Umhverfi

Ef Ísland væri borg á meginlandi Evrópu

Reykjavíkurhöfn
Efnahagsmál 32. tbl.

Hvert er mark­mið efna­hags­lífs­ins?

Mikilvægi skilnings á samhengi og hugtökum
Reykjavík

Staða há­skóla­mennt­aðra á hús­næð­is­mark­aði

Ný könnun Félagsvísindastofnunar HÍ bendir til þess að háskólamenntun ein og sér tryggi ekki greiða leið inn á húsnæðismarkað. Flestir eignast að lokum eigið húsnæði, en leiðin þangað virðist orðin lengri og kostnaðarsamari en áður og byggist oft á stuðningi fjölskyldu, skuldsetningu og miklu vinnuframlagi.
Stjórnarráðið
Efnahagsmál 31. tbl.

Til hvers eru op­in­ber fjár­mál?

Mikilvægi umræðunnar um tölur og orð

Peningar
Efnahagsmál 31. tbl.

Und­ir­liggj­andi kostn­að­ar­þrýst­ing­ur

Launa-framleiðnibilið, framlegð og atvinnustig á Íslandi
AFP__20240320__economou-notitle240319_npstx__v1__HighRes__EuFlagsInBrussels

Evr­ópa og nýi heim­ur­inn

vesturheimur og vesturveldin eru hugtök til að endurskilgreina