USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
Til baka

Mis­skiln­ing­ur um verð­bólgu

Margt bendir til þess að dregið hafi úr heildareftirspurn í hagkerfinu þrátt fyrir góða innspýtingu í ferðaþjónustu eftir enn annað útsýnisvænt eldgos. Það að draga úr heildareftirspurn var einmitt ætlunarverk stýrivaxtahækkana sem hafa nú verið hækkaðir þrettán sinnum síðan um mitt ár 2021. Hækkanirnar hafa m.a. átt hlut í að draga úr útistandandi íbúðalánum og hlut í að raunverð íbúða fer nú lækkandi. Margt bendir til þess að þessar sögulegu stýrivaxtahækkanir séu að hafa áhrif. Spurningin er nú hvort peningastefnunefnd telji þau áhrif nægileg.

Næsta stýrivaxtaákvörðun verður 23. ágúst og heyrast raddir um að sé galið ef stýrivextir verði hækkaðir því verðbólga hefur lækkað. Síðastliðinn febrúar var verðbólga 10,2% og hefur hún lækkað síðan þá. Hins vegar er þetta þó ekki öll sagan. Þegar talað er um verðbólgu er venjan sú að það sé átt við árlega prósentubreytingu í vísitölu neysluverðs. Þetta þýðir að breytingar á verðbólgu eru háðar hver neysluverðsvísitala var á sama tíma í fyrra.

Frá febrúar til júlí 2022 hækkaði neysluverðsvísitalan mikið milli mánaða samanborið við fyrri ár. Þetta veldur því að þrátt fyrir að dregið hafi úr árlegri breytingu í vísitölu neysluverðs síðan í febrúar, það sem í daglegu tali er kölluð verðbólga, hefur neysluverðsvísitalan hækkað um 3,2% yfir sama tímabil. Til samanburðar er þessi hækkun vísitölunnar hærri en síðastliðið haust þegar árleg breyting vísitölunnar fór hækkandi og hærri en 2021 þegar árleg breyting hennar var lítil.

Að verðbólga fari lækkandi er þar með í raun aðeins rétt ef átt við árlega breytingu í vísitölu neysluverð en ekki rétt ef horft er til mánaðarlegra breytinga á sjálfri vísitölunni. Þegar búist er við að fólk viti hvað átt er við án útskýringa býður það upp á misskilning. Vonir um lægri mælingar á neysluverðsvísitölu er þó að sjá í nýjustu mánaðarmælingu, þó það þyrfti mun fleiri slíkar mælingar …

Fáðu áskrift til að lesa

Áskrift að Vísbendingu hæfir þeim sem hafa gaman að óvilhöllum greiningum og gagn af greinargóðum upplýsingum um efnahagsmál, viðskipti og nýsköpun.

Næsta grein

Mest lesið
1
Atvinna

Er atvinnuleysi innflytjenda næmara fyrir hagsveiflum?

2
Aðrir sálmar

Gylfaginning

3
Loftslagsmál

París, prósentur og prófsteinninn

4
Aðrir sálmar

Af Atómstöðinni

5
Opinber fjármál

Nýtt grunnviðmið fyrir stjórnarhætti opinberra aðila

6
Umhverfi

Ef Ísland væri borg á meginlandi Evrópu

Reykjavíkurhöfn
Efnahagsmál 32. tbl.

Hvert er mark­mið efna­hags­lífs­ins?

Mikilvægi skilnings á samhengi og hugtökum
Reykjavík

Staða há­skóla­mennt­aðra á hús­næð­is­mark­aði

Ný könnun Félagsvísindastofnunar HÍ bendir til þess að háskólamenntun ein og sér tryggi ekki greiða leið inn á húsnæðismarkað. Flestir eignast að lokum eigið húsnæði, en leiðin þangað virðist orðin lengri og kostnaðarsamari en áður og byggist oft á stuðningi fjölskyldu, skuldsetningu og miklu vinnuframlagi.
Stjórnarráðið
Efnahagsmál 31. tbl.

Til hvers eru op­in­ber fjár­mál?

Mikilvægi umræðunnar um tölur og orð

Peningar
Efnahagsmál 31. tbl.

Und­ir­liggj­andi kostn­að­ar­þrýst­ing­ur

Launa-framleiðnibilið, framlegð og atvinnustig á Íslandi
AFP__20240320__economou-notitle240319_npstx__v1__HighRes__EuFlagsInBrussels

Evr­ópa og nýi heim­ur­inn

vesturheimur og vesturveldin eru hugtök til að endurskilgreina