
Í vikunni kom út skýrsla frá Efnahags- og framfarastofnuninni (e. OECD) um efnahag Íslands. Til viðbótar við almennt yfirlit á stöðu hagkerfisins var að þessu sinni sérstök umfjöllun um efnahagslegar áskoranir sem blasa við Íslandi í dag. Í samantekt þeirra kom fram að það þurfi að herða opinber fjármál, bæta mennta- og atvinnulíf og stuðla að minni losun gróðurhúsalofttegunda en helst var lögð áhersla á ráðleggingar um hvernig megi bæta verkferla í útlendingamálum.
Fólksflutningar hafa nefnilega aukist meira hér á landi en í nágrannalöndum að undanförnu sem er jákvæð þróun. Á síðu 16 í kynningu OECD er að finna þeirra mat á framlagi innflytjenda til VLF frá árinu 2019 en það er áætlað rúm 6% árið 2030 og rúm 10% árið 2040. Þær tölur eru langt umfram það sem þekkist á Norðurlöndum þar sem sambærilegar tölur eru um 2,5% fyrir árið 2030 og um 5,2% fyrir árið 2040. Þeir innflytjendur sem koma til Íslands eru einnig mun yngri en annars staðar og hlutfall vinnandi hæst í allri Evrópu. Atvinnuþátttaka þeirra er að auki meiri en innfæddra Íslendinga sem lengi hefur verið há samanborið við önnur lönd. Til þess að fullnýta þann ágóða sem fylgir fólksflutningum hingað til lands þarf hins vegar að bæta tungumálakennslu, auka þjálfun kennara í skólum og byggja meira húsnæði.
Heilt yfir þarf meiri greiningarvinnu til þess að meta allan þann ágóða sem fylgir innflytjendum. Að til verði góðar og aðgengilegar upplýsingar um þann málaflokk hjálpar almennri umræðu um innflytjendur og stuðlar að því að hún afvegaleiðast ekki eins og þekkt er orðið, t.d. í Bandaríkjunum …







