USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
Til baka

Verk­efna­list­ar gegn verð­bólgu

Kynntar voru í vikunni langþráðar aðgerðir til að sporna gegn verðbólgu

Reykjavík

Ríkisstjórnin kynnti í vikunni langþráðar aðgerðir til að sporna gegn verðbólgu. Margir hafa kallað eftir slíkum aðgerðum. T.a.m. hefur Seðlabankinn nokkrum sinnum talið sig heldur einmanna í baráttunni við verðbólguna og ýmsir einstaklingar úr fræðasamfélaginu hafa einnig sagt slíkar aðgerðir nauðsyn. Þótt í aðgerðarpakkanum sé lítið um aðgerðir sem draga beint úr eftirspurn í hagkerfinu, á við beinar skattahækkanir, er að finna í þeim ýmsar aðgerðir til að aðstoða tekjulægstu hópa samfélagsins.

Helstu aðgerðir sem ríkisstjórnin kynnti til að draga úr eftirspurn var að fresta opinberum framkvæmdum, hækka gjaldtöku á ferðaþjónustu og fiskeldi og flýta nýjum hertari fjármálareglum. Ýmislegt liggur þó ekki enn fyrir í þeim málum, t.d. hvernig gjaldtaka ferðaþjónustu verður aukin. Til að aðstoða tekjulægri hópa ætlar ríkisstjórnin að auka stofnframlög til uppbyggingar leiguíbúða, auka bætur almannatrygginga ásamt húsa- og barnabætur og hækka persónuafslátt. Táknrænasta breytingin er þó að laun alþingismanna og ráðherra munu hækka um verðbólgumarkmið Seðlabankans, 2,5%, í stað 6%. Slík aðgerð mun líklega hafa lítil bein áhrif á verðbólguþrýsting en flest bendir þó til þess að svo hógvær launahækkun sé frekar hugsuð til að hafa afleidd áhrif inn í aðrar kjaraviðræður.

Stjórnarandstaðan hefur sakað ríkisstjórnina um blekkingar og segja aðgerðirnar vera endurunnar. Nokkrir hafa nú sagt á Alþingi að í aðgerðarpakkanum sé í raun ekkert nýtt og að í honum séu í raun mest megnis það sem þegar hafði komið fram í fjármálaáætlun, en hún var lögð fyrir í lok mars þegar verðbólguhorfur voru skárri en þær eru í dag.

Samfylkingin hefur kynnt sinn eigin verkefnalista á tímum verðbólgu þar sem lagt er til að setja á leigubremsu. Skiptar skoðanir eru um ágæti slíkra aðgerða og hefur afnám leigustýringar í Boston árið 1995 verið nefnt sem dæmi í þeim málum, en þar stórjókst íbúðarfjárfesting eftir afnámið. Slík aðgerð er hins vegar komin aftur á borð …

Fáðu áskrift til að lesa

Áskrift að Vísbendingu hæfir þeim sem hafa gaman að óvilhöllum greiningum og gagn af greinargóðum upplýsingum um efnahagsmál, viðskipti og nýsköpun.

Næsta grein

Mest lesið
1
Atvinna

Er atvinnuleysi innflytjenda næmara fyrir hagsveiflum?

2
Aðrir sálmar

Gylfaginning

3
Loftslagsmál

París, prósentur og prófsteinninn

4
Aðrir sálmar

Af Atómstöðinni

5
Opinber fjármál

Nýtt grunnviðmið fyrir stjórnarhætti opinberra aðila

6
Umhverfi

Ef Ísland væri borg á meginlandi Evrópu

Reykjavíkurhöfn
Efnahagsmál 32. tbl.

Hvert er mark­mið efna­hags­lífs­ins?

Mikilvægi skilnings á samhengi og hugtökum
Reykjavík

Staða há­skóla­mennt­aðra á hús­næð­is­mark­aði

Ný könnun Félagsvísindastofnunar HÍ bendir til þess að háskólamenntun ein og sér tryggi ekki greiða leið inn á húsnæðismarkað. Flestir eignast að lokum eigið húsnæði, en leiðin þangað virðist orðin lengri og kostnaðarsamari en áður og byggist oft á stuðningi fjölskyldu, skuldsetningu og miklu vinnuframlagi.
Stjórnarráðið
Efnahagsmál 31. tbl.

Til hvers eru op­in­ber fjár­mál?

Mikilvægi umræðunnar um tölur og orð

Peningar
Efnahagsmál 31. tbl.

Und­ir­liggj­andi kostn­að­ar­þrýst­ing­ur

Launa-framleiðnibilið, framlegð og atvinnustig á Íslandi
AFP__20240320__economou-notitle240319_npstx__v1__HighRes__EuFlagsInBrussels

Evr­ópa og nýi heim­ur­inn

vesturheimur og vesturveldin eru hugtök til að endurskilgreina