USD 125,6 -0,1%
EUR 145,1 0,6%
GBP 167,7 0,6%
DKK 19,4 0,6%
SEK 13,6 1,2%
NOK 13,0 0,7%
CHF 161,1 0,9%
CAD 92,5 0,9%
JPY 0,8 0,5%
Stýrivextir 7,2%
Verðbólga 5,2%
Mannfjöldi 394.530
USD 125,6 -0,1%
EUR 145,1 0,6%
GBP 167,7 0,6%
DKK 19,4 0,6%
SEK 13,6 1,2%
NOK 13,0 0,7%
CHF 161,1 0,9%
CAD 92,5 0,9%
JPY 0,8 0,5%
Stýrivextir 7,2%
Verðbólga 5,2%
Mannfjöldi 394.530
Til baka

Ein­lyndi og marg­lyndi

Samfélagslegar áskoranir kalla á félagslegan skilning sem þarf að ná út fyrir okkar eigin þrönga hugmyndaramma.

Þeir tímar sem við nú lifum kalla á margþætta íhugun um líf okkar og tilveruna sem við lifum í.

Annars vegar vegna vaxandi stríðsátaka í heiminum. Ekki einvörðungi í Úkraínu og með líklegu þjóðarmorði í sjálfstæðu og fullvalda ríki Palestínu, sem við höfum viðurkennt. Heldur á nú sér stað stigmögnun með innrásum Ísraels í fleiri ríki þar um slóðir, sem hefur með manndrápum og eyðileggingu einnig efnahagslegar afleiðingar. Þær birtast meðal annars í hækkun höfuðstóls íslenskra húsnæðislána, sem eru verðtryggð, vegna hækkunar olíuverðs um 10% í síðustu viku. Þó að verðið (á olíunni, en ekki íslensku húsnæði) hafi raunar lækkað aftur í þessari viku, vegna minni opinberra ríkisútgjalda í næst stærsta efnahagsveldi heimsins. Það að kínverski ríkissjóðurinn hafi ekki efnt til væntrar efnahagslegrar örvunar, olli mörkuðum svo miklum vonbrigðum að olíuverð lækkaði.

Hins vegar standa yfir mestu umbreytingatímar vegna tækniþróunar sem mannkynið hefur horft framan í. Þar er bæði um að ræða nýleg tæki sem eru stöðugt í lófa fólks og hafa áhrif á sjón og hnakka með því láta okkur horfa stöðugt í gaupnir okkar. Þannig að það gleymist að veita börnum athyglina sem þau þurfa til að heilinn í þeim nái að þroskast. Svo er einnig yfirstandandi ósýnileg umbyltingin vegna gervigreindar sem gerbreytir nú störfum hins bóknáms menntaða vinnuafls líkt og iðnbyltingin gerði fyrir hinn verklega hluta vinnuaflsins.

Stríðin og tæknibyltingar sem nú standa yfir kalla á ígrundun um samfélagið okkar og hvernig við skipuleggjum það. Báðar greinarnar í blaði vikunnar taka á því efni, hvor með sínum hætti. Stjórnvöld, efnahagskerfið og við öll einstaklingarnir verðum að leggja okkar af mörkum. Líkt og Sigurður Nordal greindi í erindum sínum frá árunum 1918-1919, þaðan sem fyrirsögn þessa pistils er fengin, þá verðum við að ná að samrýma hinar ósamrýmanlegu andstæður einlyndis, einbeitingarinnar og marglyndis, fjölbreytileikans.

Næsta grein

Mest lesið
1
Loftslagsmál

Um bókina Hitamál eftir Frosta Sigurjónsson

2
Efnahagsmál

Ósamhverf áhrif gengis­breytinga á verð mat- og drykkjarvöru

3
Efnahagsmál

Um DNA og verðbólgu

4
Menntamál

Að endurheimta fræðasamfélagið: Háskólar þurfa meira en mælingar

5
Efnahagsmál

Nokkur orð um gagnrýni á frumvarp um launavísitölu

6
Efnahagsmál

Er rétt að leggja spádeild Hagstofu Íslands niður?

Mannlíf í Reykjavík
Vinnumarkaður 10. tbl.

Ís­lensk­ur vinnu­mark­að­ur á tíma­mót­um

Lýðfræði, áskoranir og ný forgangsröðun
Mannlíf í Reykjavík
Lífeyrismál 10. tbl.

Elli­líf­eyr­ir og vísi­töl­ur

Aðrir sálmar 10. tbl.

Hern­að­ur og auð­legð

250 ára bók og tvær vikur af sprengjuárásum með stríði sem veldur verðbólgu
Loftslagsmál 9. tbl.

Um bók­ina Hita­mál eft­ir Frosta Sig­ur­jóns­son

Ýtarleg úttekt með rýni og staðreyndaprófunum samkvæmt vísindalegum aðferðum. Inngangsgrein að þessari úttekt birtist í 9. tbl. 44. árg. vikuritsins Vísbendingar.

Iceland.A2004028.1355.500m
Nýsköpun 9. tbl.

Þetta sögðu þrjú hund­ruð frum­kvöðl­ar

Um nýsköpunarumhverfið hérlendis
Umferð, Reykjavík
Aðrir sálmar 9. tbl.

Vís­indi og ný­sköp­un

Þurfa að spila saman og hanga saman
Jöklar dsf8175h
Loftslagsmál 9. tbl.

Gildi vís­inda og vís­inda­legr­ar gagn­rýni

Um hitamál og bábiljur
Aðrir sálmar 8. tbl.

Er verð­bólg­an kom­in til að ver­a?

Tvær, tvær og hálf, fjórar eða fimm prósentur