USD 125,4 0,5%
EUR 137,2
GBP 164,0 0,1%
DKK 18,4
SEK 12,2 -0,2%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 149,4 0,4%
CAD 87,3 0,1%
JPY 0,8 0,2%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 397.710
USD 125,4 0,5%
EUR 137,2
GBP 164,0 0,1%
DKK 18,4
SEK 12,2 -0,2%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 149,4 0,4%
CAD 87,3 0,1%
JPY 0,8 0,2%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 397.710
Til baka

Ís­lensk­ur vinnu­mark­að­ur á tíma­mót­um

Lýðfræði, áskoranir og ný forgangsröðun

Mannlíf í Reykjavík
Mynd: Davíð Þór

Lýðfræði, áskoranir og ný forgangsröðun

Íslenskur vinnumarkaður stendur frammi fyrir kerfislægum breytingum sem munu móta þjóðarbúið á komandi áratugum. Áskorunin sem blasir við er ekki hefðbundin hagsveifla heldur djúpstæð lýðfræðileg umbreyting sem mun hafa áhrif á hagvöxt, opinber fjármál og lífsgæði til framtíðar.

vefmynd-01

Fæðingartíðni á Íslandi hefur í rúman áratug verið undir því marki sem þarf til að viðhalda stöðugum mannfjölda. Árið 2024 fæddust 4.311 börn hér á landi og árgangurinn er meðal þeirra fámennustu í heildarfjölda frá upphafi mælinga. Þessi þróun breytir grundvallarjafnvægi vinnumarkaðarins og eykur þrýsting á velferðarkerfið. Hlutfall starfandi lækkar, tekjustofnar hins opinbera veikjast og útgjöld aukast.

Þetta er ekki hagsveifla sem gengur yfir, heldur varanleg breyting. Án aukinnar framleiðni og markvissrar nýtingar mannauðs mun þessi þróun draga úr hagvexti og veikja efnahagslega stöðu landsins til lengri tíma.

Innlent vinnuafl er ekki lengur sjálfgefinn drifkraftur hagvaxtar

Íslenskur vinnumarkaður hefur um árabil notið góðs af fjölgun starfandi fólks. Sú þróun er hins vegar að breytast. Innlendir árgangar á vinnualdri vaxa hægar en áður og hlutfall starfandi af heildarmannfjölda er farið að lækka.

Þegar færri greiða skatta og opinber gjöld verður ríkissjóður undir meiri þrýstingi. Þá hægir á tekjuvexti hins opinbera á sama tíma og fleiri þurfa á heilbrigðisþjónustu, félagslegri aðstoð og menntun að halda. Ef okkur tekst ekki að auka verðmætasköpun á íbúa mun þessi þróun veikja getu samfélagsins til að fjármagna velferðarkerfið og halda uppi góðri þjónustu.

Innflytjendur sem burðarás vinnumarkaðarins

vefmynd-02

Undanfarna tvo áratugi hefur vöxtur vinnumarkaðarins verið borinn uppi af innflytjendum. Starfandi fólki á íslenskum vinnumarkaði hefur fjölgað um 37% á tímabilinu, en 73% þeirrar fjölgunar má rekja til innflytjenda. Án innflytjenda hefði fjölgun vinnandi fólks einungis verið um 10%.

Innflytjendur starfa í auknum mæli í atvinnugreinum sem eru lykilstoðir hagkerfisins, svo sem ferðaþjónustu, byggingariðnaði, matvælavinnslu og umönnunar- og stoðstörfum. Þeir hafa þannig orðið burðarás í viðhaldi hagvaxtar og þjónustustigs.

Samhliða þessu blasir við misræmi sem hefur bæði efnahagslega og samfélagslega þýðingu. Rúmlega 40% háskólamenntaðra innflytjenda eru í störfum sem samræmast ekki menntun þeirra. Er það hlutfall hér á landi mun hærra en í flestum OECD-ríkjum. Þetta þýðir að samfélagið nýtir ekki þá reynslu og menntun sem stór hópur innflytjenda býr yfir, á sama tíma og skortur er á sérfræðingum í heilbrigðis-, mennta- og velferðarkerfi. Til að bregðast við þessari stöðu hafa stjórnvöld sett sér markmið um að auka líkurnar á að menntun og hæfni innflytjenda nýtist betur.

Í ljósi vaxandi öldrunar þjóða víða um heim mun samkeppni milli ríkja um menntað vinnuafl magnast. Ísland getur því ekki látið sér nægja að laða að fólk, heldur þarf að tryggja að menntun sé metin hratt og rétt, raunfærni viðurkennd og innganga inn á vinnumarkað sé skipulögð og markviss.

Innviðir undir auknu álagi

vefmynd-03

Á undanförnum árum hefur hröð fólksfjölgun sett verulegan þrýsting á innviði samfélagsins. Sú fjölgun skýrir að hluta aukið álag á leikskóla, skóla og heilbrigðisþjónustu. Nú bætist við ný áskorun þar sem breytt aldurssamsetning og hægari vöxtur vinnuafls gera kerfin viðkvæmari.

  • Tölur síðustu ára sýna skýrt hvernig þjónustuþörf hefur aukist. Stuðningsþörf í leikskólum hefur aukist um 81% frá árinu 2007 til 2023 og stuðningsþörf í grunnskólum hefur aukist um 37%. Á sama tíma hefur sjúkrahúsrýmum á hverja 100.000 íbúa fækkað um 38%. Þróunin bendir til þess að uppbygging innviða hafi ekki haldist í hendur við hraða fólksfjölgun. Sú skekkja mun …

Fáðu áskrift til að lesa

Áskrift að Vísbendingu hæfir þeim sem hafa gaman að óvilhöllum greiningum og gagn af greinargóðum upplýsingum um efnahagsmál, viðskipti og nýsköpun.

Næsta grein

Mest lesið
1
Efnahagsmál

Um virði hagtalna

2
Umhverfi

Íslenskir jöklar á hverfanda hveli

3
Aðrir sálmar

Þrjár gráður

4
Efnahagsmál

Hvað er sjálfbær launaþróun?

5
Aðrir sálmar

Óheppileg orð

6
Efnahagsmál

Pólitískar afleiðingar efnahagslegrar óvissu


Vetur
Efnahagsmál 37. tbl.

Um virði hagtalna

Traust á opinberum hagtölum skiptir sköpum fyrir hagstjórn og ákvarðanatöku.
Framkvæmdir í Reykjavík
Efnahagsmál 36. tbl.

Hvað er sjálf­bær launa­þró­un?

Verðbólga, framleiðni og mörk launasvigrúmsins
Anti-Fascist Economics 2026 Isabella Weber
Efnahagsmál 36. tbl.

Póli­tísk­ar af­leið­ing­ar efna­hags­legr­ar óvissu

Lífskjarakrísan: Stýrivextir eru harkalegt tól í baráttunni gegn hækkandi verði á nauðsynjavörum