USD 125,4 0,5%
EUR 137,2
GBP 164,0 0,1%
DKK 18,4
SEK 12,2 -0,2%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 149,4 0,4%
CAD 87,3 0,1%
JPY 0,8 0,2%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 397.710
USD 125,4 0,5%
EUR 137,2
GBP 164,0 0,1%
DKK 18,4
SEK 12,2 -0,2%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 149,4 0,4%
CAD 87,3 0,1%
JPY 0,8 0,2%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 397.710
Til baka

Hern­að­ur og auð­legð

250 ára bók og tvær vikur af sprengjuárásum með stríði sem veldur verðbólgu

Síðastliðinn mánudag voru 250 ár liðin frá útgáfu einnar merkustu bókar á sviði hagfræðinnar um Rannsóknina á eðli og orsökum auðlegðar þjóðanna eftir Adam Smith.

Má benda lesendum sem vilja kynna sér söguna á 200 ára afmælisgrein um hann í Tímariti lögfræðinga og hagfræðinga árið 1923. Eins og þekkt er var hann fyrst prófessor í rökfræði og síðan siðfræði, en báðar þessar grunnstoðir vísindanna hafa hrakist undan sterkum kröftum sem vilja hafa áhrif á þekkingargrunn hagfræðinnar.

Í því ljósi má einnig vísa í tæplega sex ára grein mína í Vísbendingu sem nefnd er eftir hinu grundvallarriti þessa föðurs hagfræðinnar sem lesa verður áður eða í samhengi við Auðlegðina.

Lengi vel var auðlegð íslensku þjóðarinnar bundin við hina íslensku sauðkind, síðan tók þorskurinn við því hlutverki. Svo varð orkuöflunin mikilvægur hluti af því verkefni og loks ferðaþjónusta. En hin samfélagslega auðlegð nær langt út fyrir tekjuöflun gjaldeyris. Mannauðurinn, sem stundum er kallaður vinnuafl, felur í sér mikla auðlegð eða auðævi. Forsíðugrein vikunnar fer yfir merk tímamót varðandi samsetningu vinnumarkaðarins.

Orð skipta máli. Nú í vikunni sveiflast olíuverð yfir og undir 100 dala markinu eftir því hvaða orð forseti Bandaríkjanna lætur falla og hvar sprengjur herafla hans og Ísraels falla í Íran og nágrenni þess. Hormússundið, þar sem fimmtungur olíuflutninga heims fara um, er sprengjusvæði og verðbólgan verður fyrir beinum áhrifum af því.

Skrif um vísitölutengingu lífeyrisgreiðslna halda áfram í vikuritinu. Sumum kann að finnast einhverjar greinar undanfarnar vikur ósanngjarnar eða rangar. Til dæmis er í nokkrum þeirra örorkulífeyrir ítrekað kallaður bætur og móttakendur bótaþegar. Ritstjóri hefur bent greinarhöfundum á þetta misræmi við lagatexta en breytir ekki orðum. Annað dæmi er í grein fyrir tveimur vikum þar sem umsögn Alþýðusambands Íslands var flokkuð með þeim frá Viðskiptaráði og Samtökum atvinnulífs án þess að víst sé að það sé sanngjarnt.

Næsta grein

Mest lesið
1
Efnahagsmál

Um virði hagtalna

2
Umhverfi

Íslenskir jöklar á hverfanda hveli

3
Aðrir sálmar

Þrjár gráður

4
Efnahagsmál

Hvað er sjálfbær launaþróun?

5
Aðrir sálmar

Óheppileg orð

6
Efnahagsmál

Pólitískar afleiðingar efnahagslegrar óvissu


Vetur
Efnahagsmál 37. tbl.

Um virði hagtalna

Traust á opinberum hagtölum skiptir sköpum fyrir hagstjórn og ákvarðanatöku.
Framkvæmdir í Reykjavík
Efnahagsmál 36. tbl.

Hvað er sjálf­bær launa­þró­un?

Verðbólga, framleiðni og mörk launasvigrúmsins
Anti-Fascist Economics 2026 Isabella Weber
Efnahagsmál 36. tbl.

Póli­tísk­ar af­leið­ing­ar efna­hags­legr­ar óvissu

Lífskjarakrísan: Stýrivextir eru harkalegt tól í baráttunni gegn hækkandi verði á nauðsynjavörum