
Félagsfræðingurinn og heimspekingurinn Jóhann Páll Árnason prófessor emerítus við La Trobe-háskóla í Melbourne er einhver allra merkasti fræðimaður og kenningasmiður Íslendinga fyrr og síðar á sviði hug- og félagsvísinda og þó víðar væri leitað. Verk Jóhanns hafa markað djúp spor í hinum alþjóðlega fræðaheimi og má þar helst nefna endurhugsun[1] hans á kenningu Karl Jaspers um Öxultímabilið 800-300 árum fyrir Kristburð (e. Axial Age)[2] og hugmyndir Jóhanns um mismunandi leiðir ólíkra menningarheima inn í nútímann (e. multiple modernities).[3] Jóhann er enn afar virkur og afkastamikill í fræðunum þrátt fyrir að vera á 85. aldursári.
Verk Jóhanns eru aðallega skrifuð á ensku, þýsku og tékknesku en lítið hefur birst eftir hann á íslensku. Það er því sannkallaður hvalreki að fyrir síðustu jól kom út á íslensku bókin Austur, vestur og aftur heim sem inniheldur þverskurð af þeim rannsóknum á sviði félagsfræði, siðmenningargreiningu og heimspeki sem Jóhann hefur lagt stund á.[4] Auk greinanna ritar Jóhann endurminningakafla þar sem hann gerir litríku lífshlaupi sínu skil. Bókin er í ritstjórn Ágústs Þórs Árnasonar heitins aðjúnkts við lagadeild Háskólans á Akureyri og Geirs Sigurðssonar prófessors í kínverskum fræðum og þvermenningarlegri heimspeki við Háskóla Íslands. Bókin var lengi í smíðum eins og greint er frá í formála en frumkvæðið að bókinni átti eldhuginn Ágúst Þór sem féll frá fyrir aldur fram árið 2019 en Geir sigldi verkinu í höfn.
Sannkallaður heimsborgari og hugsuður
Í þessu greinarkorni ætla ég að tæpa á nokkru því helsta sem stendur upp úr í þessari stórfróðlegu bók en stikla fyrst á stóru um feril Jóhanns sem fæddur er og uppalinn á Dalvík. Jóhann lauk stúdentsprófi 1958 frá Menntaskólanum á Akureyri eftir að hafa hafið þar nám tveimur árum yngri en venja var. Eftir námsárin í MA hélt Jóhann til Prag þar sem hann nam heimspeki og sagnfræði við Karls-háskólann frá 1960 til 1966. Hann kenndi við MA 1967-1968 og nam heimspeki og félagsfræði við Háskólann í Frankfurt 1968-1970. Þaðan lauk hann doktorsprófi í heimspeki 1970 og skrifaði doktorsritgerð[5] undir handleiðslu hins þekkta þýska félagsheimspekings Jürgens Habermas. Jóhann var styrkþegi Alexander von Humboldt-stofnunarinnar 1970-1972 og kenndi félagsfræði við Heidelberg háskóla 1972-1975. Hann kenndi jafnframt við Bielefeld háskóla á sumarönn 1975 og lauk samhliða doktorsritgerð hinni meiri (þýs. Habilitation).[6] Frá 1975 til 2003 starfaði Jóhann við félagsvísindadeild La Trobe-háskólans í Melbourne. Frá 2007 til 2014 kenndi Jóhann við hugvísindadeild Karls-háskólans í Prag. Frá 2006 hafa Jóhann og kona hans María Jansdóttir verið búsett á Akureyri og hefur hann m.a. kennt við Félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri. Jóhann hefur aukinheldur verið gestaprófessor við ýmsa háskóla og rannsóknastofnanir í Þýskalandi, Frakklandi, Japan, Svíþjóð og á Ítalíu. Jóhann fékk sérstök rannsóknarverðlaun frá Alexander von Humboldt-stofnuninni 2008 og var gerður að heiðursdoktor við Háskóla Íslands 2011.
Í fræðilegri vegferð sinni sem spannar 65 ár hefur heimsborgarinn Jóhann haldið sig á mörkum félagsfræði, heimspeki og sagnfræði. Eftir hann liggja fjölmargar bækur og greinar sem hverfast aðallega um kenningarlega og sögulega félagsfræði með sérstaka áherslu á samanburð ólíkra menningarheima og þjóðfélagsbreytingar. Sem fyrr segir hafa kenningar Jóhanns haft mikil áhrif í hinum alþjóðlega fræðaheimi eins og lesa má um í bókinni Civilization, Modernity, and Critique: Engaging Jóhann P. Árnason’s Macro-Social Theory (Dunaj o.fl. ritstj.) sem kom út árið 2023 á vegum Routledge háskólaútgáfunnar í tilefni 80 ára afmælis Jóhanns.[7]
Þrátt fyrir að vera áhrifamikill í hinum alþjóðlega fræðiheimi hefur nafn Jóhanns ekki farið eins hátt og skyldi hérlendis. Það sem skiptir vafalaust hvað mestu máli í þeim efnum er að Jóhann hefur starfað nær eingöngu utan Íslands (sérstaklega í Ástralíu og Mið-Evrópu), rannsóknaáherslur hans spanna löng tímabil og mörg lönd fremur en að beinast sérstaklega að Íslandi, hann skrifar á mörgum tungumálum (sjaldnast á íslensku) og efnistök hans, greining og textar eru oft ansi krefjandi.[8] Þá hefur Jóhann ekki haft sig mikið í frammi í almennri og fræðilegri umræðu hérlendis síðustu áratugi. Jafnframt hefur íslenskt félagsvísindafólk alla jafna litið sér nær í tíma og rúmi þegar kemur að efnistökum og ekki margir fræðimenn hérlendis deila áherslum hans á siðmenningargreiningu og margbreytileika nútímans.
Djúpþenkjandi þverskurður
Í Austur, vestur og aftur heim gefur að líta níu greinar eftir Jóhann af ólíkum uppruna. Fimm hafa birst áður á öðrum tungumálum og voru sérstaklega íslenskaðar fyrir greinasafnið. Allar eldri greinar voru fræðilega uppfærðar af Jóhanni fyrir útgáfuna og sumar innihalda sérstaka eftirmála. Þá er mikill fengur í því að bókin inniheldur heildarritaskrá Jóhanns.
Það segir sína sögu að hinn merki þýski félagsheimspekingur Axel Honneth skrifar inngang að bókinni þar sem segir meðal annars að Jóhann eigi sér fáa, ef nokkra, jafnoka þegar kemur að núlifandi samanburðarfélagsfræðingum: „Bækur og greinar Jóhanns um leið Japans til nútímavæðingar, sérstæða framvinduna í Rússlandi, merkingu grískrar arfleifðar í Evrópu, þróunaraflvaka þjóðríkjanna og loks þá tilteknu formgerð sem einkennir vestrænan nútíma mynda í heild grunninn að sögulegri samanburðarfélagsfræði sem einungis verk Shmuel Eisenstadt jafnast á við hvað varðar metnað og gæði“ (bls. 11). Austur, vestur og aftur heim endurspeglar þennan fræðilega metnað, fádæma nákvæmni og yfirgripsmikla þekkingu.
Í fyrstu grein bókarinnar „Tuttugasta öldin í endursýn“ leggur Jóhann út frá nokkrum þemum bókarinnar Öld öfganna eftir Eric Hobsbawm (1994, ísl. 1999) og greinir í ljósi lengri tímaramma. Hobsbawn er einn áhrifamesti sagnfræðingur 20. aldarinnar og Öld öfganna er stórvirki sem á erindi við samtímann. Í greininni kennir ýmissa grasa en niðurstöður Jóhanns um 20. öldina styttri (1914-1991) eða lengri (1914-2010) má draga saman með orðum þýska félagsfræðingsins Norbert Elias: „alls konar framfarir eiga sér stað, en engar allsherjar framfarir“ (bls. 68). Hvað neikvæðar hliðar varðar er sér í lagi vísað til þeirra hörmunga sem fyrri og seinni heimsstyrjaldirnar kölluðu yfir mannkynið, yfirstandandi umhverfiskrísu, gereyðingarvopna í höndum misviturra manna og aukinnar stórveldapólitíkur sem heldur heiminum í heljargreipum. Í ljósi óvissu og vaxandi ótta við nýtt stórveldastríð nú þegar aldarfjórðungur er liðinn af 21. öldinni sér Jóhann mikil líkindi við stöðuna árið 1914. Hann ályktar jafnframt að farvegur alþjóðstjórnmála nú til dags sé enn best skilinn í ljósi þeirra keðjuverkana sem fyrri heimsstyrjöld hrinti af stað.
Önnur greinin „Samfélagssýnir og lýðræðismynstur“ er birt óbreytt frá árinu 1993, en þó með nýjum eftirmála, til að varpa ljósi á þankagang Jóhanns um stöðu lýðræðisins í kjölfar falls Berlínarmúrsins árið 1989 og falls Sovétríkjanna árið1991 sem bundu enda á Kalda stríðið. Einkum fjallar Jóhann um togstreituna við að fella skilgreiningar á lýðræði að grunnhugtökum í félagsfræði og smættarhyggjuna sem felst í ríkjandi hugtaki um samfélag. Greinin á vel við nú í ljósi innrásar Rússlands í Úkraínu og þegar öfgahreyfingar undir stjórn valdagráðugra auðkýfinga þrengja víða að lýðræðinu, einkum hjá meintum „útverði lýðræðisins“ Bandaríkjunum. Þessu tengt segir Jóhann að hugtakið „popúlismi“ sé haldlítið til skýringa á uppgangi Donald Trumps vestan hafs. Fyrirbærið Trump eigi meira skylt við „trúarlegar vakningar af því tagi sem áður hafa þekkst í Bandaríkjunum og ekki verið auðtúlkanlegar á evrópskum forsendum“ (bls. 65).
Allt bendir nú til þess að endurreisn kínverska stórríkisins, eftir aðlöguðum bolsévískum forskriftum, marki heimssöguleg kaflaskil af stærri gráðu en sovéska útgáfan af því rússneska
Í þriðju greininni tekst Jóhann á við annað grundvallarhugtak: menningu. Nánar tiltekið kannar hann hvernig greining grísk-franska heimspekingsins Cornelius Castoriadis á ímynduðum merkingum (e. imaginary significations) varpar nýju ljósi á menningarhugtakið. Í eftirmála gerir Jóhann grein fyrir lífshlaupi og fræðiferli Castoriadis en hann er einn af þeim hugsuðum sem hefur haft hvað mest áhrif á Jóhann sem fræðimann. Rétt eins og Jóhann, var Castoriadis einkar hallur undir marxíska samfélagsgreiningu á fyrri parti ferilsins en dýpkaði og víkkaði sjónarhorn sitt með tímanum. Það sem hafði mest áhrif á Jóhann í þessum efnum voru verk tékknesku heimspekinganna Karel Kosík og Jan Patočka í anda fyrirbærafræði og skrif klassískra félagsfræðinga á borð við Émile Durkheim og sér í lagi samanburðarfélagsfræði Max Weber.
Fjórða greinin „Andhverfa skynseminnar og skynsemi andhverfunnar“ snýst um skynsemishugtakið og þá róttæku útfærslu skynseminnar sem einkennir nútímann. Þetta er að mínu viti mest krefjandi lesning bókarinnar sem skrifast að megninu til á torrætt umfjöllunarefnið en að hluta til á það að greinin birtist upphaflega á frönsku. Jóhann hugsar með mörgum fræðimönnum í téðri grein en leggur eðli málsins samkvæmt út frá verkum tveggja merkustu hugsuða vestrænnar heimspeki, Immanuel Kant og Georg Hegel, hverra megin viðfangsefni var ekki síst mörk mannlegrar skynsemi og frumspeki. Þá er Hegel fyrsti heimspekingurinn sem tók nútímann sem viðfangsefni og hafði þar skynsemina í brennidepli. Þessu tengt er ástæða til að vekja athygli á nýjum íslenskum þýðingum á verkum Kant og Hegel.[9]
Í fimmtu greininni ræðst Jóhann áfram á garðinn þar sem hann er hvað hæstur og fjallar um Sovétmódelið sem misheppnaða hnattvæðingu. Hann gagnrýnir nauðhyggjuna sem felst í þröngum og hagrænum skilgreiningum á hnattvæðingu og notar margþættara hugtak til að greina annars vegar samspil alþjóðlegra og staðbundinna þátta við fall kommúnismans og hins vegar hvaða þýðingu Sovétríkin, sem form hnattvæðingar, hafa fyrir hnattvæðingu í víðum skilningi. Jóhann ályktar: „Sovétmódelið var aðferð til nútímavæðingar, grundvölluð á blöndu tveggja hefða, heimsveldishefðarinnar og byltingarhefðarinnar, en um leið var þetta alþjóðlegt fyrirbæri. Mótunarsaga þess, útþensla og upplausn verða ekki skýrðar án vísana til alþjóðlegra tengsla, og saga þess var lykilþáttur í tímaskeiði hnattvæðingar á tuttugustu öldinni“ (bls. 167).
Sjötta greinin „Bylting byltinganna“ fjallar um rússnesku byltinguna sem annars vegar tímamótaatburðar og hins vegar langtíma úrvinnsluferlis sem leiðir þýðingu umskiptanna og meðfylgjandi átök til lykta. Jóhann skilgreinir byltingu í stuttu máli sem hraða og samtvinnaða breytingu pólitískrar og félagslegrar valdaskipunar. Sem slík felur bylting í sér formgerðarbreytingu ríkisvaldsins þar sem lögmæti, stofnanir og samsetning valdaelítu taka stakkaskiptum. Jafnframt breytast valdahlutföll þjóðfélagshópa. Enginn efast um að febrúarbyltingin og októberbyltingin árið 1917 voru tímamótaatburðir. Ágreiningur ríkir hins vegar um tímalengd útvinnsluferilsins. Jóhann miðar sjálfur við fall Sovétríkjanna árið 1991. Jafnframt segir hann að í ljósi þess sem síðar hefur gerst sé nær að tala um þrjár leiðir út úr ógöngum sovétkerfisins fremur en algert hrun þess. Leiðir þessar kennir Jóhann við Gorbatsjov, Jeltsín og Pútín og þær stofnanabreytingar sem þeir hrintu vitandi og óafvitandi í framkvæmd.
Samanburðarfélagsfræði og sögulegt sjónarhorn Jóhanns njóta sín í sjöundu og áttundu grein bókarinnar sem fjalla annars vegar um ríkismyndun (e. state formation) í Japan og á Vesturlöndum og hins vegar um nútímavæðingu Japans. Jóhann leggur út frá rannsóknum Norbert Elias og reifar leiðir til þess að tengja rannsóknir á siðmenningarferlum (e. civilization processes) við samanburðargreiningu með sérstakri vísun til Japans. Japan er sérlega áhugavert til samanburðar við Vesturlönd í ljósi þess að þar myndaðist eina raunverulega lénsveldið utan Evrópu og að „Japan nútímans er án nokkurs vafa tilkomumesta dæmið um kapítalískt skipulag sem ekki þróaðist í vestrænu samhengi, og sennilegt virðist að ætla að fyrri staðreyndin tengist hinni síðari með einhverjum hætti“ (bls. 204). Þrátt fyrir að vera fjórða stærsta hagkerfi í heimi hefur Japan fallið nokkuð í skuggann af efnahagslegum og geópólitískum uppgangi Kína síðustu áratugi; sem þó er einungis afturhvarf til hefðbundins mynsturs þar sem Kína var stærsta hagkerfi heims í næstum tvö þúsund ár þangað til Bretland náði forystu á 19. öld.[10] Svo vitnað sé í umfjöllun Jóhanns úr fyrstu greininni: „Allt bendir nú til þess að endurreisn kínverska stórríkisins, eftir aðlöguðum bolsévískum forskriftum, marki heimssöguleg kaflaskil af stærri gráðu en sovéska útgáfan af því rússneska“ (bls. 45).
Rúsínan í pylsuendanum
Rúsínan í pylsuenda bókarinnar er svo níunda greinin „Kristnihald á norðurhjara: Sögutengsl og siðaskipti“ þar sem Jóhann beitir siðmenningargreiningu á þjóðveldistímann á Íslandi frá stofnun Alþingis árið 930 og þar til Íslendingar gangast Noregskonungi á hönd árið 1262. Umrædd grein er glæný, mikil að sniðum (108 bls.) og hefði að mínu viti sómt sér vel sem sjálfstæð bók. Kynngimögnuð lesning þar sem Jóhann hugsar með höfundum á borð við Halldóri Laxness, Arnold Joseph Toynbee, Gunnari Karlssyni og Sigurði Nordal. Í upphafi útskýrir Jóhann siðmenningargreiningu í stuttu máli og fyrri kaflar undirbyggja greininguna sem eftir kemur.
Endurminningakaflinn er skemmtilegur aflestrar en of stuttur fyrir minn smekk. Sjálfur hefði ég til að mynda viljað lengri og ítarlegri umfjöllun um áhrifaþætti á langri fræðilegri vegferð Jóhanns. Fróðlegust fannst mér hins vegar frásögn Jóhanns af námsárunum í þáverandi Tékkóslóvakíu og sterkum tengslum hans við Tékkland allar götur síðan. Jóhann telur sig til tveggja þjóða eins og hann orðar það. Einnig hafði ég gaman af vangaveltum Jóhanns um Sameiningarflokk alþýðu – Sósíalistaflokkinn sem var við lýði hérlendis frá 1938 til 1968 en sú umfjöllun kallast á við nýlegar bækur Kjartans Ólafssonar[11] og Skafta Ingimarssonar um kommúnista- og sósíalistahreyfingar á Íslandi.[12]
Í stuttu máli met ég það svo að með bókinni Austur, vestur og aftur heim hafi ritstjórum og höfundi svo sannarlega tekist ætlunarverk sitt að gefa íslenskum lesendum góða innsýn í ævistarf og mikilsvert framlag Jóhanns Páls Árnasonar til fræðasamfélagsins. Eiga þeir mikið hrós skilið. Djúp og yfirgripsmikil þekking Jóhanns kemst vel til skila og það hjálpar að nálganir, útskýringar og þýðingar á lykilhugtökum eru vandaðar og þaulhugsaðar. Hér er óhætt að segja að hverjum steini hafi verið velt við, enda Jóhann einkar næmur fyrir blæbrigðum hugaka, kenninga og tungumála. Þrátt fyrir að texti Jóhanns sé skýr þarf maður engu að síður að hafa sig allan við á köflum til þess að halda í við hann. Það er hins vegar margfaldlega þess virði að gefa sér góðan tíma í lesturinn og ígrunda. Ég hvet íslenskt hug- og félagsvísindafólk og aðra áhugasama að verða sér út um þessa bók. Bókin á skilið breiðan lesendahóp og mun vonandi stuðla að því að Jóhann hljóti þá upphefð hérlendis sem hann á sannarlega skilda.
Tilvísanir
-
Hegel, Georg. 2023. Skynsemin í sögunni, þýð. Arthúr Björgvin Bollason og Þröstur Ásmundsson, Lærdómsrit Bókmenntafélagsins, Reykjavík: Hið íslenska bókmenntafélag. Kant, Immanuel. 2024. Fyrir eilífum friði, þýð. Egill Arnarsson, Lærdómsrit Bókmenntafélagsins, Reykjavík: Hið íslenska bókmenntafélag.
↩ -
Kjartan Ólafsson. 2020. Draumar og veruleiki: stjórnmál í endursýn. Um Kommúnistaflokkinn og Sósíalistaflokkinn. Reykjavík: Mál og menning.
↩ -
Skafti Ingimarsson. 2024. Nú blakta rauðir fánar. Saga kommúnista- og sósíalistahreyfingarinnar á Íslandi 1918–1968. Reykjavík: Sögufélag.
↩ -
Jóhann Páll Árnason. 2024. Austur, vestur og aftur heim: Greinar um samfélagsheimspeki og siðmenningargreiningu. Ágúst Þór Árnason og Geir Sigurðsson (ritstj.). Reykjavík: Hið íslenska bókmenntafélag.
↩ -
Jóhann Páll Árnason. 2003. Civilizations in Dispute: Historical Questions and Theoretical Traditions. Leiden: Brill. Jóhann Páll Árnason. 2020. The Labyrinth of Modernity: Horizons, Pathways and Mutations. Lanham: Rowman & Littlefield Publishers.
↩ -
Jóhann Páll Árnason. 2013. „Rehistoricizing the Axial Age“. Í Bellah, R. og Joas, H. (ritstj.) The Axial Age and its Consequences. Cambridge: Harvard University Press, bls. 366–407.
↩ -
Jaspers, Karl. 1953. The Origin and Goal of History. New Haven: Yale University Press.
↩ -
Jóhann Páll Árnason. 1971. Von Marcuse zu Marx - Prolegomena zu einer dialektischen Anthropologie [From Marcuse to Marx - Prolegomena to a dialectical anthropology]. Neuwied: Luchterhand Verlag.
↩ -
Jóhann Páll Árnason. 1976. Zwischen Natur und Gesellschaft - Studien zu einer kritischen Theorie des Subjekts [Between Nature and Society - Studies in the critical theory of the subject]. Köln: Europäische Verlagsanstalt.
↩ -
Dunaj, Ľubomír, Jeremy Smith, and Kurt Mertel (ritstj.). 2023. Civilization, Modernity, and Critique: Engaging Jóhann P. Árnason’s Macro-Social Theory. Abingdon/London: Routledge.
↩ -
Guðmundur Oddsson. 2024. Bókardómur um Civilization, Modernity, and Critique: Engaging Jóhann P. Árnason’s Macro-Social Theory, eftir Ľubomír Dunaj, Jeremy Smith og Kurt Mertel (ritstj.). Acta Sociologica 67(4), 565-567.
↩ -
Maddison, Angus. 2007. Contours of the World Economy, 1-2030 AD: Essays in Macro-economic History. Oxford: Oxford University Press.
↩








