USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
Til baka

Covid-19 far­ald­ur­inn

Norrænn samanburður á mati almennings á sanngirni aðgerða, höftum, takmörkunum stjórnvalda og traust á þeim.

Rannsóknin sem hér er greint frá var hluti af rannsóknaverkefninu Crisis Management in a Polycentric Nordic Local Democracy: Different Governance Structures – Different Results? (POLYGOV). Um er að ræða norrænt rannsóknarverkefni sem er styrkt að fullu af Rannsóknarráði Noregs (n. Norges Forskningsråd). Meginmarkmiðið var að greina og bera saman viðbrögð á Norðurlöndunum við COVID-19 faraldrinum og afleiðingum hans og tengja þennan mun við stefnu, stjórnarhætti, skipulag og stjórnun. Rannsóknin tók því til Norðurlandanna fimm, Íslands, Noregs, Svíþjóðar, Finnlands og Danmörku en sjálfstjórnarsvæðin þrjú Færeyjar, Grænland og Álandseyjar voru líka með í rannsókninni en þó ekki í þeim könnunum meðal almennings sem hér verður greint frá. Að verkefninu komu háskólar og rannsóknastofnanir í öllum löndunum en Oslo Metropolitan University (OsloMet) var leiðandi aðilinn. Bók með helstu niðurstöðum úr verkefninu er komin út og er í opnum aðgangi.

Umfjöllunarefnið, gögn og aðferðir

Hér verður fjallað um þá kafla bókarinnar sem snúa að mati Norðurlandabúa á sanngirni sóttvarnaraðgerða, hafta og takmarkana sem gripið var til í faraldrinum. Einnig er fjallað um traust fólks til þeirra yfirvalda sem viðbrögð við faraldrinum snéru að. Um er að ræða bókarkafla 20 um sanngirni aðgerða (Haug, Baldersheim og Sefton, 2024) og bókarkafla 21 um traust (Balders­heim, Haug og Eyþórsson, 2024). Þessir kaflar byggja á gögnum úr samræmdri spurninga­könnun sem send var á úrtak almennra borgara á öllum Norðurlöndunum fimm. Um 1200 svör bárust frá hverju landi fyrir sig, þó nokkuð færri frá Íslandi. Allar kannanirnar voru gerðar á tungumáli viðkomandi lands. Framkvæmdatími var sumarið 2022, rétt rúmlega tveimur árum eftir að COVID-19 faraldurinn braust út.

Aðgerðir stjórnvalda í faraldrinum fólu í sér skerðingar á ýmsum réttindum fólks, svo sem ferðafrelsi, rétti til að nýta eignir sínar, rétti til fjölskyldulífs, réttindum barna, rétti til að ráða yfir eigin líkama og rétti til menntunar. Því hefði eins mátt búast við að þolinmæði eða mat fólks á sanngirni aðgerða hefði getað verið takmörkuð.

Í könnuninni var spurt um viðhorf fólks til 17 mismunandi aðgerða og takmarkana sem gripið var til, þar af voru 14 sem áttu við öll löndin fimm. Þetta voru eftirfarandi atriði: Fjarlægðarreglan, áróður/hvatning um að láta bólusetja sig, takmarkanir á ferðum inn og út úr landinu, halda skólum og leikskólum opnum fyrir börn foreldra í ,,mikilvægum samfélagslegum störfum“ í faraldrinum, tilmæli um grímunotkun, takmörkun samskipta fólks, fjöldatakmarkanir á fundum og skemmtunum, fólki gert að vinna heimanfrá, bann við heimsóknum á öldrunarheimili, tilmæli um að forðast almenningssamgöngur, bótagreiðslur fyrir þá atvinnustarfsemi sem var rekin með halla vegna sóttvarnaaðgerða, takmörkun eða bann við afgreiðslu áfengis á veitingastöðum, lokanir á skólum og nám stundað heimanfrá, fyrirmæli um takmarkaðan fjölda gesta á hverju heimili, takmarkanir á íþrótta- og tómstundaiðkun barna, lokanir á leikskólum og loks bann við sumarhúsaheimsóknum í önnur sveitarfélög.

Spurningin um sanngirni

Formáli að spurningunni um sanngirni (e. reasonableness) var: „Yfirvöld heilbrigðismála hafa mælt með eða fyrirskipað margskonar aðgerðir til þess að takmarka dreifingu covid-smita en á sama tíma hafa ákvarðanir verið teknar um að bæta einstaklingum og fyrirtækjum tap vegna þessa. Allar þessar aðgerðir hafa verið …

Fáðu áskrift til að lesa

Áskrift að Vísbendingu hæfir þeim sem hafa gaman að óvilhöllum greiningum og gagn af greinargóðum upplýsingum um efnahagsmál, viðskipti og nýsköpun.

Næsta grein

Mest lesið
1
Atvinna

Er atvinnuleysi innflytjenda næmara fyrir hagsveiflum?

2
Aðrir sálmar

Gylfaginning

3
Loftslagsmál

París, prósentur og prófsteinninn

4
Aðrir sálmar

Af Atómstöðinni

5
Opinber fjármál

Nýtt grunnviðmið fyrir stjórnarhætti opinberra aðila

6
Umhverfi

Ef Ísland væri borg á meginlandi Evrópu

Reykjavíkurhöfn
Efnahagsmál 32. tbl.

Hvert er mark­mið efna­hags­lífs­ins?

Mikilvægi skilnings á samhengi og hugtökum
Reykjavík

Staða há­skóla­mennt­aðra á hús­næð­is­mark­aði

Ný könnun Félagsvísindastofnunar HÍ bendir til þess að háskólamenntun ein og sér tryggi ekki greiða leið inn á húsnæðismarkað. Flestir eignast að lokum eigið húsnæði, en leiðin þangað virðist orðin lengri og kostnaðarsamari en áður og byggist oft á stuðningi fjölskyldu, skuldsetningu og miklu vinnuframlagi.
Peningar
Efnahagsmál 31. tbl.

Und­ir­liggj­andi kostn­að­ar­þrýst­ing­ur

Launa-framleiðnibilið, framlegð og atvinnustig á Íslandi

Stjórnarráðið
Efnahagsmál 31. tbl.

Til hvers eru op­in­ber fjár­mál?

Mikilvægi umræðunnar um tölur og orð
AFP__20240320__economou-notitle240319_npstx__v1__HighRes__EuFlagsInBrussels

Evr­ópa og nýi heim­ur­inn

vesturheimur og vesturveldin eru hugtök til að endurskilgreina