USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
Til baka

Ein­lyndi og marg­lyndi

Samfélagslegar áskoranir kalla á félagslegan skilning sem þarf að ná út fyrir okkar eigin þrönga hugmyndaramma.

Þeir tímar sem við nú lifum kalla á margþætta íhugun um líf okkar og tilveruna sem við lifum í.

Annars vegar vegna vaxandi stríðsátaka í heiminum. Ekki einvörðungi í Úkraínu og með líklegu þjóðarmorði í sjálfstæðu og fullvalda ríki Palestínu, sem við höfum viðurkennt. Heldur á nú sér stað stigmögnun með innrásum Ísraels í fleiri ríki þar um slóðir, sem hefur með manndrápum og eyðileggingu einnig efnahagslegar afleiðingar. Þær birtast meðal annars í hækkun höfuðstóls íslenskra húsnæðislána, sem eru verðtryggð, vegna hækkunar olíuverðs um 10% í síðustu viku. Þó að verðið (á olíunni, en ekki íslensku húsnæði) hafi raunar lækkað aftur í þessari viku, vegna minni opinberra ríkisútgjalda í næst stærsta efnahagsveldi heimsins. Það að kínverski ríkissjóðurinn hafi ekki efnt til væntrar efnahagslegrar örvunar, olli mörkuðum svo miklum vonbrigðum að olíuverð lækkaði.

Hins vegar standa yfir mestu umbreytingatímar vegna tækniþróunar sem mannkynið hefur horft framan í. Þar er bæði um að ræða nýleg tæki sem eru stöðugt í lófa fólks og hafa áhrif á sjón og hnakka með því láta okkur horfa stöðugt í gaupnir okkar. Þannig að það gleymist að veita börnum athyglina sem þau þurfa til að heilinn í þeim nái að þroskast. Svo er einnig yfirstandandi ósýnileg umbyltingin vegna gervigreindar sem gerbreytir nú störfum hins bóknáms menntaða vinnuafls líkt og iðnbyltingin gerði fyrir hinn verklega hluta vinnuaflsins.

Stríðin og tæknibyltingar sem nú standa yfir kalla á ígrundun um samfélagið okkar og hvernig við skipuleggjum það. Báðar greinarnar í blaði vikunnar taka á því efni, hvor með sínum hætti. Stjórnvöld, efnahagskerfið og við öll einstaklingarnir verðum að leggja okkar af mörkum. Líkt og Sigurður Nordal greindi í erindum sínum frá árunum 1918-1919, þaðan sem fyrirsögn þessa pistils er fengin, þá verðum við að ná að samrýma hinar ósamrýmanlegu andstæður einlyndis, einbeitingarinnar og marglyndis, fjölbreytileikans.

Næsta grein

Mest lesið
1
Atvinna

Er atvinnuleysi innflytjenda næmara fyrir hagsveiflum?

2
Aðrir sálmar

Gylfaginning

3
Loftslagsmál

París, prósentur og prófsteinninn

4
Aðrir sálmar

Af Atómstöðinni

5
Opinber fjármál

Nýtt grunnviðmið fyrir stjórnarhætti opinberra aðila

6
Umhverfi

Ef Ísland væri borg á meginlandi Evrópu

Reykjavíkurhöfn
Efnahagsmál 32. tbl.

Hvert er mark­mið efna­hags­lífs­ins?

Mikilvægi skilnings á samhengi og hugtökum
Reykjavík

Staða há­skóla­mennt­aðra á hús­næð­is­mark­aði

Ný könnun Félagsvísindastofnunar HÍ bendir til þess að háskólamenntun ein og sér tryggi ekki greiða leið inn á húsnæðismarkað. Flestir eignast að lokum eigið húsnæði, en leiðin þangað virðist orðin lengri og kostnaðarsamari en áður og byggist oft á stuðningi fjölskyldu, skuldsetningu og miklu vinnuframlagi.
Peningar
Efnahagsmál 31. tbl.

Und­ir­liggj­andi kostn­að­ar­þrýst­ing­ur

Launa-framleiðnibilið, framlegð og atvinnustig á Íslandi

Stjórnarráðið
Efnahagsmál 31. tbl.

Til hvers eru op­in­ber fjár­mál?

Mikilvægi umræðunnar um tölur og orð
AFP__20240320__economou-notitle240319_npstx__v1__HighRes__EuFlagsInBrussels

Evr­ópa og nýi heim­ur­inn

vesturheimur og vesturveldin eru hugtök til að endurskilgreina