USD 125,4 0,5%
EUR 137,2
GBP 164,0 0,1%
DKK 18,4
SEK 12,2 -0,2%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 149,4 0,4%
CAD 87,3 0,1%
JPY 0,8 0,2%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 397.710
USD 125,4 0,5%
EUR 137,2
GBP 164,0 0,1%
DKK 18,4
SEK 12,2 -0,2%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 149,4 0,4%
CAD 87,3 0,1%
JPY 0,8 0,2%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 397.710
Til baka

Elds­neyt­is­verð 20 krón­um of hátt … en er eitt­hvað hægt að ger­a?

Álagning á eldsneyti hækkar og samkeppni er veik

Bensín
Mynd: Unsplash

Álagning á eldsneyti á Íslandi var sögulega há á fyrstu tveimur mánuðum ársins og hefur aukist verulega á undanförnum árum. Íslensku olíufélögin eru margfalt líklegri til að skila hækkunum á heimsmörkuðum til neytenda en lækkunum og hætt er við að jafnvægisverð sé að færast upp á við vegna fákeppninnar sem einkennir íslenska markaðinn. Mikilvægt er að stjórnvöld leiti allra leiða til að auka samkeppni á eldsneytismörkuðum á Íslandi til að draga úr verðbólguþrýstingi en sterkasta vopn almennings á eftirspurnarhliðinni tengist sérstöðu Íslands og ódýru rafmagni.

Álagning á bensínlítra í sögulegu samhengi 1996-2026

Álagning á hvern bensínlítra hefur aukist verulega síðustu 5 ár og var hún sögulega há á fyrstu tveimur mánuðum ársins. Var álagning á hvern bensínlítra þá rúmlega 70 krónur að meðaltali samkvæmt áætlun Visku sem er um 18 krónum yfir langtímameðaltali álagningar, á verðlagi ársins 2026. Að teknu tilliti til virðisaukaskatts jafngildir það því að bensínverð hafi verið um 20 krónum hærra en ella, ef álagning væri við langtímameðaltal 1996-2026. Hækkun álagningar á fyrstu mánuðum ársins vekur því áleitnar spurningar. Um áramót voru gerðar breytingar á vörugjöldum og olíugjöldum sem hefðu, að öðru óbreyttu, átt að skila sér að fullu í lækkuðu verðlagi á dælu. Margt bendir til að afnámið hafi skilað sér til skemmri tíma en hætt er við að olíufélögin hafi í hyggju að nýta sér fákeppnisstöðu, eftirspurnarþrýsting vegna launahækkana og skerta verðvitund til að fanga hluta af skattalækkuninni til hækkunar. Varað var við þessum freistnivanda af nær öllum aðilum vinnumarkaðar í umsögnum til Alþingis fyrir upptöku kílómetragjalda um áramótin.

mynd1

Sjá mynd 1 sem sýnir áætlaða álagningu olíufélaga á hvern lítra bensíns, árin 1996-2026. Athugið að greiningin byggir á meðaltalsverði eldsneytis yfir allt landið fremur en lægstu verðum á einstökum stöðvum eins og greiningar ASÍ hafa gert undanfarið. Meðaltalsnálgun gefur raunhæfari mynd af því verði sem flest heimili standa frammi fyrir, þar sem lægstu verðin eru oft bundin við einstaka stöðvar á afmörkuðum svæðum eða verðaðgreiningu í formi afsláttarlykla.

Er jafnvægisverð að færast upp á við vegna fákeppni?

Greiningin bendir til skýrrar ósamhverfu í verðleiðni frá heimsmörkuðum til verðs á dælu hérlendis. Á tímabilinu 2022–2025 var fylgni hækkana á heimsmarkaðsverði við bensínverð rúmlega 90%, en fylgni lækkana aðeins um 24%. Með nokkurri einföldun má segja að olíufélögin séu nær fjórfalt líklegri til að skila hækkunum á heimsmarkaðsverði til neytenda í verðlag en lækkunum, miðað við núverandi samkeppnisaðstæður. Verð aðlagast einfaldlega mun hraðar upp á …

Fáðu áskrift til að lesa

Áskrift að Vísbendingu hæfir þeim sem hafa gaman að óvilhöllum greiningum og gagn af greinargóðum upplýsingum um efnahagsmál, viðskipti og nýsköpun.

Næsta grein

Mest lesið
1
Efnahagsmál

Um virði hagtalna

2
Umhverfi

Íslenskir jöklar á hverfanda hveli

3
Aðrir sálmar

Þrjár gráður

4
Efnahagsmál

Hvað er sjálfbær launaþróun?

5
Aðrir sálmar

Óheppileg orð

6
Efnahagsmál

Pólitískar afleiðingar efnahagslegrar óvissu


Vetur
Efnahagsmál 37. tbl.

Um virði hagtalna

Traust á opinberum hagtölum skiptir sköpum fyrir hagstjórn og ákvarðanatöku.
Framkvæmdir í Reykjavík
Efnahagsmál 36. tbl.

Hvað er sjálf­bær launa­þró­un?

Verðbólga, framleiðni og mörk launasvigrúmsins
Anti-Fascist Economics 2026 Isabella Weber
Efnahagsmál 36. tbl.

Póli­tísk­ar af­leið­ing­ar efna­hags­legr­ar óvissu

Lífskjarakrísan: Stýrivextir eru harkalegt tól í baráttunni gegn hækkandi verði á nauðsynjavörum