USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
Til baka

Er gagn í Verð­gátt?

Verslun - Bónus
Mynd: Heiða Helgadóttir

Þann 7. júní síðastliðinn opnaði Verðgátt Rannsóknarseturs verslunarinnar, síða sem birtir daglega verð á tilteknum vörum í Bónus, Nettó og Krónunni. Verðgáttin var hluti af aðgerðum stjórnvalda til að auka aðhald á neytendamarkaði í kjölfar undirritunar kjarasamninga á almennum vinnumarkaði.

Neytendur hafa skýran hag af virkri samkeppni á dagvörumarkaði. Upplýsingar um verð geta stutt við samkeppni og gert neytendum kleift að stunda hagkvæm innkaup. Á hinn bóginn getur rangt útfærð miðlun á vöruverði auðveldað samstillingu milli verslana eða jafnvel auðveldað verslunum að blekkja neytendur. Á þetta hefur Samkeppniseftirlitið meðal annars bent og varað við því að gáttin geti auðveldað þögult verðsamráð.1 Hagfræðingur BHM sagði fullum fetum að gáttin myndi „verða skaðleg fyrir samkeppni á markaði.“2

Rangt útfærð miðlun á vöruverði getur orðið til þess að blekkja neytendur. Þannig hefur neytandinn ekki tryggingu fyrir því að þær vörur sem séu í gáttinni séu til í versluninni. Verslanir hafa einnig hvata til þess að halda vöruverði lágu á þeim fáu vörum sem eru í verðgáttinni en gætu í skjóli óvissu hækkað verð á öðrum vörum. Nú þegar gáttin hefur opnað má velta fyrir sér hvort hún hafi stuðlað að lægra vöruverði og hvort sjá megi merki um aukna samstillingu verslana.

Samþjöppun í verði eftir opnun

Þegar Verðgáttin opnaði þann 7. júní voru þegar til gögn fyrir vikutímabil í verðsöguflipum síðunnar. Þau gögn benda til þess að verðmunur hafi verið stöðugur, að meðaltali 4,0%, milli Krónunnar og Bónus frá 31. maí til 6. júní. Daginn sem verðgáttin opnaði féll þetta bil saman um þriðjung, aftur daginn eftir, og einu sinni enn 9. júní, þannig að meðalverðbilið var komið í 1,3%.3

Í Nettó hófst þessi aðlögun daginn fyrir opnun gáttarinnar. Meðalverðbilið milli Nettó og Bónus hafði verið 3,6-3,7% frá 31. maí til 5. júní, en 6. júní minnkaði bilið um einn sjötta. Stóra breytingin þar var þó, líkt og í Krónunni, á opnunardegi verðgáttarinnar. Þá dróst meðalverðbilið saman um tæplega þriðjung. Sjá mynd 1.

mynd1-Meðalfrávik frá verði Bónus
Mynd1 - Meðalfrávik frá verði Bónus

Önnur leið til að meta nánd vöruverðs er að telja hversu oft verð í Nettó eða Krónunni er einni krónu yfir verðinu í Bónus en þróun á því má sjá á mynd 2. Verðlagseftirlit ASÍ hefur áður vakið máls á hversu tíður þessi einnar-krónu verðmunur er4,5, en hér er hægt að skoða hversu algeng þessa fyrirbæri eru dag fyrir dag á samanburðarvörum gáttarinnar.

mynd2-Tíðni 1 kr. hærra verðs en í Bónus
Mynd2 - Tíðni 1 kr. hærra verðs en í Bónus

Tíðni þessa „jaðarkostnaðar“ hefur, innan körfu Verðgáttarinnar, farið úr rúmum 60% í tæp 80%.

Hvernig er þessi …

Fáðu áskrift til að lesa

Áskrift að Vísbendingu hæfir þeim sem hafa gaman að óvilhöllum greiningum og gagn af greinargóðum upplýsingum um efnahagsmál, viðskipti og nýsköpun.

Næsta grein

Mest lesið
1
Atvinna

Er atvinnuleysi innflytjenda næmara fyrir hagsveiflum?

2
Aðrir sálmar

Gylfaginning

3
Loftslagsmál

París, prósentur og prófsteinninn

4
Aðrir sálmar

Af Atómstöðinni

5
Opinber fjármál

Nýtt grunnviðmið fyrir stjórnarhætti opinberra aðila

6
Umhverfi

Ef Ísland væri borg á meginlandi Evrópu

Reykjavíkurhöfn
Efnahagsmál 32. tbl.

Hvert er mark­mið efna­hags­lífs­ins?

Mikilvægi skilnings á samhengi og hugtökum
Reykjavík

Staða há­skóla­mennt­aðra á hús­næð­is­mark­aði

Ný könnun Félagsvísindastofnunar HÍ bendir til þess að háskólamenntun ein og sér tryggi ekki greiða leið inn á húsnæðismarkað. Flestir eignast að lokum eigið húsnæði, en leiðin þangað virðist orðin lengri og kostnaðarsamari en áður og byggist oft á stuðningi fjölskyldu, skuldsetningu og miklu vinnuframlagi.
Stjórnarráðið
Efnahagsmál 31. tbl.

Til hvers eru op­in­ber fjár­mál?

Mikilvægi umræðunnar um tölur og orð

Peningar
Efnahagsmál 31. tbl.

Und­ir­liggj­andi kostn­að­ar­þrýst­ing­ur

Launa-framleiðnibilið, framlegð og atvinnustig á Íslandi
AFP__20240320__economou-notitle240319_npstx__v1__HighRes__EuFlagsInBrussels

Evr­ópa og nýi heim­ur­inn

vesturheimur og vesturveldin eru hugtök til að endurskilgreina