USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
Til baka

Frum­byggj­ar í fram­sæt­inu

Hugleiðingar um framþróun frá Hringborði Norðurslóða

Arctic circle 2025
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Ólafur Ragnar Grímsson fyrrum forseti og forvígismaður Hringborðs norðurslóða
Mynd: Arctic Circle

Eins og margir tók ég þátt í Arctic Circle í síðustu viku. Þetta var mitt þriðja sinn og afar sérstök upplifun í hvert skipti, hrífandi, krefjandi og umhugsunarverð. Hringborð Norðurslóða er vettvangur þar sem margt gerist á sama tíma, fullt af fólki, óteljandi málstofur, fyrirlestrar, pallborðsumræður og tengslamyndun. Mikið er um samhliða dagskrárliði svo maður upplifir óhjákvæmilega óttann um að vera missa af einhverju mikilvægu sem gæti breytt öllu.

Það má leika sér við að greina ákveðna „stéttaskiptingu“ á þessari Norðurslóða-þjóðhátíð. Í toppsætunum sitja háttsettir embættismenn, ráðherrar og fyrrverandi ráðherrar. Og svo eru það frumbyggjarnir. Nú orðið er langmest kúl að vera frumbyggi í þessu samhengi, sérstaklega ef maður er í hefðbundnum klæðnaði og ber með sér trúverðugleika og rótgróna þekkingu. Þetta snýst nefnilega um „authenticity“ og raunverulega tengingu við Norðurslóðir. Þau bera líka af hvað varðar stíl og fagurfræði. Ég prófaði að mæta í íslenskri lopapeysu frá ömmu einn daginn, en fann ekkert sérstaklega til mín í henni svo daginn eftir fór ég aftur í blazer-inn.

Vísindamiðlunin sem á sér stað á viðburði sem þessum er mögnuð, því þarna kemur saman vísindafólk með djúpa þekkingu á loftslagsmálum, náttúruauðlindum, menningu, stjórnmálum og samfélagsbreytingum. Þar að auki eru hundruð starfsmanna frá háskólum, stofnunum, rannsóknasetrum og verkefnum af ýmsu tagi. Sjálf var ég þar í hlutverki verkefnastjóra í alþjóðlegu samstarfi á vegum Norðurslóðasjóðsins Interreg NPA og tók þátt í málstofu um fræðslu, samsköpun og leiki (e. serious games & co-creation) og hvernig sú aðferðafræði getur nýst til að ræða og miðla mikilvægum málum Norðurslóða þvert á menningarheima, sérfræðiþekkingu og bakgrunn.

Eins og fyrr segir var dagskráin þétt en inn á milli umræðna voru einnig listviðburðir, veislur og hægt að skoða sig um í sýningarými og spjalla. Þó undir öllum umræðum mætti finna undirtón ástandsins í heiminum þá mætti nefna …

Fáðu áskrift til að lesa

Áskrift að Vísbendingu hæfir þeim sem hafa gaman að óvilhöllum greiningum og gagn af greinargóðum upplýsingum um efnahagsmál, viðskipti og nýsköpun.

Næsta grein

Mest lesið
1
Atvinna

Er atvinnuleysi innflytjenda næmara fyrir hagsveiflum?

2
Aðrir sálmar

Gylfaginning

3
Loftslagsmál

París, prósentur og prófsteinninn

4
Aðrir sálmar

Af Atómstöðinni

5
Opinber fjármál

Nýtt grunnviðmið fyrir stjórnarhætti opinberra aðila

6
Umhverfi

Ef Ísland væri borg á meginlandi Evrópu

Reykjavíkurhöfn
Efnahagsmál 32. tbl.

Hvert er mark­mið efna­hags­lífs­ins?

Mikilvægi skilnings á samhengi og hugtökum
Reykjavík

Staða há­skóla­mennt­aðra á hús­næð­is­mark­aði

Ný könnun Félagsvísindastofnunar HÍ bendir til þess að háskólamenntun ein og sér tryggi ekki greiða leið inn á húsnæðismarkað. Flestir eignast að lokum eigið húsnæði, en leiðin þangað virðist orðin lengri og kostnaðarsamari en áður og byggist oft á stuðningi fjölskyldu, skuldsetningu og miklu vinnuframlagi.
Peningar
Efnahagsmál 31. tbl.

Und­ir­liggj­andi kostn­að­ar­þrýst­ing­ur

Launa-framleiðnibilið, framlegð og atvinnustig á Íslandi

Stjórnarráðið
Efnahagsmál 31. tbl.

Til hvers eru op­in­ber fjár­mál?

Mikilvægi umræðunnar um tölur og orð
AFP__20240320__economou-notitle240319_npstx__v1__HighRes__EuFlagsInBrussels

Evr­ópa og nýi heim­ur­inn

vesturheimur og vesturveldin eru hugtök til að endurskilgreina