USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
Til baka

Hús­næði og um­ferð­ar­ónæði

Hús, bílar og kosningar í framleiðniaukningu og yfirvofandi alþjóðlegri efnahagskrísu

Umferð
Mynd: Golli

Skipulagsmál og samgöngur eru dæmi um mál sem vont er að hafa einangruð eða aðgreind frá öðrum málum, eins og til dæmis húsnæðismálum. Stjórnskipulag er annað dæmi um hina ósýnilegu innviði sem áhrif hafa á samhæfingu ólíkra sviða samfélagsins. Báðar greinar blaðs vikunnar fjalla um húsnæðismál, sú fyrri í sögulegu ljósi og út frá fjármögnunarhliðinni. Hin síðari út frá samgöngumálum og öðrum skipulagslegum þáttum.

Trúin á samkeppnina er óvenjumikil hérlendis þar sem flestir þættir viðskiptalífsins einkennast þó af mikilli fákeppni. Því hefur til dæmis skapast útvíkkun á sviði samkeppninnar þannig að sveitarfélög keppast nú við að kenna mismunandi tímastýringar- og greiðslukerfi leikskóla við nafn bæjarins. Miðlæga staðsetningu atkvæðagreiðslu utan kjörfundar í höfuðborginni hefur þó tekist að samhæfa á einn stað í Kópavogi.

Aukin framleiðni er eitt helsta áherslumál nýsamþykktrar atvinnustefnu, sem er mikilvægt markmið. Hagvaxtarsóknin sem drifin hefur verið áfram undanfarin ár af aðfluttu vinnuafli hefur nú verið aflögð og stefnt að því að auka hagvöxt á mann. Þó verulega óljóst sé hvort það muni takast, auk þess sem hin róttæka óvissa í heimshagkerfinu eykur enn á vandann. Alþjóðleg fjölmiðlaumræða einkennist af vaxandi ótta við yfirvofandi alþjóðlega efnahagskrísu, eins og lesa má í Financial Times í vikunni.

Hver vinnustund skiptir máli varðandi framleiðnina, óháð því hvernig hagvöxtur og mannfjöldi þróast. En mikil hætta er þó á að framleiðniaukning skili sér hvorki til fólks með hærri launum né styttri vinnutíma. Enginn reiknar með kostnaðinum af lengri ferðatíma á götum höfuðborgarsvæðisins. En þannig styttast samvistir með börnum (eða barnabörnum) og við færumst fjær marki Keynes um 15 klukkustunda vinnuviku eftir fjögur ár. En auðvitað gæti sumum þótt jákvætt að þannig aukist hagvöxtur með lengri dagvistunartíma, helst hjá hagnaðardrifnum einkareknum leikskólum.

Svo virðist vera hægt að leysa umferðaröngþveitið með pólitískum áhrifum á stýrikerfi umferðarljósa ef marka má auglýsingar fyrir sveitarstjórnarkosningarnar eftir rúma viku.

Næsta grein

Mest lesið
1
Atvinna

Er atvinnuleysi innflytjenda næmara fyrir hagsveiflum?

2
Aðrir sálmar

Gylfaginning

3
Loftslagsmál

París, prósentur og prófsteinninn

4
Aðrir sálmar

Af Atómstöðinni

5
Opinber fjármál

Nýtt grunnviðmið fyrir stjórnarhætti opinberra aðila

6
Umhverfi

Ef Ísland væri borg á meginlandi Evrópu

Reykjavíkurhöfn
Efnahagsmál 32. tbl.

Hvert er mark­mið efna­hags­lífs­ins?

Mikilvægi skilnings á samhengi og hugtökum
Reykjavík

Staða há­skóla­mennt­aðra á hús­næð­is­mark­aði

Ný könnun Félagsvísindastofnunar HÍ bendir til þess að háskólamenntun ein og sér tryggi ekki greiða leið inn á húsnæðismarkað. Flestir eignast að lokum eigið húsnæði, en leiðin þangað virðist orðin lengri og kostnaðarsamari en áður og byggist oft á stuðningi fjölskyldu, skuldsetningu og miklu vinnuframlagi.
Peningar
Efnahagsmál 31. tbl.

Und­ir­liggj­andi kostn­að­ar­þrýst­ing­ur

Launa-framleiðnibilið, framlegð og atvinnustig á Íslandi

Stjórnarráðið
Efnahagsmál 31. tbl.

Til hvers eru op­in­ber fjár­mál?

Mikilvægi umræðunnar um tölur og orð
AFP__20240320__economou-notitle240319_npstx__v1__HighRes__EuFlagsInBrussels

Evr­ópa og nýi heim­ur­inn

vesturheimur og vesturveldin eru hugtök til að endurskilgreina