Stjórnvöld standa frammi fyrir krefjandi stöðu í opinberum fjármálum: vaxtakostnaður ríkissjóðs hefur farið hækkandi, útgjaldakröfur eru áfram umfangsmiklar og svigrúm til nýrra aðgerða er takmarkað. Á sama tíma eykst eftirspurn eftir gæðum í opinberri þjónustu, auk þess sem kröfur um að almannafé sé varið af skynsemi og með gagnsæjum hætti verða sífellt háværari.
Fjármagn hins opinbera er takmarkað og mikilvægt er að stjórnvöld veiti fjármuni til verkefna sem skila auknum ávinningi fyrir samfélagið. En hvernig er hægt að tryggja að fjármunir séu nýttir á sem hagkvæmastan hátt?
Kerfisbundnar greiningar á útgjöldum hins opinbera
Útgjaldagreiningar (e. spending reviews) eru kerfisbundnar greiningar á útgjöldum til málefnasviða og málaflokka með það að markmiði að ná fram aukinni hagræðingu og skilvirkni í útgjöldum hins opinbera. Þessar greiningar eru mikið notaðar í OECD löndum og hafa víða skilað góðum árangri við að tryggja að opinbert fé sé vel nýtt[1].
Ísland hefur boðað innleiðingu á slíkum greiningum en verklagið hefur ekki náð flugi hérlendis. Tilgangur útgjaldagreininga er að greina leiðir til að ná árangri með sem minnstum tilkostnaði: að gera stjórnvöldum kleift að hagræða í ríkisrekstri, skapa svigrúm fyrir bætta þjónustu og aukin útgjöld til grunninnviða, og að forgangsraða takmörkuðum fjármunum. Tilgangur þeirra er ekki að skera niður grunnþjónustu eða ráðast í niðurskurð sem kemur sér illa fyrir samfélagið. Þvert á móti er tilgangurinn sá að skoða hvar fjármagn nýtist ekki sem skyldi fyrir samfélagið og skapa þannig svigrúm fyrir aukin útgjöld til málefnasviða og málaflokka sem mynda grunnstoðir samfélagsins. Í þessu ferli er hægt að hafa nokkrar lykilspurningar í huga:
- Er þjónustan sem verið er að veita í samræmi við þarfir samfélagsins og er verið að veita hana á sem hagkvæmastan hátt?
- Ef kveðið er á um þjónustuna, t.a.m. í lögum, hefur markmiðum laganna verið náð eða er hægt að veita fjármunina í aðra þarfari þjónustu?
- Eru leiðir til að bæta og nútímavæða þjónustuna, m.a. með stafrænni þjónustu?
- Er hægt að lækka kostnað við starfsemina sem fellur undir málaflokkinn án þess að skerða þjónustu eða að það komi niður á árangri og styrkleika starfseminnar til framtíðar?
- Er hægt að útskýra inntak og samband árangurs og mælikvarða, eða er þörf á skýrari mælikvörðum og markmiðum fyrir þá þjónustu sem veitt er?
Rammaáætlanagerð og stöðugleikaregla – lykillinn að skilvirkari áætlanagerð hins opinbera
Í fjármálaáætlun fyrir árin 2026-2030 er kveðið á um að innleiða eigi að fullu rammaáætlanagerð. Þessi hugmyndafræði – þar sem fagráðuneytum er falin aukin ábyrgð á útfærslu útgjalda innan skýrra ramma sem samræmast heildarstefnu stjórnvalda í efnahagsmálum – er ekki ný af nálinni, enda hófust tilraunir til að innleiða hana á tíunda áratug síðustu aldar. Mikilvægt er að þessi aðferðafræði verði loks innleidd hérlendis, enda styður hún vel við fyrirkomulag um markvissar útgjaldagreiningar. Þegar rammaáætlanagerð og reglubundnar útgjaldagreiningar eru nýttar í sameiningu, hafa stjórnvöld í höndum öflugt tæki til að byggja upp gagnsæjan, agaðan og árangursdrifinn ramma utan um forgangsröðun opinberra fjármuna.
Fjármála- og efnahagsráðherra hefur einnig lagt fyrir Alþingi frumvarp til laga um breytingu á lögum um opinber fjármál, nr. 123/2015, þar sem stöðugleikaregla verður ein af fjármálareglum laganna, með það að markmiði að tryggja jafnvægi í opinberum fjármálum yfir hagsveifluna. Reglan felur …








