Losun gróðurhúsalofttegunda vegna brennslu jarðefnaeldsneytis hefur, þegar þetta er skrifað, þegar valdið hlýnun loftslags á jörðinni um 1,45°C frá því fyrir iðnbyltingu. Enginn vafi leikur á því að þetta er af beinum mannavöldum, þótt sumir harðneiti enn að horfast í augu við þá staðreynd. Það vakti því furðu höfunda að í aðdraganda nýafstaðinna Alþingiskosninga hafi lítið sem ekkert farið fyrir umræðu um loftslags- og umhverfismál. Í staðinn einblíndu flokkarnir á efnahags-, innflytjenda- og heilbrigðismál. Okkur þykir því ástæða til að árétta að öll eru þessi málefni innbyrðis tengd. Lýðheilsa, búsetuskilyrði og fjárhagsleg afkoma fólks byggja beinlínis á umhverfinu. Loftslagsbreytingar eru stærsta heilsufarsógn sem mannkyn stendur frammi fyrir að mati Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar.
Árlega gefur hópur lækna og annarra heilbrigðisvísindamanna út svokallaða Lancet Countdown skýrslu þar sem rakin eru hnattræn heilsufarstengd áhrif loftslagsbreytinga. Nýjasta skýrslan er harðorð. Þar er fullyrt að tafir stjórnvalda á markvissum aðgerðum gegn loftslagsbreytingum hafi þegar leitt til óafturkræfs skaða á vistkerfum og valdið mannfólki beinu og óbeinu heilsutjóni. Með auknum öfgum í veðurfari, uppskerubresti og drykkjarvatnsskorti hafi loftslagsbreytingar valdið ofhitnun, aukinni dreifingu hitabeltissjúkdóma, þurrkum, eldum, flóðum, missi búsetusvæðis, missi ræktarlands, fólksflótta, hungursneyð, vatnsmengun, fátækt og átökum á svæðum sem voru viðkvæm fyrir. Loftslagsbreytingar ógna líffræðilegri fjölbreytni og þar með fæðuöryggi manna og annarra lífvera. Allt ógnar þetta efnahagslegri stöðu stórra sem smárra samfélaga. Á heimsvísu töpuðust 512 milljarðar vinnustunda árið 2023 vegna hitatengds álags sem er 49% aukning frá tíunda áratug síðustu aldar. Hitatengdum andlátum hefur fjölgað um 167% meðal 65 ára og eldri frá tíunda áratug síðustu aldar. Þurrkar og breytingar á regnmynstrum hafa valdið fæðuskorti hjá 151 milljón manna árið 2024. Þá er loftmengun sem rakin er til bruna jarðefnaeldsneytis talin valda yfir tíu milljónum árlegra ótímabærra dauðsfalla.
Hliðarávinningur loftslagsaðgerða
Þrátt fyrir viðvaranir vísindamanna áratugum saman, hefur losun gróðurhúsalofttegunda aukist og hitastig hækkar enn. Vistspor Íslendinga er gríðarhátt á alþjóðlegan mælikvarða og losun sem er á beina ábyrgð þjóðarinnar heldur áfram að hækka, þrátt fyrir umhverfisvæna orku- og hitagjafa. Þetta hefur verið kallað íslenska þversögnin sem er í því fólgin að vegna þess hve „grænir“ okkar orkugjafar eru, höfum við leyft okkur meiri losun á öðrum sviðum, aðallega tengdum neyslu og samgöngum. Loftslagsbreytingar hafa nú þegar afleiðingar hér á landi, sem lýst er í ítarlegri skýrslu vísindanefndar um loftslagsbreytingar. Landlega Íslands þýðir að hamfarahlýnun gæti valdið því að varmaflutningur inn á hafsvæðið við landið stöðvist, sem hefði augljóslega slæm áhrif á lífsskilyrði í landinu. Loftslagsráð (2023) hefur gagnrýnt íslensk stjórnvöld harkalega fyrir aðgerðaleysi og ómarkvissa stefnu í loftslagsmálum. Ráðið fer fram á við stjórnvöld „ … að sýna frumkvæði, stefnufestu, fyrirhyggju og fyrirsjáanleika í aðgerðum í loftslagsmálum sem skapa umgjörð og aðstæður fyrir sveitarfélög, atvinnulíf og almenning til að takast á við loftslagsvá.“
Þessi tregða bæði almennings og stjórnvalda hvarvetna til að takast á við vandamálið hefur verið talsvert rannsökuð af sálfræðingum. Meðal annars snúa rannsóknir að því hvernig hægt sé að breyta hegðun fólks og fá almenning og stjórnvöld til þess að samþykkja nauðsynlegar breytingar. Ein ástæða fyrir því hve treglega gengur er að mannsheilinn á erfitt með að tengja daglega hegðun við losun óáþreifanlegra og ósýnilegra lofttegunda, sem kunna að hafa afleiðingar sem eru fjarlægar í tíma og rúmi. Þess vegna er ekki hvati til breytinga á hegðun. Fólk á aftur á móti auðveldara með að breyta hegðun sinni vegna einhvers áþreifanlegs, hvort sem heldur er tap eða ávinningur. Vegna þessa er fólk, þvert á stjórnmálaskoðanir, tilbúnara til að takast sjálft á við loftslagsvandann og samþykkja loftslagsaðgerðir stjórnvalda, ef það telur að slíkt muni skila sér í hliðarávinningi (e. co-benefit), svo sem í mannvænna og vinalegra samfélagi og aukinni tækni- og efnahagsþróun. Þannig getur áhersla á hliðarávinning aðgerða auðveldað þeim sem eru íhaldssamari að samþykkja nauðsynlegar breytingar. Margvíslegur hliðarávinningur getur unnist af því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og öðrum umhverfisvanda. Augljós hliðarávinningur er bætt lýðheilsa.
Læknar hafa í gegnum söguna verið í fararbroddi þeirra sem berjast fyrir bættri lýðheilsu og í 5. grein siðareglna lækna er sérstaklega tiltekið að læknar skuli mæla fyrir lýðheilsu, verndun umhverfis, lofthjúps, vistkerfis jarðar og náttúru, í þágu lífsskilyrða lífríkis og heilbrigðis alls mannkyns. Þá er einnig líklegt að læknar yrðu fljótt vör við skaðleg áhrif umhverfis á heilsu.
Áhyggjur íslenskra lækna
Vitandi að hliðarávinningur loftslagsaðgerða er líklegri til þess að hvetja til aðgerða ákváðu höfundar því að kanna hvort íslenskir læknar hafi áhyggjur af ástandi umhverfismála.
Könnunin var gerð meðal íslenskra lækna og læknanema á Íslandi (N = 580, 32,6% svarhlutfall úr þýði) og sýnir að læknar og læknanemar telja almenning hér á landi munu verða fyrir auknu heilsutjóni á næstu árum vegna umhverfisvandamála (sjá nánari niðurstöður í töflum). Marktækur munur var þó á viðhorfum eftir kynslóðum. Læknanemar og yngri læknar voru líklegri en eldri sérfræðingar til að hafa miklar áhyggjur af umhverfisvandanum og kalla eftir aðgerðum stjórnvalda.
Fæðuöryggi. Meirihluti svarenda í könnuninni voru mjög eða frekar sammála því að fækkun dýra- og plöntutegunda ógni fæðuöryggi (74,8%) og hafi slæm áhrif á heilsu almennings í framtíðinni (80,8%). Þá voru svarendur nánast á einu máli um að fækkun dýra- og plöntutegunda síðustu árhundruð væri af mannanna völdum (90,2% mjög eða frekar sammála). Sömuleiðis voru 88,7% svarenda mjög eða frekar sammála því að súrnun sjávar ógni fæðuöryggi almennings.
Umhverfismengun. Loftmengun á Íslandi er oft langt yfir heilsuverndarmörkum, einkum á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Óvissa er um hversu mörg ótímabærra dauðsfalla á ári megi rekja til loftmengunar hérlendis, en að öllum líkindum eru þau einhver, flest vegna heilablóðfalls eða bráðs kransæðasjúkdóms. Taldi 63,5% svarenda að loftmengun á Íslandi hafi skaðleg áhrif á heilsu sjúklinga sinna. Íslendingar framkalla einnig mikla loftmengun með flugeldanotkun um um áramót sem losar skaðlegt svifryk, sót og þungmálma. Í könnuninni voru 72,6% svarenda mjög eða frekar sammála því að flugeldamengun hafi skaðleg áhrif á heilsu sjúklinga og 76,7% sammála því að takmarka ætti aðgengi almennings að flugeldum. Í heiminum er efnamengun af ýmsum toga einnig gífurlegt vandamál, svo sem vegna plasts, lyfjaleifa, skordýraeiturs, þungmálma og svifryks vegna iðnaðar og umferðar. Stór hluti svarenda (88%) var mjög eða frekar sammála því að almenningur muni verða fyrir auknu heilsutjóni vegna umhverfismengunar á næstu árum og að plastmengun muni hafa slæm áhrif á heilsu almennings í framtíðinni (84,4%).
Aðgerðir stjórnvalda: Reyndust þó aðeins 56,7% svarenda hafa kynnt sér aðgerðir stjórnvalda hér á landi til að stemma stigu við loftslagsbreytingum. Þeir voru beðnir um að leggja mat á viðleitni stjórnvalda til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda með því að gefa stjörnur á bilinu 1 til 6. Að meðaltali fengu stjórnvöld 2,74 (Sf = 0,88) stjörnur, en enginn gaf 6 stjörnur. Það getur ekki talist glæsileg einkunn. Meirihluti svarenda (70,5%) var mjög eða frekar sammála því að Ísland geri of lítið til að aðlagast loftslagsbreytingum. Niðurstöður bentu einnig til þess að læknar höfðu meiri áhyggjur af áhrifum loftslagsbreytinga heldur en almenningur, sem var spurður sömu spurninga í umhverfiskönnun Gallup.
Niðurlag
Markmið könnunarinnar var að afla gagna sem gætu ýtt við aðgerðum stjórnvalda í loftslags- og umhverfismálum. Ljóst er af niðurstöðunum að íslenskir læknar hafa miklar áhyggjur af stöðu umhverfismála. Flestir þeirra telja líklegt að almenningur hér á landi sé þegar að verða fyrir heilsutjóni af völdum umhverfismengunar og að fæðuöryggi og lýðheilsu sé ógnað vegna hamfarahlýnunar og mengunar. Með því að beina sjónum að hliðarávinningi loftslagsaðgerða fyrir lýðheilsu – svo sem bættum loftgæðum, minni tíðni öndunarfærasjúkdóma og aukið fæðuöryggi – má auðvelda stefnumótendum að gera breytingar.
Von höfunda er að þrýstingur frá læknum gæti leitt til þess að stjórnvöld á Íslandi grípi til markvissra aðgerða í umhverfis- og loftslagsmálum án tafar.
Heimildir
-
Bain, P. G., Milfont, T. L., Kashima, Y., Bilewicz, M., Doron, G., Garðarsdóttir, R. B., ... & Saviolidis, N. M. (2016). Co-benefits of addressing climate change can motivate action around the world. Nature climate change, 6(2), 154-157.
Slóð -
Clarke, J., Heinonen, J., & Ottelin, J. (2017). Emissions in a decarbonised economy? Global lessons from a carbon footprint analysis of Iceland. Journal of Cleaner Production, 166, 1175-1186.
Slóð -
Copernicus (e.d.) Temperature. https://climate.copernicus.eu/climate-indicators/temperature
Slóð -
Halldór Björnsson o.fl. (2023). Umfang og afleiðingar hnattrænna loftslagsbreytinga á Íslandi. Fjórða samantektarskýrsla vísindanefndar um loftslagsbreytingar. Veðurstofa Íslands. https://www.vedur.is/um-vi/frettir/fjorda-samantektarskyrsla-visindanefndar
Slóð -
Romanello, M., Walawender, M., Hsu, S. C., Moskeland, A., Palmeiro-Silva, Y., Scamman, D., ... & Costello, A. (2024). The 2024 report of the Lancet Countdown on health and climate change. The Lancet, 404 (10465), 1847-1896.
Slóð -
Loftslagsráð (2023) Álit Loftsslagsráðs um aðgerðáætlun í loftslagsmálum
Slóð









