Íslendingar eru ekki þekktir fyrir að vera fyrirhyggjusöm þjóð. Að mörgu leyti hefur það verið styrkleiki, þar sem auðveldara er að bregðast við áföllum ef engin langtímaplön eru til staðar.
Hins vegar getur skortur á langtímahugsun í efnahagsmálum komið niður á okkur þegar kerfislæg vandamál blasa við, líkt og minnkandi framleiðni vinnuafls og erfiðleikar við að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Með vel mótaðri iðnaðarstefnu, sem hefur orðið vinsælli á Vesturlöndum á síðustu árum, gætu stjórnvöld hér á landi tekið á slíkum vandamálum og tryggt stöðugleika sem erfitt væri að ná með skammtímaaðgerðum einum og sér.
Úr þróunarlandi í iðnrisa
Iðnaðarstefna (e. industrial policy) er hugtak yfir stefnu stjórnvalda til að greiða leið fyrir sérvöldum atvinnugreinum með beinum eða óbeinum íhlutunum. Sem slík er hugmyndin ekki ný af nálinni, ríkisstjórnir fjölmargra landa hafa beitt sér fyrir vexti einstakra atvinnugreina.
Eitt frægasta dæmi um ríki sem hefur framkvæmt vel heppnaða iðnaðarstefnu er Suður-Kórea, en á sjöunda áratug síðustu aldar ákvað ríkisstjórnin þar í landi að styrkja iðnaðarframleiðslu umfram aðrar atvinnugreinar. Stefnan var margþætt, hún fól meðal annars í sér sértæka skattlagningu, beinar niðurgreiðslur, leyfisveitingar og lánveitingar á hagstæðum kjörum til iðnfyrirtækja.
Eftir að stefnan var sett á tókst Suður-Kóreu að umbreyta hagkerfi sínu og stórbæta velsæld íbúa sinna á fáeinum áratugum. Landið, sem var þróunarríki eftir lok seinni heimsstyrjaldar, varð að einum öflugasta útflytjanda heims á raftækjum, skipum, bílum og öðrum iðnaðarvörum undir lok tuttugustu aldar.
Velgengni Suður-Kóreu var að miklu leyti iðnaðarstefnunni að þakka. Sú tímabundna meðgjöf sem ríkisstjórnin veitti ákveðnum fyrirtækjum höfðu í för með sér jákvæð langtímaáhrif á allt hagkerfið, en sérfræðingar telja að lífskjör þar í landi hefðu verið um fjórðungi verri ef hennar hefði ekki gætt.

Stóriðjustefnan
Annað dæmi um iðnaðarstefnu er stóriðjustefnan sem hófst hér á landi fyrir rúmlega hálfri öld síðan. Svokölluð stóriðjunefnd sem íslensk stjórnvöld stofnuðu árið 1961 náði að semja við svissneska álfyrirtækið Alusuisse um uppbyggingu álversins í Straumsvík. Til að þjóna orkuþörf álversins lét ríkisstjórnin einnig reisa Búrfellsvirkjun með láni frá Alþjóðabankanum.
Fleiri stóriðjuverkefni fylgdu svo eftir álverið í Straumsvík, líkt og járnblendiverksmiðjan á Grundartanga árið 1979 og álverið á Reyðarfirði árið 2007. Íslensk stjórnvöld áttu beinan þátt í uppbyggingu þessara verkefna, en þau sömdu við stóriðjufyrirtækin um orkukaup fyrirtækjanna og nauðsynlegar innviðaframkvæmdir til að tryggja að verkefnin yrðu að veruleika.
Með hjálp stóriðjustefnunnar tókst stjórnvöldum að búa til nýja útflutningsgrein hér á landi, en stóriðjan er nú ein af þremur meginútflutningsstoðum okkar, ásamt ferðaþjónustu og sjávarútvegi. Greinarnar eru allar svipaðar af stærð, en hver þeirra hefur staðið fyrir um fjórðungi af útflutningstekjum okkar á síðustu tíu árum. Með stóriðjunni hefur gengi krónunnar orðið stöðugra, þar sem án hennar væri hagkerfið okkar viðkvæmara gagnvart sveiflum í fiskverði og ferðavilja túrista.
Minna vinsæl með auknu markaðsfrelsi
Samhliða sprengingu í alþjóðaverslun og auknu markaðsfrelsi undir lok síðustu aldar fékk hugmyndin um iðnaðarstefnu minni hljómgrunn á vesturlöndum. Hugmyndin var ekki vinsæl innan hagfræðinnar, þar sem bein íhlutun stjórnvalda í atvinnulífið var talin vera óæskileg á meðan hægt væri að láta markaðsöflin ráða hvaða atvinnugreinar ættu að þrífast í hverju hagkerfi fyrir sig.
Hagfræðingar hafa sérstaklega bent á tvær hættur sem fylgja því að stjórnvöld handstýri hagkerfi landa, en það eru ófullkomnar upplýsingar og aukin hætta á spillingu. Þar sem ríkisstjórnir búa ekki yfir fullkomnum upplýsingum gætu þær endað á að hjálpa óhagkvæmum fyrirtækjum á kostnað hagkvæmra með iðnaðarstefnu sinni, sem myndi hindra efnahagsframfarir í stað þess að stuðla að þeim.
Sömuleiðis gæti aukin handstýring stjórnvalda á hagkerfinu leitt til meiri sérhagsmunagæslu, þar sem fyrirtæki eyða fjármunum sínum í að sækjast eftir opinberum styrkjum í stað þess að einbeita sér að eigin framleiðslu. Bein íhlutun hins opinbera í hagkerfinu myndi líka auka samgang atvinnulífsins við stjórnmálafólk, sem gæti aukið líkurnar á spillingu.
Endurkoma iðnaðarstefnunnar
Á síðustu árum hefur iðnaðarstefnan þó fengið endurnýjun lífdaga á meðal hagfræðinga. Samkvæmt OECD geta stjórnvöld gegnt veigamiklu hlutverki í vexti og framþróun hagkerfa sinna með sértækum styrkjum, ívilnunum og niðurgreiðslum til ákveðinna atvinnugreina, séu þær framkvæmdar með réttum hætti. Sömuleiðis telja samtökin að iðnaðarstefna geti hjálpað stjórnvöldum að takast á við loftslagsvandann og náð settum markmiðum í orkuskiptum.
Samhliða auknum meðbyr frá hagfræðingum hafa stjórnvöld á Vesturlöndum einnig hrundið af stað fleiri aðgerðum sem svipa til iðnaðarstefnu. Sérvaldar atvinnugreinar voru styrktar eftir fjármálakreppuna og heimsfaraldurinn, auk þess sem stjórnvöld á Vesturlöndum hafa hrundið af stað sértækum aðgerðum til að bregðast við loftslagsvánni.
Í fyrrahaust tók svo Bandaríkjastjórn afgerandi skref í átt að iðnaðarstefnu með samþykkt tveggja lagafrumvarpa, sem kölluð eru Inflation Reduction Act (IRA) og Chips and Science Act (CHIPS). Með IRA-frumvarpinu mun Bandaríkjastjórn auka fjárfestingar sínar í grænni orku til muna, á meðan hún hyggst styrkja innlenda framleiðslu á hálfleiðurum og annarri tækniframleiðslu með CHIPS-frumvarpinu.
Hingað til hefur Bandaríkjastjórn varið …








