USD 121,8 -0,4%
EUR 137,2 0,1%
GBP 161,6
DKK 18,4 0,1%
SEK 12,2 0,2%
NOK 12,7
CHF 146,6 -0,4%
CAD 85,4 -0,4%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
USD 121,8 -0,4%
EUR 137,2 0,1%
GBP 161,6
DKK 18,4 0,1%
SEK 12,2 0,2%
NOK 12,7
CHF 146,6 -0,4%
CAD 85,4 -0,4%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
Til baka

Ís­land áfram í far­ar­broddi

Ríkisstjórnin markar atvinnustefnu til að efla samkeppnishæfni atvinnulífsins og tryggja verðmætasköpun til framtíðar.

Hanna Katrín Friðriksson

Fyrsta ár ríkisstjórnar Viðreisnar, Samfylkingar og Flokks fólksins er nú senn á enda. Það er góð tilfinning að geta litið með stolti til þeirra verkefna sem þegar hafa litið dagsins ljós og stjórnin þannig sýnt að hún óttast ekki að ganga í verkin. Fyrsta verk ríkisstjórnarinnar var að fækka ráðuneytum úr tólf í ellefu. Við þá uppstokkun urðu nokkrar breytingar á skiptingu milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og varð þannig m.a. til nýtt ráðuneyti sem hefur verið vinnustaður minn sl. ár, atvinnuvegaráðuneytið. Eins og nafnið gefur til kynna fer ráðuneytið með málefni allra helstu atvinnuvega landsins, þ.m.t. sjávarútvegs, ferðaþjónustu, lagareldis, landbúnaðar og iðnaðar, auk málefna sem snúa t.d. að samkeppnismálum og neytendamálum. Þessi upptalning er ekki tæmandi en dregur fram að verkefnin eru fjölbreytt og krefjandi í stóru ráðuneyti – og að sjálfsögðu skemmtileg.

Mikilvægi hugvits og nýsköpunar

Eitt af því sem staðið hefur upp úr á þessu fyrsta ári mínu í embætti atvinnuvegaráðherra eru heimsóknir í fjölmörg íslensk fyrirtæki um allt land. Það hefur verið einkar ánægjulegt að finna fyrir þeim krafti og metnaði sem býr í íslensku atvinnulífi, auk þess sem samtöl og fundir með fólki úr atvinnulífinu á ráðstefnum, málþingum og öðrum viðburðum hafa reynst dýrmæt.

Íslenskt atvinnulíf hefur sl. hundrað ár eða svo mótast af tækniþróun og nýsköpun. Í því samhengi má til dæmis nefna annars vegar vélvæðingu skipaflotans og hins vegar fyrirtæki eins og Össur og Marel sem hafa skapað mikil verðmæti fyrir samfélagið og borið hróður íslensks hugvits um allan heim. Tækniþróun er í mínum huga algjört lykilatriði í verðmætasköpun til framtíðar og fyrir íslenska hagkerfið, sem er útflutningsdrifið, er afar mikilvægt að við drögumst ekki aftur úr þegar kemur að tækniþróun og hagnýtingu gervigreindar í íslensku atvinnulífi.

Aðgerðaáætlun um gervigreind

Einn liður í því að tryggja að haldið verði rétt á spilunum í þessum efnum er fyrsta aðgerðaáætlun Íslands um gervigreind, sem Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, kynnti í sumar. Í aðgerðaáætluninni eru settar fram tuttugu aðgerðir sem flokkaðar eru eftir fimm grunnstoðum áætlunarinnar. Ein af þessum fimm stoðum er Samkeppnishæft atvinnulíf.

Stoðin miðar að því að efla samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs með hagnýtingu gervigreindar, styrkingu stafrænnar getu og öflugu samstarfi milli háskóla og atvinnulífs. Lögð er áhersla á að tryggja að fyrirtæki og stofnanir hafi aðgang að nauðsynlegum innviðum, þekkingu og færni sem styður við nýsköpun, sjálfbæra þróun og aðlögun að tæknibreytingum í samfélaginu.

Alls eru tilgreindar sex aðgerðir fyrir stoðina Samkeppnishæft atvinnulíf. Þær beinast allar að því að byggja upp öflugt vistkerfi í kringum gervigreindar- og máltækni með áherslu á samvinnu opinberra aðila, háskóla- og vísindasamfélags, atvinnulífs og vinnumarkaðar. Vinna á að því að efla alþjóðlegt samstarf, bæta aðgengi að reikniafli og áreiðanlegum gagnadrifnum lausnum. Að auki verður lögð áhersla á þróun heildstæðrar gagnastefnu og nýtingu gagna og gervigreindar í þágu sjálfbærrar auðlindanýtingar og verðmætasköpunar.

Gagnavísindi …

Fáðu áskrift til að lesa

Áskrift að Vísbendingu hæfir þeim sem hafa gaman að óvilhöllum greiningum og gagn af greinargóðum upplýsingum um efnahagsmál, viðskipti og nýsköpun.

Næsta grein

Mest lesið
1
Atvinna

Er atvinnuleysi innflytjenda næmara fyrir hagsveiflum?

2
Loftslagsmál

París, prósentur og prófsteinninn

3
Aðrir sálmar

Gylfaginning

4
Aðrir sálmar

Af Atómstöðinni

5
Efnahagsmál

Reiknaður og raunverulegur halli á ríkissjóði

6
Opinber fjármál

Nýtt grunnviðmið fyrir stjórnarhætti opinberra aðila

Peningar
Efnahagsmál 31. tbl.

Und­ir­liggj­andi kostn­að­ar­þrýst­ing­ur

Launa-framleiðnibilið, framlegð og atvinnustig á Íslandi
Seðlar, krónur, peningar
Aðrir sálmar 31. tbl.

Fram­leiðni og halla­rekst­ur

Heimila, fyrirtækja og hins opinbera
Stjórnarráðið
Efnahagsmál 31. tbl.

Til hvers eru op­in­ber fjár­mál?

Mikilvægi umræðunnar um tölur og orð
AFP__20240320__economou-notitle240319_npstx__v1__HighRes__EuFlagsInBrussels
Aðrir sálmar 30. tbl.

Evr­ópa og nýi heim­ur­inn

vesturheimur og vesturveldin eru hugtök til að endurskilgreina

Mynd SGG - 1
Opinber fjármál 30. tbl.

Nýtt grunn­við­mið fyr­ir stjórn­ar­hætti op­in­berra að­ila

77a0620
Umhverfi 30. tbl.

Ef Ís­land væri borg á meg­in­landi Evr­ópu

Að fenginni Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti
Daði Már Kristófersson Fjármálaráðherra
Efnahagsmál 29. tbl.

Reikn­að­ur og raun­veru­leg­ur halli á rík­is­sjóði