USD 121,6 -0,8%
EUR 142 -0,1%
GBP 165,7 -0,3%
DKK 19,0 -0,1%
SEK 12,8 -0,6%
NOK 13,0 -0,1%
CHF 152,2 0,6%
CAD 88,3 -0,1%
JPY 0,8 -0,6%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,3%
Mannfjöldi 396.500
USD 121,6 -0,8%
EUR 142 -0,1%
GBP 165,7 -0,3%
DKK 19,0 -0,1%
SEK 12,8 -0,6%
NOK 13,0 -0,1%
CHF 152,2 0,6%
CAD 88,3 -0,1%
JPY 0,8 -0,6%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,3%
Mannfjöldi 396.500
Til baka

Ís­land í fremstu röð með bættri sam­keppn­is­hæfni

Ferðamenn í Reykjavík
Mynd: Davíð Þór

Við viljum að Ísland sé í fremstu röð þegar kemur að lífsgæðum. Góð lífskjör byggjast á því að hér sé öflugt og samkeppnishæft atvinnulíf sem skapar verðmæti, störf og tækifæri til framtíðar. Samtök iðnaðarins hafa um árabil lagt áherslu á að styrkja samkeppnishæfni Íslands. Sjónum er sérstaklega beint að þeim þáttum sem mestu ráða um samkeppnishæfni og framleiðni: starfsumhverfi, mannauði, nýsköpun, innviðum, orku og umhverfi.

Samkeppnishæfnin hefur dalað og efnahagshorfur versnað

Á marga mælikvarða stendur Ísland vel enda hefur hagsaga landsins síðustu öldina einkennst af örum framförum. Lífskjör eru há, framleiðni talsverð, mannauður mikill, innviðir öflugir og nýsköpunarumhverfið gott. Sú staða er ekki tilviljun heldur árangur markvissra aðgerða er varða samkeppnishæfni landsins sem þarf stöðugt að rækta og bæta.

Vísbending mynd 1

Síðustu árin hefur orðið stöðnun. Staðreyndin er sú að lífskjör, mæld sem landsframleiðsla á mann, hafa lítið sem ekkert batnað frá árinu 2018. Sjö ár eru liðin og við höfum staðið í stað. Í nýrri greiningu Samtaka iðnaðarins kemur fram að skýringin liggur í því að ekki hefur tekist nógu vel að takast á við þær áskoranir sem standa í vegi fyrir aukinni verðmætasköpun.[1] Hagkerfið hefur vissulega stækkað, en sá vöxtur hefur að miklu leyti verið borinn uppi af fjölgun fólks á vinnumarkaði, ekki af því að hver og einn skapi meiri verðmæti. Slíkur vöxtur skilar ekki betri lífskjörum á mann til lengdar.

Samkeppnishæfni Íslands hefur ekki verið að batna undanfarið, heldur þvert á móti. Í nýju mati IMD háskólans í Sviss á alþjóðlegri samkeppnishæfni lækkaði Ísland um sjö sæti, úr 15. sæti árið 2025 í 22. sæti árið 2026. Staða og horfur í efnahagsmálum hafa jafnframt versnað. Hægt hefur á hagvexti, verðbólga er þrálát, vextir háir og atvinnuleysi vaxandi. Svartsýni hefur aukist verulega síðustu mánuði. Í nýrri könnun Gallup meðal stjórnenda stærstu fyrirtækja landsins telja aðeins 5% aðstæður í efnahagslífinu góðar en 64% telja þær slæmar. Aðeins 5% telja að aðstæður muni batna á næstu sex mánuðum en 58% telja að þær muni versna. Væntingavísitala Gallup sýnir sömuleiðis litla tiltrú almennings á efnahagsástandinu.

Nú er því rétti tíminn til að stilla saman strengi. Samhljómur er leiðin til framfara. Byggja þarf á þjóðarsátt þar sem stjórnvöld, atvinnulíf og aðilar vinnumarkaðarins leggja sitt af mörkum til að ná niður verðbólgu og vöxtum, efla samkeppnishæfni og styrkja verðmætasköpun. Með þjóðarsátt er hægt að draga úr óvissu, auka traust og tiltrú til lengri tíma og tryggja að íslenskt hagkerfi standi sterkara til framtíðar.

Byggjum á öflugum iðnaði

Íslenskur iðnaður stendur undir umtalsverðum hluta lífskjara landsmanna. Verðmætasköpun greinarinnar nam 1.100 milljörðum króna á síðasta ári, eða um fjórðungi af verðmætasköpun alls hagkerfisins. Útflutningstekjur námu 791 milljarði króna, eða um 40% af útflutningstekjum þjóðarbúsins. Í iðnaði störfuðu 52 þúsund manns, nær fjórði hver starfandi í hagkerfinu. Velta greinarinnar nam tæpum 2.300 milljörðum króna og skattspor hennar var 564 milljarðar króna árið 2024.

Vísbending mynd 2

Öflugur iðnaður er mikilvæg forsenda vaxtar efnahagslífsins og bættra lífskjara í landinu. Iðnaður er fjölbreyttur og áhrif hans ná langt út fyrir fyrirtækin sjálf. Í kringum hvert iðnfyrirtæki verða til viðskipti, störf og þekking sem nýtist víða í atvinnulífinu. Samkeppnishæfni iðnaðar er því ekki sérmál fyrirtækjanna í greininni heldur lífskjaramál allra. Þetta er landsmönnum ljóst en í nýlegri viðhorfskönnun Gallup meðal almennings sögðust níu af hverjum tíu telja að íslenskur iðnaður hafi jákvæð áhrif á samfélagið í heild. Það er því samhljómur í samfélaginu um að iðnaður sé grunnur að lífskjarabótum og framförum í landinu.

Samkeppnishæfni er samspil margra þátta

Að efla samkeppnishæfni er fjölþætt samfélagslegt verkefni. Samkeppnishæfni verður aðeins bætt með margvíslegum umbótum og samspili margra þátta. Í stuttu máli snýst hún um hversu vel okkur tekst að skapa verðmæti úr vinnu, þekkingu og auðlindum þjóðarinnar. Þegar öllu er á botninn hvolft er samkeppnishæfni spurning um framleiðni, þ.e. hversu mikil verðmæti verða til fyrir hverja unna vinnustund og hvort okkur takist að finna leið til að vinna okkar skili meiru, þannig mældu, í dag en í gær. Lífskjör framtíðarinnar ráðast af því hversu vel þetta tekst. Þeir fimm þættir sem skipta mestu um samkeppnishæfni eru eftirfarandi:

  1. Mannauður. Fyrirtæki skapa engin verðmæti án fólks með rétta þekkingu og færni. Hér á landi hefur lengi verið skortur á iðnmenntuðu fólki og fólki með bakgrunn í raun- og tæknigreinum, svokölluðum STEM-greinum. Afleiðingarnar eru áþreifanlegar: verkefni tefjast og færast úr landi. Skortur á mannauði með rétta færni virkar eins og hemill á vöxt alls hagkerfisins. Með umbótum í menntakerfinu og með því að hvetja erlenda sérfræðinga til að koma og starfa hér á landi má fjölga einstaklingum með þá færni sem þarf til að vinna fjölbreytt störf.
  2. Nýsköpun er drifkraftur framleiðnivaxtar. Umgjörð nýsköpunar, sem felst meðal annars í hvötum vegna …

Fáðu áskrift til að lesa

Áskrift að Vísbendingu hæfir þeim sem hafa gaman að óvilhöllum greiningum og gagn af greinargóðum upplýsingum um efnahagsmál, viðskipti og nýsköpun.
Mest lesið
1
Alþjóðamál

Innlendir sigrar – erlendar forsendur

2
Aðrir sálmar

Alþjóðasamningar og sérhagsmunir

3
Alþjóðamál

Forsaga sameiginlegs evrópsks efnahags og markaðar

4
Alþjóðamál

Evrópuhugsjónin um almannavarnir

5
Efnahagsmál

Að taka frá Pétri til að borga Páli

6
Aðrir sálmar

Varnir og ógnir

selamæðgin við Málmey í Skagafirði
Aðrir sálmar 25. tbl.

Átta villt­ir land­sel­ir og út­sel­ir

Ferðamenn í Reykjavík
Alþjóðamál 25. tbl.

Ís­land í fremstu röð með bættri sam­keppn­is­hæfni

h_56260582
Alþjóðamál 25. tbl.

Að vera eða ekki vera

Stjórnarráðið
Alþjóðamál 25. tbl.

Stjórn­ar­skrá­in og þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­an í ágúst­lok – Næstu skref óháð nið­ur­stöð­unni


Úkraína drónar
Aðrir sálmar 24. tbl.

Varn­ir og ógn­ir

Af manna völdu og fyrir almannahag
Peningar
Efnahagsmál 24. tbl.

Að taka frá Pétri til að borga Páli

Raunvextir, launa-framleiðnibilið og íslenska leiðin til að verja atvinnustig
Eldgos, Svartsengi, Bláa Lónið
Alþjóðamál 24. tbl.

Evr­ópu­hug­sjón­in um al­manna­varn­ir

Evrópusambandið þing
Alþjóðamál 23. tbl.

For­saga sam­eig­in­legs evr­ópsks efna­hags og mark­að­ar

stutt söguleg yfirferð um tilurð EES og Evrunnar með áherslu á þátt Delors