Fyrir um áratug hóf sig til flugs ný tækni í náttúruvárvöktun: Nýting ljósleiðarakapla til að mæla hvernig jörðin hristist eða aflagast. Ljósleiðarakapall samanstendur af örþunnum glerþráðum (hver um sig þynnri en mannshár) sem í eðli sínu eru ekki einsleitir heldur eru í þeim ósamfellur eða fletir sem endurkasta ljósinu. Með því að beina leysigeisla eftir ljósleiðaraþræði og nema endurköst eftir tuga kílómetra löngum ljósleiðarakapli, er hægt að mæla tímamun ef þráðurinn hristist, það tognar á honum eða hann þjappast saman. Ef t.d. tognar á þræðinum á ákveðnum stað, þá kemur endurkastaða merkið frá þeim stað aðeins seinna en áður til baka. Hægt er að umreikna þennan tímamun í aflögunareiningu og reikna hversu mikil tognunin var og á hvaða svæði á ljósleiðaranum. Þannig má nýta ljósleiðarann sem langa röð þétt skipaðra mæla. Á svipaðan hátt er hægt að mæla náttúrulegan og manngerðan hristing, t.d. frá jarðskjálftum, skriðuföllum og snjóflóðum, titring þegar eldgos er í gangi en líka umhverfisnið vegna bílaumferðar og annarra mannlegra athafna sem hrista ljósleiðarann nægilega mikið (eru þá nógu nálægt eða hristingurinn nægilega mikill). Mæliaðferðin kallast ljósleiðaraskynjunartækni en á ensku oftast DAS sem stendur fyrir „Distributed Acoustic Sensing“. Til að framkvæma mælinguna þarf tæki sem er kallað ljósleiðaravaki (e. DAS interrogator) og samanstendur af tölvu með leysibúnaði sem sendir og les merkið.
Á síðustu 10 árum hefur orðið alger bylting innan jarðskjálftafræðinnar vegna rannsókna með þessari aðferð. Kostirnir eru margþættir:
- Samfelldar mælingar sem minnka óvissuna í túlkun m.v. hefðbundnar strjálar mælingar. Oftast eru tugir, jafnvel hundrað kílómetrar milli hefðbundinna jarðskjálftastöðva hér á landi en með ljósleiðaravaka er hægt að fá háupplausna mælingu, þ.e. miklu þéttari mælingar, og skilgreina mælistaði á t.d. eins metra fresti eftir kaplinum.
- Kostnaðarhagræðing þar sem einungis þarf að kaupa eitt tæki sem nemur samfellt tugi kílómetra. Enn fremur ætti að nást aukin hagræðing í rekstri og meiri áreiðanleiki í uppitíma þar sem ekki þarf að halda úti margþættum búnaði á mörgum stöðum.
- Mjög breitt tíðnisvið mælinganna og mikil næmni þýðir að bæði er hægt að mæla örskjálfta en líka mjög hægar hreyfingar. Hefðbundnar jarðeðlisfræðilegar mælingar krefjast ólíkra tækja til þess að ná þessum upplýsingum fram.
- Ljósleiðarar eru þegar til staðar víða um land og má því segja að mælanetin séu þegar til.
- Nýlegar framfarir í gervigreind eru vel til þess fallnar að vinna úr þessum stóru gagnasettum og þegar hefur vísindafólk um allan heim hannað aðferðir til að sjálfvirkt greina ljósleiðaragögn með aðferðum vélanáms. Jarðskjálftafræðin hefur lengi verið framarlega í að nýta sjálfvirkni og hefur úrvinnslukerfi Veðurstofu Íslands stuðst við tauganet í sjálfvirkri skjálftagreiningu frá því seint á 9. áratugnum.
Ljóst er að ljósleiðarainnviðir vegna gagnaflutnings á heimsvísu eru komnir til að vera. Þessir innviðir eru um öll lönd, milli landa og þvera heimshöfin og framtíðarmöguleikar til mælinga því miklir.
Nýsköpun í jarðskjálftamælingum
Ísland hefur verið leiðandi og tekið þátt í mörgum rannsóknum sem nýta ljósleiðaravaka. Er hér getið um þær helstu. ÍSOR reið á vaðið í samstarfi við GFZ-rannsóknarstofnunina í Þýskalandi árið 2015 með uppsetningu á ljósleiðaravaka á Reykjanesskaga (Jousset og fleiri, 2018) en áður hafði svipuð tækni verið notuð hérlendis m.a. til mælinga í borholum. Annar greinarhöfundur tók í samstarfi við ETHZ í Sviss þátt í tveimur rannsóknum árið 2021, önnur í Grímsvötnum og hin í samstarfi við Neyðarlínuna við Fagradalsfjall. Verkefnið í Vatnajökli var sérstaklega spennandi og nú þegar hafa einar fimm vísindagreinar verið birtar auk umfjöllunar m.a. í sjónvarpsþættinum 60 minutes (sjá t.d. Þrastarson o.fl. 2021; Klaasen o.fl., 2022, 2023). Í þessu frumrannsóknarverkefni var 12 km ljósleiðari plægður 50 cm ofan í ísinn (með líklega fyrsta ljósleiðarasnjóplóg heims), frá Grímsfjalli, eftir öskjubrúninni og ofan í miðja íshellu Grímsvatna. Eins og búist var við mældum við mun fleiri smáskjálfta en jarðskjálftanet Veðurstofunnar nemur, raunar um hundrað sinnum fleiri. Hitt vissum við ekki fyrr en við mældum það að íshella Grímsvatna hristist stöðugt með 5 sekúndna sveiflutíma hreinlega eins og tromma sem slegið er á viðstöðulaust (Fichtner o.fl., 2022). Nýjasta rannsóknin sem birtist í vísindaritinu Nature í síðasta mánuði lýsir nýrri aðferð sem nýtir háa upplausn ljósleiðaratækninnar til að reikna eðlismassa í efstu 100 metrum jökulsins (Lanteri o.fl. 2025).
Árið 2021 leiddi hinn greinarhöfundur, þá hjá Orkuveitunni (OR), stórt alþjóðlegt rannsóknarverkefni með Háskóla Íslands (HÍ), ÍSOR og fleiri aðilum, sem miðaði að þróun nýrra aðferða til jarðhitaleitar (Hjörleifsdóttir og fl., 2023). Í því voru tveir ljósleiðaravakar og 500 jarðskjálftamælar settir upp í kringum Hengil, sem er þéttasta skjálftamælanet sem sett hefur verið upp á Íslandi (Obermann og fl., 2022). Mælingarnar þaðan gera kleift að búa til sneiðmyndir af jarðskorpunni og auka skilning á eldfjöllum sem hýsa jarðhitakerfi. Fyrir algjöra tilviljun mældist á þessu neti sjaldgæfur atburður af vígahnetti, þ.e. loftsteini sem brennur upp í andrúmslofti með nokkrum tilþrifum, drunum og sjónarspili (Rodriguez og fl., 2023). Sama ár tóku OR, Orka náttúrunnar og Carbfix þátt í verkefni þar sem sérhannaður ljósleiðarakapall var grafinn á niðurdælingarsvæði Hellisheiðar, til að mæla örvaða skjálftavirkni og kolefnisbindingu í jörðu (margar greinar, sjá t.d. Stork et al., 2022).
Háskólinn í Reykjavík (HR) hefur á síðustu tveimur árum bæst í hóp rannsakenda á ljósleiðaraskynjunartækni, með áherslu á bættar jarðhitaleitaraðferðir og vöktun jarðhita- og kolefnisbindingarsvæða en einnig könnun á mælingum á sæstrengjum. Árið 2024 tengdi Nokia Bell Labs nýja gerð ljósleiðaravaka við IRIS-sæstreng Farice til Írlands, sem gerir kleift að mæla hreyfingar á yfir 2000 km kafla, djúpt í hafinu þar sem engin önnur mælitæki eru. Þetta opnar möguleika til rannsókna á hreyfingum jarðar og sjávar á afskekktum svæðum. Vísindafólk HR og HÍ er nú að kanna möguleika á nýtingu gagna úr þessari nýju gerð mælitækis til rannsókna á jarðskjálftum og ástandi hafs. Á sæstrengnum eru einnig ljósleiðaravakar við mælingar í samstarfi við Michigan-háskóla og NTNU, sem nema bæði jarðskjálfta, öldur, hafstrauma, skip og jafnvel hvali.
Ljósleiðara-skynjunartækni
Ljósleiðaravaki er sérútbúin tölva með leysibúnaði sem bæði les og sendir merkið. Tækni ljósleiðaraskynjunar gengur út á að beina leysigeisla eftir einum ljósleiðaraþræði tugi kílómetra og nema endurkast. Ef ljósleiðaraþráðurinn aflagast, þ.e. hann hristist, þjappast saman eða það tognar á honum, þá mælist tímamunur á ljósmerkinu sem ljósleiðaravakinn skráir. Til þess að tæknin virki vel fyrir náttúruvárvöktun er yfirleitt mikilvægt að ljósleiðarinn sé vel plægður í jörð.
Alþjóðlegt frumkvöðlastarf í vísindum
Eitthvert mikilvægasta framfaraskrefið í að nýta ljósleiðaraskynjun á Íslandi, og raunar í heiminum, hefur verið tekið í samvinnu Veðurstofunnar, HR, HÍ, Ljósleiðarans, (Míla bætist fljótlega í hópinn), IREI (Íslenskir rafrænir rannsóknarinnviðir) og vísindahóps í nokkrum háskólum vestanhafs, Caltech, Stanford og Houston-háskóla, þegar viðvörunarkerfi vegna eldgosa á Sundhnúksgígaröðinni var sett í rekstur í sólarhringsvöktun á Veðurstofunni. Er um að ræða eitt fyrsta slíka tilfellið í heiminum þar sem ljósleiðaraskynjunartæknin er nýtt í rekstri í náttúruváreftirliti og líklega í fyrsta skipti í heiminum þar sem tæknin er nýtt í eldgosavöktun.
Ljósleiðaravakinn sem nemur breytingar á ljósleiðaraþráðum sem liggja frá Keflavík meðfram suðurströnd Reykjanesskagans og gegnum Grindavík og einnig meðfram Reykjanesbraut. Hann greinir ítrekað afar skýr aflögunarmerki í aðdraganda eldgosa á Sundhnúksgígaröðinni, allt frá 40 mínútum til 4 klst áður en gos hefst. Þessi merki stafa af kviku sem rís upp í skorpunni, myndar kvikugang og við það hreyfist og aflagast yfirborð jarðarinnar í nágrenninu og þar með ofurnæmur ljósleiðarinn. Veðurstofan, sem ber ábyrgð á vöktun náttúruvár á landsvísu, brást skjótt við þessari nýju þekkingu sem uppgötvaðist snemma árið 2024 og innleiddi viðvörunarkerfi í rauntímavöktun sína. Kerfið er m.a. tengt við hátalara í eftirlitssal náttúruvárvöktunar Veðurstofunnar þar sem sólarhringsvöktun fer fram. Fyrsti íslenski ljósleiðaravakinn var settur í rekstur á -Veðurstofunni í janúar 2025 og viðvörunarkerfið er nú notað samhliða -hefðbundnum jarðskjálfta- og landmælingagögnum (Jónsdóttir o.fl., 2025). Kerfið hefur gefið út sjálfvirkar viðvaranir frá upphafi mælinga fyrir öll eldgos að minnsta kosti 30–40 mínútum áður en gos hefjast, sem hefur skipt lykilmáli fyrir ákvarðanatöku um náttúruvá og samskipti við yfirvöld. Engin fölsk viðvörun hefur verið gefin úr kerfinu. Þetta undirstrikar einstaka næmni og áreiðanleika ljósleiðaratækninnar, sem gerir hana sérstaklega vel fallna til rauntímavöktunar á náttúruvá.
Í sumar innleiddi Veðurstofan í samstarfi við vísindahópinn einnig sjálfvirk líkön sem byggja einungis á ljósleiðaragögnum bæði frá suður- og norðurströnd Reykjanesskagans og sýna í mínútuskala hvernig gangainnskotin þróast rétt fyrir gos. Þessar tímamótaniðurstöður voru teknar saman í vísindagrein sem birtist fyrr á árinu í Science (Li o.fl., 2025). Sjálfvirku líkönin sönnuðu gildi sitt í gosinu sem hófst 16. júlí á árinu og munu nýtast í framtíðinni til að spá fyrir um gosupptök, bæði í tíma og rúmi.
Ljósleiðarainnviðir Íslands og áskoranir
Enn erum við á upphafsárum tækninnar og ýmislegt þarf áfram að hanna og slípa. Sem dæmi um áskorun þá eru gögnin plássfrek. Ljósleiðaravakinn sem nú vaktar Reykjanesskagann safnar um hálfu terabæti daglega. Rekstraraðilar íslensku rafrænu innviðanna, IREI, hafa verið samvinnufúsir varðandi gagnageymslu, en nú eftir þetta fyrsta ár í rekstri ljósleiðaravakans á Reykjanesskaga er ljóst að þarna kreppir skóinn. Ekki verður hægt að geyma öll gögn í fullri upplausn en á sama tíma er mikilvægt að passað sé upp á að merkileg gögn frá Reykjaneseldum geymist fyrir rannsakendur dagsins í dag og framtíðarinnar.
Þrátt fyrir augljósa kosti tækninnar og samnýtingu innviða á Íslandi hafa íslenskir rannsakendur mætt áskorunum. Leiga á aðgangi þarf að vera hófstillt til þess að nýting tækninnar borgi sig. Hátækni ljósleiðaravaki kostar u.þ.b. 25 milljónir og dugar til mælinga allt að 200 km leið. Ein jarðskjálftamælistöð kostar um 5 milljónir með öllum innviðum. Það segir sig sjálft að rannsakendur og stofnanir sem nýta tæknina til rannsókna og náttúruváreftirlits og eru ekki að selja virðisaukandi þjónustu, geta ekki keppt við leiguverð á glerþráðum í ljósleiðaraköplum á almennum markaði. Önnur áskorun er kapphlaup um aðgang að ljósleiðurunum, en víða eru fáir þræðir lausir í þeim, stöðvahús geta ekki hýst marga ljósleiðaravaka og ljóst að Ísland er í mikilli samkeppni við erlenda háskóla. Þetta er takmörkuð auðlind. Tæknin er á blússandi siglingu og fleiri og fleiri eignast ljósleiðaravaka. Ísland eignaðist sinn fyrsta í janúar 2025 en árið á undan voru a.m.k. 9 ljósleiðaravakar á landinu frá erlendum aðilum. Engir opinberir hvatar eru um að skilja rannsóknargögnin héðan eftir innanlands eða að vera í samstarfi við Veðurstofuna sem hefur það hlutverk að annast náttúruvárvöktun á landinu, né annað íslenskt vísindafólk. Úr ofantöldu ætti að bæta.
Ljósleiðaravakar eru komnir til að vera, og Ísland hefur staðið framarlega í þróun og nýtingu þessarar byltingarkenndu tækni í heiminum. Með rannsóknum og verkefnum sem spanna allt frá Reykjanesskaga til Vatnajökuls, niður í borholur og um úthöf, í samstarfi við alþjóðlega vísindahópa, höfum við sýnt hvernig ljósleiðaratækni getur umbreytt skilningi okkar á jörðinni, jarðskjálftum, eldgosum, jarðhitasvæðum, vígahnöttum og jöklum. Tæknin býður upp á ótrúlega næmni, þétt mælanet og rauntímagögn sem geta styrkt bæði vísindalegar rannsóknir og öryggi þjóðarinnar gegnum náttúruvárvöktun.
Ljósleiðarainnviðir Íslands hafa fengið nýtt hlutverk. Þeir eru ekki aðeins burðarás gagnaflutnings, heldur eru nú einnig lykilþáttur í náttúruvárvöktun og öryggisneti þjóðarinnar. Með áframhaldandi þróun og nýsköpun mun Ísland áfram leiða alþjóðlega þróunarstarf á þessu sviði og tryggja örugga og upplýsta framtíð fyrir samfélagið allt.
Vala er dósent í verkfræðideild HR með doktorspróf frá jarðskjálftafræði frá Caltech. Kristín er deildarstjóri eldvirkni, jarðskjálfta og jarðhniks á Veðurstofu Íslands og er með doktorspróf í jarðskjálftafræði frá Uppsalaháskóla.
Heimildir
-
Fichtner, A., Klaasen, S., Thrastarson, S., Çubuk‐Sabuncu, Y., Paitz, P. & Jónsdóttir, K. (2022). Fiber‐Optic Observation of Volcanic Tremor through Floating Ice Sheet Resonance. The Seismic Record 2022; 2 (3): 148–155.
Slóð -
Hudson, T.S., Klaasen, S., Fontaine, O., Bacon, C.A., Jónsdóttir, K., Fichtner, A. (2025). Towards a widely applicable earthquake detection algorithm for fibreoptic and hybrid fibreoptic-seismometer networks, Geophysical Journal International, 240 (3), 1965–1985
Slóð -
Hjörleifsdóttir, V., Kolker, A., Hokstad, K., Stefánsson, A., Obermann, A., Dobson, P., et al. (2023). DErisking Exploration for geothermal Plays in magmaticEnvironments – Results and Perspectives from the DEEPENProject. In Proceedings of GRC (Vol. 47).
Slóð -
Jousset, P., Reinsch, T., Ryberg, T., Blanck, H., Clarke, A., Aghayev, R., et al. (2018). Dynamic strain determination using fibre-optic cables allows imaging of seismological and structural features. Nature Communications, 9 (1), 2509.
Slóð -
Jónsdóttir, K., Cubuk-Sabuncu, Y., Gestsson, E. B., Erlendsson, P., Li, J., Biondi, E., Hjörleifsdóttir, V., Kristinsson, I., Roberts, M. J., Vogfjörð (2025). The first Icelandic DAS Deployment for Real-Time Earthquake and Volcano Monitoring/ Fyrsti íslenski Ljósleiðaravakinn. Vorráðstefna Jarðfræðafélagsins (abstract).
Slóð -
Klaasen, S., Thrastarson, S., Çubuk-Sabuncu, Y., Jónsdóttir, K., Gebraad, L., Paitz, P. and Fichtner, A. (2023) “Subglacial volcano monitoring with fibre-optic sensing: Grímsvötn, Iceland”, Volcanica, 6 (2), pp. 301–311.
Slóð -
Klaasen, S., Thrastarson, S., Fichtner, A., Cubuk-Sabuncu, Y. & Jónsdóttir, K. (2022). Sensing Iceland’s Most Active Volcano with a “Buried Hair”. Eos. 103.
Slóð -
Lanteri, A., Keating, S., Gebraad, L., Klaasen, S., Pienkowska-Cote, M., Eisen, O., Zunino, A., Jonsdottir, K., Hofstede, C., Zigone., D., Fichtner, A., (2025). Seismic constraints on glacier density. Sci Rep. Nature 15, 42259.
Slóð -
Li, J., Biondi, E., Heimisson, E. R., et al. (2025). Minute-scale dynamics of recurrent dike intrusions in Iceland with fiber-optic geodesy. Science, 388, 1189-1193.
Slóð -
Rodriguez, I.V., Isken, M.P., Dahm, T., Lamb, O.D., Wu, S.-M., Kristjánsdóttir, S., Jónsdóttir, K., Sanchez‐Pastor, P., Clinton, J., Wollin, C., Baird, A.F., Wuestefeld, A., Booz, B., Eibl, E.P.S., Heimann, S., Goertz‐Allmann, B.P., Jousset, P., Oye, V., Hjörleifsdóttir, V., & Obermann, A. (2023). Acoustic signals of a meteoroid recorded on a large‐N seismic network and fiber‐optic cables. Seismological Research Letters, 94 (2A), 731–745.
Slóð -
Stork, A., Poletto, F., Draganov, D., Janssen, M., Hassing, S., Meneghini, F., et al. (2022). Monitoring CO2 injection with passive and active seismic surveys: Case study from the Hellisheiði geothermal field, Iceland. SSRN Electronic Journal. https://doi.org/10.2139/ssrn.4273044
-
Thrastarson, S., Torfason, R., Klaasen, S., Paitz, P., Cubuk-Sabuncu, Y., Jónsdóttir, K., Ficthner, A. (2021) Detecting Seismic Events with Computer Vision: Applications for Fiber-Optic Sensing. ESS Open Archive.
Slóð -
Obermann, A., Sánchez-Pastor, P., Wu, S.-M., Wollin, C., Baird, A. F., Isken, M. P., et al. (2022). Combined Large- N Seismic Arrays and DAS Fiber Optic Cables across the Hengill Geothermal Field, Iceland. Seismological Research Letters, 93 (5), 2498–2514.
Slóð







