
Oft heyrist að svigrúm til hækkunar raunlauna ráðist af vexti framleiðni vinnu. Í framhaldinu er bent á að hækkun nafnlauna umfram vöxt framleiðni að viðbættu verðbólgumarkmiði muni fyrr eða síðar leiða til verðbólgu umfram markmiðið. Það er viss sannleikur í þessum fullyrðingum en þetta er líka einföldun eins og margt í hagfræði. Ef t.d. verð á framleiðslunni hækkar meira en vísitala neysluverðs (VNV) sem verðbólgumarkmið Seðlabankans tekur mið af – og sem almennt er notuð við útreikning á raunlaunum og raunverði – geta raunlaun hækkað meira en sem nemur vexti framleiðninnar og verðbólgan samt verið við markmið Seðlabankans. Það sama á við ef annar framleiðslukostnaður en laun hækkar minna en neysluverðsvísitalan.
Mælingar á framleiðni vinnu
Í umræðunni er oftast talað um framleiðni í hagkerfinu í heild, en þá ber þess að gæta að á milli ¼ og ⅓ af þeirri heild er opinber þjónusta en magn hennar er mælt með magni aðfanga, sem mest er vinna. Ef magni vinnu er deilt upp í þessa mælingu á magni framleiðslunnar fæst auðvitað að framleiðnin breytist lítið.
Í markaðshagkerfi er eðlilegt að gera ráð fyrir að hagkerfið sveiflist um stöðu þar sem laun og arðsemi eru í jafnvægi. Ef laun eru lægri en jafnvægisstaðan og arðsemi mikil leitast fyrirtæki við að auka framleiðslu og markaðshlutdeild, hækka laun og lækka verð, en ef laun eru tiltölulega há og arðsemi lítil hækka fyrirtæki verð og draga úr framleiðslu. Þetta gangverk nær ekki til framleiðslu opinberrar þjónustu.
Af þessum tveimur ástæðum er eðlilegast að mæla svigrúm til hækkunar raunlauna út frá hækkun framleiðni vinnu í markaðshagkerfinu og sleppa opinberu þjónustunni. Hér munum við þó fylgja tískunni og miða við framleiðni í hagkerfinu öllu.
Hlutfall launa og launatengdra gjalda á móti vergum þáttatekjum (VÞT) er mikið notað við mælingar á tekjuskiptingu í framleiðslunni. Þess vegna verður hér miðað við framleiðni sem er mæld sem hlutfall magnvísitölu vergra þáttatekna skv. Hagstofunni og fjölda vinnustunda (EMPH í þjóðhagslíkani Seðlabankans, QMM). Þannig fæst mæling á framleiðni sem er mjög nálægt mælingunni á framleiðni í QMM (PROD).
Þegar Hagstofan mælir magn opinberrar þjónustu með því að mæla magn aðfanga mælir hún verðið óbeint. Ef opinbera þjónustan væri framleidd með vinnu eingöngu væri verðið jafnt og laun. Laun og launatengd gjöld eru ekki allur kostnaður en nægilega hátt hlutfall af honum til þess að raunverð opinberrar þjónustu hækkar yfir tíma af því að raunlaun hækka yfir tíma. Þróun raunverðs opinberrar þjónustu er sennilega meginskýringin á hækkunum á raunverði vergra þáttatekna yfir tíma.
Fyrir nokkrum árum hóf Hagstofan að birta tölur um framleiðni vinnu. Nokkur munur er á þessum tölum og tölum í gagnagrunni QMM. Tölur Hagstofunnar ná yfir tímabilið 2008-2022. Á þessum tíma óx framleiðni mæld með PROD í gagnagrunni QMM um 0,89% á ári, en tölur Hagstofunnar gefa 1,40% vöxt á ári. Fylgni árlegra breytinga í framleiðni í þessum tveimur gagnamengjum er 0,61.
Það er hægt að áætla framleiðni í öðrum greinum en „O-Q. Opinber stjórnsýsla, fræðslustarfsemi, heilbrigðis- og félagsþjónusta” út frá tölum Hagstofunnar. Þá fæst að meðalhækkun framleiðni vinnu í þessum hluta hagkerfisins var 1,83% á árunum 2008-2022, 0,43 prósentum hærri en meðalvöxtur framleiðni í hagkerfinu í heild.
Breytingar á verði framleiðslunnar
Ef verð á framleiðslunni hækkar minna en vísitala neysluverðs, en laun hækka sem nemur vexti framleiðninnar og hækkun vísitölu neysluverðs, eykst hlutfall launakostnaðar af verðmæti framleiðslunnar. Til að ná jafnvægi þar sem hlutfallið er óbreytt þurfa raunlaun að hækka minna en framleiðnin. Svigrúm til hækkunar raunlauna ræðst nú af vexti framleiðninnar að viðbættu breytingu raunverðs framleiðslunnar.
Mynd 1 sýnir að framleiðnin vex yfir tíma, en mishratt. Á árunum 1997-2022 óx hún um 46,2%, eða 1,53% á ári. Á árunum 1997-2007 var meðalvöxturinn 2,3% á ári, en á árunum 2009-2022 0,7% á ári.
Myndin sýnir leitni í raunverði vergra þáttatekna. Á árunum 1997-2022 hækkaði það um 17,4% eða 0,64% á ári. Meðalhækkunin var lítið hærri á árunum fyrir fjármálakreppuna. Á árunum 2018-2022 hækkaði raunverðið um 6,4% eða 1,6% á ári. Á sama tíma stóð framleiðnin í stað, árlegur vöxtur var 0,08%.
Vísitala fyrir margfeldi framleiðni og raunverðs vergra þáttatekna hækkaði um 71,7% á árunum 1997-2022 eða um 2,2% á ári. Á árunum 1997-2007 hækkaði þessi stærð um 2,9% á ári, en á árunum 2009-2022 hækkaði hún um 1,2% á ári.
Staðalfrávik breytinga í framleiðni mælist 2,2% á árunum 1997-2022. Staðalfrávik breytinga raunverðs vergra þáttatekna er einnig 2,2% og staðalfrávik breytinga í margfeldi þessara tveggja stærða er 3,2% á þessu tímabili.
Raungengið sveiflast meira en hinar stærðirnar í mynd 1. Staðalfrávik árlegra breytinga í raungenginu á árunum 1997-2022 var 9,2%. Fyrir fjármálakreppuna var það 7,4%, en eftir hana 6,1%.
Þáttur raungengisins
Breytingar á verði aðfanga hafa áhrif á svigrúm til hækkana raunlauna. Það er líka sennilegt að verðákvarðanir flestra fyrirtækja taki mið af öllum kostnaði og hlutfalli hans af tekjum en ekki bara launakostnaði. Það eru tölfræðilegar vísbendingar um marktækt samband á milli launakostnaðar, leiðréttum fyrir …








