USD 125,4 0,5%
EUR 137,2
GBP 164,0 0,1%
DKK 18,4
SEK 12,2 -0,2%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 149,4 0,4%
CAD 87,3 0,1%
JPY 0,8 0,2%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 397.710
USD 125,4 0,5%
EUR 137,2
GBP 164,0 0,1%
DKK 18,4
SEK 12,2 -0,2%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 149,4 0,4%
CAD 87,3 0,1%
JPY 0,8 0,2%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 397.710
Til baka

Mark­að­ir og mark­mið

Mariana Mazzucato, atvinnustefna og markaðsmótun

IMG_5870
Mynd: Ásgeir Brynjar

Reglur móta umgjörðina fyrir alla markaði og án þeirra ættu sér ekki stað viðskipti. Forsenda þess að markaðir virki er að samningar haldi og reglur séu virtar. Þess vegna þarf líka stöðumælaverði eða tæknivætt eftirlit með bílastæðum.

Samkeppni milli símasöluaðila greiðsluþjónustu fyrir stæðin mun trauðla leiða til lægra verðs. Þannig verður ekki til hvati fyrir lækkun þegar skortur er innbyggður í umgjörðina. Skaupið fól í sér nokkuð raunsanna greiningu. Svipað á við um húsnæðismarkaðinn íslenska, þar sem jafnvel má sjá merki um að gæðum hraki samhliða því að verð hækki, ástæðan er meira en þríþætt, en að hluta til vegna skorts, mikillar hagnaðarsóknar og veikrar umgjarðar reglna og eftirlits.

Þau merku tíðindi gerðust í vikunni að bætt var við byggingareglugerðina sem áður hefur verið fjallað um hér ákvæðum um ljósvist og birtu í mannabústöðum hérlendis, til samræmis við löndin í kringum okkur. Þjóðir sem byggja ekki á þeirri einstöku aðferð að bera dagsbirtuna inn í húfum eins og Bakkabræðurnir Gísli, Eiríkur og Helgi innleiddu á íslenskan byggingamarkað. Sá birtuskortur hefur gert sumar íbúðir sem byggðar hafa verið á undanförnum árum óíbúðarhæfar fyrir pottaplöntur sem veslast þar upp og deyja, þó þar búi samt fólk. Sumar hafa líka svalir í norðurátt þar sem aldrei nýtur sólar.

Nýsköpunarhagfræðingurinn Mariana Mazzucato hélt merkilegt erindi á vegum stjórnvalda í Grósku fyrr í vikunni þar sem forsætisráðherra kynni áhrif hennar hugmyndafræði á mótun atvinnustefnu fyrir Ísland. Sá framsækni hluti innan hagfræðinnar sem Mazzucato tilheyrir og hefur tekið þátt í að móta er í stöðugri þróun. Vert er að mæla með góðu Kastljósviðtali við hana.

Báðar greinar annars tölublaðs ársins fjalla, hvor á sinn hátt, um reglur og markaði með takmarkaðar auðlindir og aðgengi. Annars vegar hvað varðar fisk og heimildir til að veiða hann og hins vegar húsnæði og heimildir í fjármögnunarumgjörð þess.

Næsta grein

Mest lesið
1
Efnahagsmál

Um virði hagtalna

2
Umhverfi

Íslenskir jöklar á hverfanda hveli

3
Aðrir sálmar

Þrjár gráður

4
Efnahagsmál

Hvað er sjálfbær launaþróun?

5
Aðrir sálmar

Óheppileg orð

6
Efnahagsmál

Pólitískar afleiðingar efnahagslegrar óvissu


Vetur
Efnahagsmál 37. tbl.

Um virði hagtalna

Traust á opinberum hagtölum skiptir sköpum fyrir hagstjórn og ákvarðanatöku.
Framkvæmdir í Reykjavík
Efnahagsmál 36. tbl.

Hvað er sjálf­bær launa­þró­un?

Verðbólga, framleiðni og mörk launasvigrúmsins
Anti-Fascist Economics 2026 Isabella Weber
Efnahagsmál 36. tbl.

Póli­tísk­ar af­leið­ing­ar efna­hags­legr­ar óvissu

Lífskjarakrísan: Stýrivextir eru harkalegt tól í baráttunni gegn hækkandi verði á nauðsynjavörum